Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 57
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Þórarins
Þórarinssonar
BAKÞANKAR
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
A F S L ÁT T U R
25-70%
EKKI MISSA AF ÞESSU
R ÝM I N G A R S A L A
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
Seljum í stuttan tíma eldri
gerðir af rúmum og öðrum
vörum með veglegum afslætti
í verslun okkar í Faxafeni.
Við erum að taka inn mikið magn af nýjum
vörum og rýmum til með því að selja
eldri gerðir og sýningareintök með
veglegum afslætti.
S T I L L A N L E G R Ú M H E I L S U R Ú M O G R Ú M G A F L A R S V E F N S Ó FA R
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér
nýjustu fréttir dagsins og
ítarlega umfjöllun um
málefni líðandi stundar.
Plast þótti einu sinni mikið og merkilegt töfraefni. Tilkoma þess einfaldaði tilveruna og
auðveldaði okkur lífið svo mjög að
við notum plast í allt. Plastið er svo-
lítið eins og Guð og býr í garðslöng-
unni og núna líka í glötuninni.
Plastið sem áður var blessun er
orðið bölvun og heldur er gamanið
farið að kárna þegar plastið hefur
myndað risastórt eyland úti á
miðju reginhafi, eiginlega stofnað
sjálfstæða heimsálfu sem boðar
ekkert gott.
Plastið er meira að segja orðið
hluti af okkur sjálfum, við erum
orðin plast. Við kúkum í það
minnsta plasti ef marka má nýjustu
rannsóknir. Hvernig útsmogið
plastið fór að því að renna svona
gersamlega saman við okkur er mér
hulin ráðgáta.
Vissulega er löng og rík hefð fyrir
því hjá nútímamanninum að éta
alls konar rusl en hvergi minnist
ég þess að hafa rekist á plast á mat-
seðlum. Mikið furðuverk og flárátt,
bölvað plastið.
Hópur hugdjarfs fólks, senni-
lega væri þó heiðarlegra að kalla
það bara hreint út sagt heimskt í
bjartsýni sinni, boðaði plastlausan
september. Hvernig ætli fólki hafi
gengið svona almennt að sniðganga
plast í heilan mánuð? Ég sé ekki
fyrir mér að geta komist í gegnum
plastlausan hálftíma.
Öll verðum við þó að reyna að
spyrna við fótum og þá vonandi
á gúmmískósólum frekar en úr
plasti. Það segir samt sitt um við
hverslags ofurefli er að etja þegar
græna tunnan sem ég á að setja
flokkaða og hreinsaða plastið mitt í
er úr plasti!
Og ekki eru nú þeir sem pakka
vörum sínum í plast mikið að
hjálpa manni að flokka og greina
plast frá skárra rusli. Öllum þessum
efnum er grautað saman væntan-
lega til þess að gera flokkunina
erfiðari.
Er þetta kannski bara allt í plati?
Allt í plasti