Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 57

Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 57
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Þórarins Þórarinssonar BAKÞANKAR FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is A F S L ÁT T U R 25-70% EKKI MISSA AF ÞESSU R ÝM I N G A R S A L A STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL. RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM Seljum í stuttan tíma eldri gerðir af rúmum og öðrum vörum með veglegum afslætti í verslun okkar í Faxafeni. Við erum að taka inn mikið magn af nýjum vörum og rýmum til með því að selja eldri gerðir og sýningareintök með veglegum afslætti. S T I L L A N L E G R Ú M H E I L S U R Ú M O G R Ú M G A F L A R S V E F N S Ó FA R HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umfjöllun um málefni líðandi stundar. Plast þótti einu sinni mikið og merkilegt töfraefni. Tilkoma þess einfaldaði tilveruna og auðveldaði okkur lífið svo mjög að við notum plast í allt. Plastið er svo- lítið eins og Guð og býr í garðslöng- unni og núna líka í glötuninni. Plastið sem áður var blessun er orðið bölvun og heldur er gamanið farið að kárna þegar plastið hefur myndað risastórt eyland úti á miðju reginhafi, eiginlega stofnað sjálfstæða heimsálfu sem boðar ekkert gott. Plastið er meira að segja orðið hluti af okkur sjálfum, við erum orðin plast. Við kúkum í það minnsta plasti ef marka má nýjustu rannsóknir. Hvernig útsmogið plastið fór að því að renna svona gersamlega saman við okkur er mér hulin ráðgáta. Vissulega er löng og rík hefð fyrir því hjá nútímamanninum að éta alls konar rusl en hvergi minnist ég þess að hafa rekist á plast á mat- seðlum. Mikið furðuverk og flárátt, bölvað plastið. Hópur hugdjarfs fólks, senni- lega væri þó heiðarlegra að kalla það bara hreint út sagt heimskt í bjartsýni sinni, boðaði plastlausan september. Hvernig ætli fólki hafi gengið svona almennt að sniðganga plast í heilan mánuð? Ég sé ekki fyrir mér að geta komist í gegnum plastlausan hálftíma. Öll verðum við þó að reyna að spyrna við fótum og þá vonandi á gúmmískósólum frekar en úr plasti. Það segir samt sitt um við hverslags ofurefli er að etja þegar græna tunnan sem ég á að setja flokkaða og hreinsaða plastið mitt í er úr plasti! Og ekki eru nú þeir sem pakka vörum sínum í plast mikið að hjálpa manni að flokka og greina plast frá skárra rusli. Öllum þessum efnum er grautað saman væntan- lega til þess að gera flokkunina erfiðari. Er þetta kannski bara allt í plati? Allt í plasti

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.