Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 2
Veður
Norðlæg átt, 8-13 m/s. Dregur úr
vindi V-lands síðdegis, en gengur í
allhvassa eða hvassa norðvestanátt
á austanverðu landinu undir kvöld.
Él á N- og A-landi, en annars létt-
skýjað að mestu. SJÁ SÍÐU 16
Ævintýraverur á skautum
Þessi vel dulbúnu börn voru á meðal þeirra sem mættu á hrekkjavökuball listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur í Skautahöllinni í Laugardalnum
í gærkvöldi. Þetta verður væntanlega ekki síðasta hrekkjavökuball ársins enda er hrekkjavakan sjálf ekki fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku. Flest
munu þó líklega fagna hátíðinni um helgina, það er að segja þau sem ekki eru andvíg innreið þessarar hátíðar í íslenskt samfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
SAMFÉLAG „Því miður hafa þeir
aðilar sem haga sér svona gagnvart
stöðuvörðum ekki látið sér segjast
og halda sínu striki,“ segir Kolbrún
Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs, um áreitni og hót-
anir í þeirra garð.
Stöðuverðir sögðu frá ofbeldi,
hótunum og áreitni sem þeir verða
fyrir í daglegum störfum sínum í
helgarblaði Fréttablaðsins fyrr í
mánuðinum. Í kjölfarið ræddi Þóra,
sextug kona sem hefur starfað sem
stöðuvörður í sextán ár, nánar um
aðstæður stöðuvarða. „Á meðan
Þóra var í viðtali við Ísland í dag
þá lendir stöðuvörður, ung kona, í
mjög ógnandi aðstæðum og sann-
aði neyðar hnappurinn gildi sitt.
Lögregla og samstarfsmenn voru
komnir á staðinn á örskotsstundu,“
segir Kolbrún frá.
Kolbrún segir samstarf við lög-
reglu gott. „Og er mikilvægt að við-
halda því. Mesta öryggið felst í því
að þau ýti á neyðarhnappinn í þeim
aðstæðum þar sem stöðuvörðum er
ógnað,“ segir Kolbrún og minnir á að
stöðuverðir geti nýtt hann til þess að
ná beinu sambandi við 112. Með því
að ýta á hnappinn hefst einnig upp-
taka af því sem fram fer sem hægt er
að nota ef tekin er ákvörðun um að
kæra ofbeldi eða hótanir.
Kolbrún segir hins vegar að þrátt
fyrir að þeir fáu sem ógni og hóti láti
ekki af hegðun sinni finni stöðu-
verðir almennt fyrir jákvæðara við-
móti. – kbg
Stöðuvörður í
mjög ógnandi
aðstæðum
Lögregla og sam-
starfsmenn voru
komnir á staðinn á örskots-
stundu.
Kolbrún Jónatans-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs
LED LAMPAR
Rafvirkjar
60-150 cm
30-120 cm m. rofa
Jóhann Ólafsson & Co 533 1900 | olafsson.is
NÁTTÚRA Snjóflóð af mannavöldum
voru tíð veturinn 2017 og 2018 og
svo virðist sem þau verði tíðari með
hverjum vetrinum. Þetta kemur
fram í skýrslu Veðurstofu Íslands
um snjóflóð á Íslandi síðastliðinn
vetur.
Alls voru skráð 63 slík snjóflóð.
Eitt flóð féll í lok desember og sex í
janúar en öll önnur flóð af manna-
völdum, eða 56 snjóflóð, féllu á
tveggja mánaða tímabili frá fyrstu
viku marsmánaðar fram í miðjan
maí.
Nokkrir slösuðust í þessum snjó-
flóðum. Þar á meðal var göngu-
maður sem slasaðist alvarlegra í
snjóflóði við Ísafjörð í maí. Í sama
mánuði voru tveir menn hætt
komnir vegna ofkælingar eftir að
hafa sett af stað snjóflóð í Gríms-
fjalli á Vatnajökli.
