Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 69

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 69
Þegar orgel­ pípurnar hafa verið bræddar er þeim hellt í mót og þær verða að undurfögru jólaskrauti. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Jólaskrautið sem unnið er úr gömlu orgelpípun­ um glitrar fal­ lega í rauðum borðum á þessu stáss­ lega hrein­ dýrshorni. Myrra Rós og Júlíus Óttar búa í gömlu, jólalegu húsi við Stokkseyrarströnd. Hér má sjá feðgana Björgvin Tómasson og Júlíus Óttar skemmta sér við að bræða gamlar orgelpípur í fallegt jólaskraut. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Við fluttum inn í húsið okkar á Stokkseyri nokkrum dögum fyrir jólin 2017 og eitt það fyrsta sem við settum inn í húsið var jólatré. Það var mikil gleðistund. Við hjónin erum jóla­ börn í hjörtum okkar og höfum gaman af því að skreyta smá, baka smákökur og hafa það notalegt með fjölskyldunni yfir hátíð­ arnar. Það skiptir mestu máli,“ segir Myrra Rós Þrastardóttir, tónlistarkona og listkúnstner, sem er með vinnuborð hjá þeim sem hún kallar heimsins besta tengda­ pabba; Björgvini Tómassyni orgelsmið. Þar skapar Myrra Rós íðilfagra vængi unna úr spæni og viði. „Ég hef verið starfandi tón­ listarkona síðan 2009 en síðustu þrjú árin hef ég einbeitt mér að verkefninu Fjaðrafoki. Ég reyni að endurnýta sem mest í þeirri framleiðslu og má til gamans geta að allir grunnar fyrir vængina eru affall frá orgelsmíði tengdapabba sem fannst þessi verk svo flott hjá mér að hann plantaði mér niður á besta stað í smiðjunni, við glugga með útsýni yfir sjóinn,“ segir Myrra Rós sæl. Endurnýtingin mikilvæg Þau Myrra Rós og eiginmaður hennar, Júlíus Óttar, starfa bæði við tónlist en þó sitt í hvoru lagi. Júlíus er meðlimur síðrokkssveit­ arinnar VAR og Myrra Rós kemur fram undir eigin nafni. „Júlíus vinnur í Orgelsmiðju Rómantísk jól undir stjörnumergð Í gömlu, fallegu húsi við ströndina á Stokkseyri bræða ung hjón gamlar orgelpípur og skapa úr þeim gamaldags, rómantískt jólaskraut sem kætir og gleður á hátíð kærleikans. Þau segja stjörnurnar bjartari við sæinn og una sér vel í jólakyrrð og brimróti. Björgvins Tómassonar, föður síns, og hefur í raun gert það síðan hann var sex ára gamall og byrjaði að fara með pabba sínum í ferðir til að stilla orgel,“ upplýsir Myrra Rós um sinn heittelskaða sem stendur hjá í smiðjunni og bræðir gamlar orgelpípur sem síðan verða að gullfallegu jóla­ skrauti. „Jólaskrautið er upprunalega hugmynd frá Björgvini tengda­ pabba. Hann var með jólamarkað í Orgelsmiðjunni fyrir nokkrum árum og framleiddi þetta skraut fyrir markaðinn. Svo fyrir stuttu fann ég nokkur stykki og spurði hvort ég ætti ekki að fara með þau í Kirsuberjatréð, þar sem ég er með verkin frá Fjaðrafoki til sölu, og athuga hvort fólk tæki vel í þetta fyrir jólin. Það varð heldur betur þannig og Björgvin hvatti okkur Júlíus til að taka við jólaskrauts kyndlinum og framleiða jólaskrautið undir nafni Fjaðrafoks,“ útskýrir Myrra Rós og handleikur fallega bangsa, jólabjöllur og jólatré úr gömlu orgelpípunum. „Við höfum alltaf reynt að endur­ nýta efniviðinn sem við notum í sköpun okkar og framleiðslu. Að bræða gamlar, beyglaðar orgel­ pípur og gefa þeim framhaldslíf finnst okkur mjög sniðugt og ekki skemmir fyrir hvað þetta er fallegt. Það er einhver gamaldags róman­ tík í þessu,“ segir Myrra Rós sem endurvinnur líka mikið og upp­ nýtir í framleiðslu Fjaðrafoks. Líður vel í kyrrð og brimróti Eftir tvenn jól við suðurströndina eru Myrra Rós og Júlíus Óttar enn að búa til sínar hefðir. „Við eldum hnetusteik á aðfangadag, opnum nokkra pakka og höfum það huggulegt tvö saman. Fyrir mér byrja jólin hins vegar ekki fyrr en dóttir mín, Lára Þöll, kemur til okkar á jóladag. Þá borðum við hangikjöt með öllu tilheyrandi, opnum fleiri pakka og horfum á góða jólamynd en myndin Nightmare Before Christmas verður oft fyrir valinu á þessu heimili,“ segir Myrra Rós í vetrarríki sveitasælunnar þar sem máninn merlar á sænum. „Ég verð að segja að stjörn­ urnar eru bjartari í myrkrinu hérna á Stokkseyri. Ekkert bara um jólin samt. Okkur líður bara of boðslega vel í kyrrðinni og rónni hérna við sjóinn. Það er fátt sem toppar að sofna við brimhljóðin í myrkrinu. Það er rómantík í því,“ segir Myrra Rós og unir hag sínum vel. Jólaskraut úr gömlu orgel­ pípunum fæst í Kirsuberja­ trénu, Vesturgötu 4 í Reykjavík. Einnig er hægt að panta það og fá sent hvert á land sem er í gegnum Facebook­síðu Fjaðrafoks og net­ fanginu fjadrafokwoodworks@ gmail.com. Fallegur tindáti og bangsi úr orgel­ pípum gera jólin enn fegurri. JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 948
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.