Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 2
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Veður Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 við suðausturströndina. Víða létt- skýjað, en skýjað og súld eða snjó- mugga með köflum austanlands. Frost 1 til 6 stig, en hiti um og yfir frostmarki syðst á landinu. SJÁ SÍÐU 22 Komið inn til lendingar Einni af kennsluvélum Flugskóla Íslands f logið inn til lendingar á Reykjavíkurf lugvelli í blíðunni í gær. Alls voru sextán lendingar áætlunarf lugs skráðar í kerfi Isavia fyrir Reykjavík í gær. Flestar komu vélarnar frá Akureyri á vegum Air Iceland Connect, eða fjórar talsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SÓLARFILMUR! Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is STJÓRNMÁL „Inni í þessu frumvarpi er ákvæði um að miða eignarhald við 115 metra frá stórstraumsfjöru- borði. Í Jónsbókarlögum er miðað við sjávardýpt, 6,8 metra. Ef það tekst að lauma þessum lögum í gegnum þingið þá erum við tala um eignaupptöku,“ segir Bjarni M. Jónsson hjá Samtökum eigenda sjávarjarða. Frumvarp forsætisráðherra um breytingar á lögum um þjóðlendur er nú til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Hyggjast samtökin senda inn umsögn áður en fresturinn rennur út í byrjun desember. Bjarni segir að um sé að ræða breytingar á lögum frá 13. öld sem geti haft mikil áhrif, þá sérstaklega í Breiðafirði. „Innri Breiðafjörðurinn er í einkaeign miðað við dýptarvið- miðið, það verður haft af fólki með þessum breytingum,“ segir Bjarni. – ab Breytingar hefðu gríðarleg áhrif Bjarni segir lagabreytinguna hafa mikil áhrif á hagsmuni í Breiðafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SAMFÉLAG „Námið er bæði krefj- andi og þverfaglegt og það er bæði bóklegt og verklegt,“ segir Bryndís Fiona Ford, skólameistari Hallorms- staðaskóla. Skólinn tók nýlega mikl- um breytingum en þar er nú kennd sjálf bærni og sköpun á framhalds- skólastigi. „Við byrjuðum með nýtt nám hérna núna í haust þar sem við leggjum áherslu á hugtökin sjálf- bærni og nýsköpun,“ segir Bryndís. Nemendum standa tvær náms- leiðir til boða en innan þeirra beggja er áhersla lögð á hugtökin. Valið stendur á milli matarfræði og textíls. „Við leggjum mikið upp úr því að kenna viðurkenndar aðferðir við vinnslu hráefna og svo er það í höndum nemenda að fara út í sköp- unarþáttinn og hafa sjálf bærni að leiðarljósi,“ segir Bryndís. „Textíll og matur tengjast nefni- lega ótrúlega mikið. Til dæmis þegar þú ert búinn að flaka fisk og horfir á roðið þá er roðið komið textílmegin,“ segir hún og nefnir sem dæmi að fiskroð sé notað líkt og leður í textílframleiðslu. „Við veltum fyrir okkur hvað við erum að vannýta af íslensku hráefni og leggjum okkur fram um að finna leiðir til að nýta hráefnin að vel,“ segir Bryndís. „Sem dæmi má nefna að tugþús- undum lítra af mysu er hellt niður á Íslandi á hverju ári en það væri hægt að nýta hana betur. Það er til dæmis hægt að búa til garn úr mysu við erum að skoða þá vinnsluaðferð og svo höfum við búið til kartöflu- snakk með mysu,“ bætir hún við. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvernig kartöf luf lögur með mysubragði smakkast og segir Bryndís að bragðið komi fólki á óvart. „Við gerðum snakk sem var bragðbætt með ýmsum íslenskum hráefnum, svo sem fjallagrösum, þangi og hvönn. Svo buðum við fólki að smakka og reyna að efna- greina hvaða hráefni voru í hverjum bita,“ segir Bryndís. „Flestir áttu erfitt með að greina hráefnin en mysusnakkið var klár- lega eitthvað sem fólki fannst gott því að mörgum fannst það lang- best,“ segir Bryndís og bætir við að snakkið sé sérlega hollt og prótín- ríkt. „Fólki gefst svo tækifæri á að smakka ýmsar afurðir sem matar- sviðið hefur verið að gera því við ætlum að vera á matar- og handverks- hátíðinni í Hörpu 14.-15. desember. Þar verður meðal annars mysu- snakkið og ýmiss konar textíll.“ birnadrofn@frettabladid.is Bragðbæta flögur með mysu á Hallormsstað Hallormsstaðaskóli hefur tekið miklum breytingum og þar er nú kennt nám í sjálfbærni og sköpun. Nemendur skólans vinna að því að nýta hráefni sem allra best og hafa meðal annars búið til kartöfluflögur með mysubragði. Skólabyggingin á Hallormsstað er afar falleg. Þar stunda nú tíu nemendur nám. Við leggjum mikið upp úr því að kenna viðurkenndar aðferðir við vinnslu hráefna og svo er það í höndum nemenda að fara út í sköpunarþáttinn og hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Bryndís Fiona Ford, skólameist- ari Hallorms- staðaskóla KJARAMÁL Atkvæðagreiðsla verður í Blaðamannafélagi Íslands um til- boð Samtaka atvinnulífsins um nýjan kjarasamning til þriggja ára. Tekur sá samningur til félagsmanna Blaðamannafélagsins hjá Frétta- blaðinu, Vísi, Stöð 2, Ríkisútvarpinu og miðlum Árvakurs sem gefur út Morgunblaðið. Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, hefur sagt að hann mæli ekki með því að samningurinn verði sam- þykktur. Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður SA, segist í samtali við Fréttablaðið hins vegar vongóður um samþykkt samningsins því kjarabætur í honum séu þær sömu og yfir 120 þúsund launamenn í íslensku samfélagi hafi samþykkt. Verði samningurinn felldur er búist við að BÍ hefji verkföll að nýju. Fyrsta verkfallið yrði þá meðal vef blaðamanna, ljósmyndara og myndatökumanna á föstudag og stæði í tólf klukkustundir. – gar Blaðamenn greiða atkvæði 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.