– khn
Fleiri snjóflóð af
mannavöldum
SAMFÉLAG „Mér finnst þetta nú fyrst
og fremst snúast um tjáningarfrelsi
og hvort þetta opinbera félag megi
koma í veg fyrir að félagasam-
tök birti auglýsingu, sem varðar
almannahagsmuni og á því erindi
til almennings, í rými þar sem aug-
lýsingar eru almennt leyfðar,“ segir
Jón Kaldal, talsmaður Icelandic
Wildlife Fund, en nýtt og breytt
auglýsingaskilti samtakanna fær
ekki að hanga uppi í Leifsstöð, þrátt
fyrir breytingar sem gerðar hafa
verið á texta þess eftir niðurstöðu
siðanefndar Sambands íslenskra
auglýsingastofa (SÍA).
Eins og Fréttablaðið greindi frá
lét Isavia fjarlægja skilti samtak-
anna úr komusal Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar í júlí, þegar skiltið hafði
hangið þar í tíu daga.
Rök Isavia fyrir því að taka auglýs-
inguna niður voru meðal annars að
hún lyti að álitaefni sem tveir hópar
tækjust á um í samfélaginu og Isavia
hefði litið svo á að auglýsingin bryti
í bága við siðareglur SÍA sem kveði
á um að auglýsingar skuli ekki vera
rangar og hvorki vega að öðru fólki
né fyrirtækjum. Á skiltinu umdeilda
var fjallað um neikvæð áhrif stór-
fellds laxeldis í opnum sjókvíum á
umhverfið og einkum á villta Atl-
antshafslaxinn og vísað til Íslands
sem síðasta vígis stofnsins.
Samtökin kvörtuðu til siðanefnd-
arinnar, sem komst, eftir langa yfir-
legu, að þeirri niðurstöðu að ekki
væri vegið að öðrum fyrirtækjum
með efni skiltisins og helstu rök
Isavia fyrir því að taka skiltið niður
stæðust því ekki.
Í áliti nefndarinnar kemur fram
að hún hafni því ekki að fullyrð-
ingar á skiltinu um að Ísland sé
síðasta vígi At lants hafs laxins og að
laxeldi í opnum sjó kvíum leiði til
út rýmingar hinna ein stöku villtu
laxastofna Ís lands, kunni að vera
sannar, en telur þó að með fullyrð-
ingunum sé engu að síður of fast að
orði kveðið.
Í kjölfar niðurstöðu siðanefndar-
innar sendu samtökin tillögu um
nýtt skilti, þar sem ekki er eins fast
að orði kveðið, til Isavia með ósk
um uppsetningu.
Isavia hefur nú synjað uppsetn-
ingu skiltisins með þeim rökum
að auglýsingarými í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli séu
nýtt til að kynna vörur eða þjónustu
en verði ekki vettvangur deilna um
viðkvæm og umdeild málefni. Svo
segir í rökstuðningi Isavia:
„Það er ljóst að auglýsing IWF
fjallar um viðkvæmt málefni sem
er mikið deilumál í íslensku þjóð-
lífi og stjórnmálum nú um stundir.
Isavia mun því ekki veita heimild
fyrir því að sú auglýsing sem borist
hefur frá IWF verði sett upp í flug-
stöðinni. Það sama gildir um allar
auglýsingar sama eðlis, algjörlega
óháð málefnum eða þeirri afstöðu
sem fram í þeim kemur.“
adalheidur@frettabladid.is
Umdeild mál ekki leyfð
á veggjum Leifsstöðvar
Auglýsingaskilti um íslenska laxastofninn fær ekki að hanga uppi í Leifsstöð
þrátt fyrir breytingar og úrskurð siðanefndar. Isavia vill ekki umdeild mál á
veggjum flugstöðvarinnar. Talsmaður segir málið snúast um tjáningarfrelsi.
Upprunalega skiltið hékk í tíu daga í flugstöðinni, en var svo tekið niður.
Mér finnst þetta nú
fyrst og fremst
snúast um tjáningarfrelsi.
Jón Kaldal, tals-
maður Icelandic
Wildlife Fund
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð