Fréttablaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 69
Þegar orgel
pípurnar
hafa verið
bræddar er
þeim hellt í
mót og þær
verða að
undurfögru
jólaskrauti.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Jólaskrautið
sem unnið
er úr gömlu
orgelpípun
um glitrar fal
lega í rauðum
borðum á
þessu stáss
lega hrein
dýrshorni.
Myrra Rós og Júlíus Óttar búa í gömlu, jólalegu húsi við Stokkseyrarströnd.
Hér má sjá feðgana Björgvin Tómasson og Júlíus Óttar skemmta sér við að
bræða gamlar orgelpípur í fallegt jólaskraut. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Við fluttum inn í húsið okkar á Stokkseyri nokkrum dögum fyrir jólin 2017 og
eitt það fyrsta sem við settum inn
í húsið var jólatré. Það var mikil
gleðistund. Við hjónin erum jóla
börn í hjörtum okkar og höfum
gaman af því að skreyta smá, baka
smákökur og hafa það notalegt
með fjölskyldunni yfir hátíð
arnar. Það skiptir mestu máli,“
segir Myrra Rós Þrastardóttir,
tónlistarkona og listkúnstner, sem
er með vinnuborð hjá þeim sem
hún kallar heimsins besta tengda
pabba; Björgvini Tómassyni
orgelsmið.
Þar skapar Myrra Rós íðilfagra
vængi unna úr spæni og viði.
„Ég hef verið starfandi tón
listarkona síðan 2009 en síðustu
þrjú árin hef ég einbeitt mér að
verkefninu Fjaðrafoki. Ég reyni
að endurnýta sem mest í þeirri
framleiðslu og má til gamans geta
að allir grunnar fyrir vængina eru
affall frá orgelsmíði tengdapabba
sem fannst þessi verk svo flott hjá
mér að hann plantaði mér niður á
besta stað í smiðjunni, við glugga
með útsýni yfir sjóinn,“ segir
Myrra Rós sæl.
Endurnýtingin mikilvæg
Þau Myrra Rós og eiginmaður
hennar, Júlíus Óttar, starfa bæði
við tónlist en þó sitt í hvoru lagi.
Júlíus er meðlimur síðrokkssveit
arinnar VAR og Myrra Rós kemur
fram undir eigin nafni.
„Júlíus vinnur í Orgelsmiðju
Rómantísk jól undir stjörnumergð
Í gömlu, fallegu húsi við ströndina á Stokkseyri bræða ung hjón gamlar orgelpípur og skapa úr þeim gamaldags, rómantískt
jólaskraut sem kætir og gleður á hátíð kærleikans. Þau segja stjörnurnar bjartari við sæinn og una sér vel í jólakyrrð og brimróti.
Björgvins Tómassonar, föður
síns, og hefur í raun gert
það síðan hann var sex ára
gamall og byrjaði að fara með
pabba sínum í ferðir til að
stilla orgel,“ upplýsir Myrra
Rós um sinn heittelskaða sem
stendur hjá í smiðjunni og
bræðir gamlar orgelpípur sem
síðan verða að gullfallegu jóla
skrauti.
„Jólaskrautið er upprunalega
hugmynd frá Björgvini tengda
pabba. Hann var með jólamarkað
í Orgelsmiðjunni fyrir nokkrum
árum og framleiddi þetta skraut
fyrir markaðinn. Svo fyrir stuttu
fann ég nokkur stykki og spurði
hvort ég ætti ekki að fara með þau í
Kirsuberjatréð, þar
sem ég er með verkin frá
Fjaðrafoki til sölu, og athuga hvort
fólk tæki vel í þetta fyrir jólin.
Það varð heldur betur þannig og
Björgvin hvatti okkur Júlíus til að
taka við jólaskrauts kyndlinum
og framleiða jólaskrautið undir
nafni Fjaðrafoks,“ útskýrir Myrra
Rós og handleikur fallega bangsa,
jólabjöllur og jólatré úr gömlu
orgelpípunum.
„Við höfum alltaf reynt að endur
nýta efniviðinn sem við notum í
sköpun okkar og framleiðslu. Að
bræða gamlar, beyglaðar orgel
pípur og gefa þeim framhaldslíf
finnst okkur mjög sniðugt og ekki
skemmir fyrir hvað þetta er fallegt.
Það er einhver gamaldags róman
tík í þessu,“ segir Myrra Rós sem
endurvinnur líka mikið og upp
nýtir í framleiðslu Fjaðrafoks.
Líður vel í kyrrð og brimróti
Eftir tvenn jól við suðurströndina
eru Myrra Rós og Júlíus Óttar enn
að búa til sínar hefðir.
„Við eldum hnetusteik á
aðfangadag, opnum nokkra
pakka og höfum það huggulegt
tvö saman. Fyrir mér byrja jólin
hins vegar ekki fyrr en dóttir
mín, Lára Þöll, kemur til okkar á
jóladag. Þá borðum við hangikjöt
með öllu tilheyrandi, opnum fleiri
pakka og horfum á góða jólamynd
en myndin Nightmare Before
Christmas verður oft fyrir valinu
á þessu heimili,“ segir Myrra Rós í
vetrarríki sveitasælunnar þar sem
máninn merlar á sænum.
„Ég verð að segja að stjörn
urnar eru bjartari í myrkrinu
hérna á Stokkseyri. Ekkert bara
um jólin samt. Okkur líður bara
of boðslega vel í kyrrðinni og
rónni hérna við sjóinn. Það er
fátt sem toppar að sofna við
brimhljóðin í myrkrinu. Það er
rómantík í því,“ segir Myrra
Rós og unir hag sínum vel.
Jólaskraut úr gömlu orgel
pípunum fæst í Kirsuberja
trénu, Vesturgötu 4 í Reykjavík.
Einnig er hægt að panta það og fá
sent hvert á land sem er í gegnum
Facebooksíðu Fjaðrafoks og net
fanginu fjadrafokwoodworks@
gmail.com.
Fallegur tindáti og
bangsi úr orgel
pípum gera jólin
enn fegurri.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 948