Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 41
Við lítum svo á að
okkar hlutverki sé
ekki lokið þótt búið sé að
ganga frá samningi í
upphafi heldur vinnum
við áfram með okkar
viðskiptavinum að ná
besta mögulega árangri í
rekstrinum.
Sverrir Viðar Hauksson
Samanlögð starfsreynsla ráðgjafahóps Lykils er yfir 60 ár. Frá vinstri eru Arnar Snær Kárason, Guðmundur Sigurjónsson, Herbert Arnarson, Sverrir Viðar Hauksson og Elvar Daði Eiríksson MYND/ERNIR
Þegar kemur að atvinnutækj-um er ljóst að fram undan er veruleg endurnýjunarþörf,
því miðað við áætlanir stjórn-
valda eru horfur á að ráðist verði
í verulega innviðauppbyggingu í
samgöngukerfinu á næstu árum.
Við hjá Lykli erum til þjónustu
reiðubúin að tryggja hagstæða fjár-
mögnun slíkra tækja og aðstoða
okkar fjölmörgu viðskiptavini
við að ná hámarkshagræðingu í
sínum rekstri,“ segir Sverrir Viðar
Hauksson, sviðsstjóri viðskipta-
sviðs Lykils fjármögnunar.
Stuttar boðleiðir og
fjölbreytt fjármögnun
Sverrir Viðar segir sýna sig að við-
skiptavinir Lykils kunni að meta
hversu hratt er brugðist við fyrir-
spurnum og afgreiðslu lánafyrir-
greiðslna.
„Við teljum að þar sé okkar
meginstyrkur að vera lítið og sjálf-
stætt fjármögnunarfyrirtæki með
stuttar boðleiðir,“ segir Sverrir
Viðar.
Einnig skipti máli að fjölbreytni
í vöruframboði Lykils auki líkur
á að finna bestu fjármögnunar-
leiðina fyrir viðskiptavini.
„Lykill býður til dæmis hefð-
bundna kaupleigu og fjármögn-
unarleigu auk rekstrarleigu á
smærri og stærri tækjum, ásamt
Flotaleigu fyrir bíla fyrirtækja.
Í kaupleigu býður Lykill allt að
90 prósenta fjármögnun af kaup-
verði, hvort heldur er í íslenskum
krónum eða erlendri mynt,“ upp-
lýsir Sverrir Viðar.
Í fjármögnunarleigu miðast
fjármögnunarhlutfall við allt að 80
prósent af kaupverði tækis. Lengd
samningstíma er háð viðkomandi
leigumun en algengur samnings-
tími er 36 til 60 mánuðir.
Í Flota- og rekstarleigu Lykils eru
allir bílar og tæki fjármögnuð 100
prósent en algengur leigutími er 12
til 36 mánuðir.
„Í atvinnurekstri á Íslandi eru
gjarnan árstíðabundnar sveiflur,
ekki síst í byggingariðnaði, land-
búnaði og vegagerð. Það þýðir auð-
vitað að tæki getur staðið ónotað
svo vikum skiptir og skapar litlar
sem engar tekjur á meðan. Þessu
mætir Lykill með því að bjóða
sínum viðskiptavinum upp á
sveigjanlegar afborganir þannig að
greiðslur eru hærri þegar nóg er að
gera en lægri þegar tekjur lántaka
dragast tímabundið saman. Það
kunna viðskiptavinir okkar vel að
meta,“ segir Sverrir Viðar.
Margir góðir kostir
Fjármögnunarleiðir Lykils fyrir
fyrirtæki og rekstraraðila eru sex
talsins:
Flotaleiga eykur öryggi við
rekstur bílaflota og stuðlar að
lækkun kostnaðar sem vinnst
með stærðarhagkvæmni Lykils.
Fjármögnunarleiga hentar til fjár-
mögnunar á vélum og tækjum til
atvinnurekstrar, en þó best þeim
sem vilja nýta sér hraðari gjald-
færslu á leigugreiðslum.
Kaupleiga hentar ekki síður
til fjármögnunar á vélum og
tækjum til atvinnurekstrar þar
sem vélar og tæki eru eignfærð
í bókhaldinu og samningurinn
færður sem skuld á móti.
Rekstrarleiga á bílum eða at-
vinnutækjum byggir á því að
Lykill kaupir ákveðinn leigumun
í samráði við leigutaka sem leigir
leigumuninn í fyrirfram ákveðinn
tíma og hefur fullan umráða-
rétt yfir honum á leigutímanum.
Leigugreiðslur eru gjaldfærðar og
haldast óbreyttar út leigutímann.
Loks eru svo Lykillán og Lykil-
samningar en það eru valkostir
þegar kemur að fjármögnun bíla.
Hægt er að fá allt að 90% fjár-
mögnun af kaupverði til allt að 7
ára fyrir nýja bíla.
Þjónustufyrirtækið Lykill
Lykill fjármögnun byggir á rúmlega
30 ára sögu og er samanlögð starfs-
reynsla ráðgjafahópsins yfir 60 ár.
„Þekking á aðstæðum viðskipta-
vina, markaðnum og þeim tækjum
og búnaði sem við erum að vinna
með skiptir öllu máli og auðveldar
alla afgreiðslu,“ segir Sverrir Viðar
og leggur áherslu á að Lykill sé
fjármálafyrirtæki undir eftirliti
Fjármálaeftirlitsins en líti ekki
síður á sig sem þjónustufyrirtæki
sem veitir viðskiptavinum sínum
snarpa og úrræðagóða þjónustu.
„Við tryggjum viðskiptavinum
okkar hagstæð kjör til fjármögn-
unar á bílum og tækjum og veitum
ráðgjöf um bæði fjármögnunar-
tíma og samningsform. Hins vegar
lítum við svo á að okkar hlutverki
sé ekki lokið þótt búið sé að ganga
frá samningi í upphafi heldur
vinnum við áfram með okkar
kúnnum að ná besta mögulega
árangri í rekstrinum,“ segir Sverrir
Viðar enn fremur.
Lykill fjármögnun er í Ármúla 1.
Sími 540 1700. Nánari upplýsingar
á lykill.is.
Lykill leggur áherslu á
sveigjanleika í fjármögnun
Aðalsmerki Lykils fjármögnunar er hraði og afbragðs þjónusta við viðskiptavini. Í boði er fjölbreytt
fjármögnun atvinnutækja í gegnum stuttar boðleiðir, áratuga reynsla og úrræðagóð þjónusta.
24 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR