Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2018, Qupperneq 41

Fréttablaðið - 26.10.2018, Qupperneq 41
Við lítum svo á að okkar hlutverki sé ekki lokið þótt búið sé að ganga frá samningi í upphafi heldur vinnum við áfram með okkar viðskiptavinum að ná besta mögulega árangri í rekstrinum. Sverrir Viðar Hauksson Samanlögð starfsreynsla ráðgjafahóps Lykils er yfir 60 ár. Frá vinstri eru Arnar Snær Kárason, Guðmundur Sigurjónsson, Herbert Arnarson, Sverrir Viðar Hauksson og Elvar Daði Eiríksson MYND/ERNIR Þegar kemur að atvinnutækj-um er ljóst að fram undan er veruleg endurnýjunarþörf, því miðað við áætlanir stjórn- valda eru horfur á að ráðist verði í verulega innviðauppbyggingu í samgöngukerfinu á næstu árum. Við hjá Lykli erum til þjónustu reiðubúin að tryggja hagstæða fjár- mögnun slíkra tækja og aðstoða okkar fjölmörgu viðskiptavini við að ná hámarkshagræðingu í sínum rekstri,“ segir Sverrir Viðar Hauksson, sviðsstjóri viðskipta- sviðs Lykils fjármögnunar. Stuttar boðleiðir og fjölbreytt fjármögnun Sverrir Viðar segir sýna sig að við- skiptavinir Lykils kunni að meta hversu hratt er brugðist við fyrir- spurnum og afgreiðslu lánafyrir- greiðslna. „Við teljum að þar sé okkar meginstyrkur að vera lítið og sjálf- stætt fjármögnunarfyrirtæki með stuttar boðleiðir,“ segir Sverrir Viðar. Einnig skipti máli að fjölbreytni í vöruframboði Lykils auki líkur á að finna bestu fjármögnunar- leiðina fyrir viðskiptavini. „Lykill býður til dæmis hefð- bundna kaupleigu og fjármögn- unarleigu auk rekstrarleigu á smærri og stærri tækjum, ásamt Flotaleigu fyrir bíla fyrirtækja. Í kaupleigu býður Lykill allt að 90 prósenta fjármögnun af kaup- verði, hvort heldur er í íslenskum krónum eða erlendri mynt,“ upp- lýsir Sverrir Viðar. Í fjármögnunarleigu miðast fjármögnunarhlutfall við allt að 80 prósent af kaupverði tækis. Lengd samningstíma er háð viðkomandi leigumun en algengur samnings- tími er 36 til 60 mánuðir. Í Flota- og rekstarleigu Lykils eru allir bílar og tæki fjármögnuð 100 prósent en algengur leigutími er 12 til 36 mánuðir. „Í atvinnurekstri á Íslandi eru gjarnan árstíðabundnar sveiflur, ekki síst í byggingariðnaði, land- búnaði og vegagerð. Það þýðir auð- vitað að tæki getur staðið ónotað svo vikum skiptir og skapar litlar sem engar tekjur á meðan. Þessu mætir Lykill með því að bjóða sínum viðskiptavinum upp á sveigjanlegar afborganir þannig að greiðslur eru hærri þegar nóg er að gera en lægri þegar tekjur lántaka dragast tímabundið saman. Það kunna viðskiptavinir okkar vel að meta,“ segir Sverrir Viðar. Margir góðir kostir Fjármögnunarleiðir Lykils fyrir fyrirtæki og rekstraraðila eru sex talsins: Flotaleiga eykur öryggi við rekstur bílaflota og stuðlar að lækkun kostnaðar sem vinnst með stærðarhagkvæmni Lykils. Fjármögnunarleiga hentar til fjár- mögnunar á vélum og tækjum til atvinnurekstrar, en þó best þeim sem vilja nýta sér hraðari gjald- færslu á leigugreiðslum. Kaupleiga hentar ekki síður til fjármögnunar á vélum og tækjum til atvinnurekstrar þar sem vélar og tæki eru eignfærð í bókhaldinu og samningurinn færður sem skuld á móti. Rekstrarleiga á bílum eða at- vinnutækjum byggir á því að Lykill kaupir ákveðinn leigumun í samráði við leigutaka sem leigir leigumuninn í fyrirfram ákveðinn tíma og hefur fullan umráða- rétt yfir honum á leigutímanum. Leigugreiðslur eru gjaldfærðar og haldast óbreyttar út leigutímann. Loks eru svo Lykillán og Lykil- samningar en það eru valkostir þegar kemur að fjármögnun bíla. Hægt er að fá allt að 90% fjár- mögnun af kaupverði til allt að 7 ára fyrir nýja bíla. Þjónustufyrirtækið Lykill Lykill fjármögnun byggir á rúmlega 30 ára sögu og er samanlögð starfs- reynsla ráðgjafahópsins yfir 60 ár. „Þekking á aðstæðum viðskipta- vina, markaðnum og þeim tækjum og búnaði sem við erum að vinna með skiptir öllu máli og auðveldar alla afgreiðslu,“ segir Sverrir Viðar og leggur áherslu á að Lykill sé fjármálafyrirtæki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins en líti ekki síður á sig sem þjónustufyrirtæki sem veitir viðskiptavinum sínum snarpa og úrræðagóða þjónustu. „Við tryggjum viðskiptavinum okkar hagstæð kjör til fjármögn- unar á bílum og tækjum og veitum ráðgjöf um bæði fjármögnunar- tíma og samningsform. Hins vegar lítum við svo á að okkar hlutverki sé ekki lokið þótt búið sé að ganga frá samningi í upphafi heldur vinnum við áfram með okkar kúnnum að ná besta mögulega árangri í rekstrinum,“ segir Sverrir Viðar enn fremur. Lykill fjármögnun er í Ármúla 1. Sími 540 1700. Nánari upplýsingar á lykill.is. Lykill leggur áherslu á sveigjanleika í fjármögnun Aðalsmerki Lykils fjármögnunar er hraði og afbragðs þjónusta við viðskiptavini. Í boði er fjölbreytt fjármögnun atvinnutækja í gegnum stuttar boðleiðir, áratuga reynsla og úrræðagóð þjónusta. 24 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.