Fréttablaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 143
VIÐ ERUM MEÐ ALVEG
EINSTAKAN HÓP SEM
STENDUR VAKTINA SAMA
HVAÐA DAGUR ER OG VILL ALLT
FYRIR SKJÓLSTÆÐINGANA
OKKAR GERA.
Elísabet Brynjarsdóttir
ÞETTA BLUNDAÐI SVO
BARA Í OKKUR
ÞANGAÐ TIL VIÐ SÁUM FYRSTA
KLIPPIÐ OG FUNDUM AÐ VIÐ
BARA YRÐUM AÐ GERA ÞETTA.
VEGNA ÞESS AÐ OKKUR FANNST
SENAN SVO STERK OG HÚN SAT
SVO Í OKKUR.
Lilja Ósk Snorradóttir
Við pökkum inn jólunum með bestu jólatónlistinni!
Jólastöðin þín
Leikstjórinn og handrits-höfundurinn Rúnar Rún-arsson fléttar í sinni nýj-ustu kvikmynd saman 58 örsögur sem allar eiga sér stað á aðventunni
og síðustu dögum ársins 2018 og
endurspegla íslenskan veruleika í
brotakenndri heild skyndimynda.
Eitt þessara spegilbrota sýnir
samskipti skjólstæðings og hjúkr-
unarfræðings í skaðaminnkunar-
bílnum Frú Ragnheiði. „Þetta er
auðvitað leikin sena þar sem reynt
er að endurspegla á raunsæjan
hátt komu fólks í bílinn til okkar í
kringum jólin,“ segir Elísabet Brynj-
arsdóttir, hjúkrunarfræðingur Frú
Ragnheiðar, sem segja má að leiki
einhvers konar útgáfu af sjálfri sér
í Bergmáli.
„Ég er ekki búin að sjá þetta en
mæti á styrktarsýninguna. Ég fékk
nokkur skilaboð eftir frumsýning-
una um að þetta hefði verið mjög
átakanleg en falleg sena og er bara
spennt að sjá.“
Óvæntur jólaglaðningur
Elísabet segir að þótt Frú Ragnheið-
ur sé í grunninn nálaskiptiþjónusta
með áherslu á skaðaminnkun þá
sé mannlegi þátturinn öllum sem
að verkefninu koma efstur í huga.
„Hann er rosalega mikilvægur hluti
af verkefninu okkar og það er ótrú-
lega fallegt og snertir við okkur í
Ragnheiði að leikstjórinn og fram-
leiðendurnir hafi viljað halda sér-
staka styrktarsýningu fyrir okkur.
Við erum auðvitað bara fjár-
mögnuð á styrkjum og þurfum á
öllum peningum að halda og erum
að fara að undirbúa jólin en undan-
farin ár höfum við verið með jóla-
gjafir í bílnum og dreifum þeim til
skjólstæðinga okkar viku fyrir jól
og á aðfangadag,“ segir Elísabet og
bendir á að Ragnheiður ekur alltaf
sinn rúnt, sex sinnum í viku, virka
daga sem og stórhátíðisdaga.
„Þau vissu að Frú Ragnheiður
keyrir um jólin og aðstoðar skjól-
stæðinga og þess vegna hugsuðu
þau til okkar þar sem myndin á í
raun að endurspegla jólin frá mis-
munandi sjónarhornum.“
Frú Ragnheiður dreifir einnig mat
og hlýjum fatnaði til skjólstæðinga
sinna en Elísabet segir velvilja fjölda
fólks og fyrirtækja úti um allan bæ
gera þeim þetta mögulegt.
„Við erum með þessar jólagjafir
og mikið um góðhjartað fólk úti
um allan bæ sem er að prjóna fyrir
okkur þannig að við gefum húfur,
vettlinga, sokka og svona.“ Að
ógleymdum þessum „félagsskap,
sálræna stuðningi og mannlegu
nánd sem allir þurfa“.
Einstakur hópur á ferð
„Þessi hugmynd kviknaði fyrst
í raun bara alveg strax eftir tök-
urnar,“ segir Lilja Ósk Snorradóttir,
framleiðandi hjá Pegasus, um sýn-
inguna á morgun. „Þetta blundaði
svo bara í okkur þangað til við
sáum fyrsta klippið og fundum að
við bara yrðum að gera þetta. Vegna
þess að okkur fannst senan svo
sterk og hún sat svo í okkur,“ segir
Lilja sem telur óhætt að fullyrða að
aldrei áður hafi verið gerð „önnur
eins kvikmynd, hvað þá jólamynd“,
og Bergmál.
„Jólin eru ótrúlega sérstakur og
að mínu mati bara yndislegur tími
hjá okkur í Frú Ragnheiði,“ segir
Elísabet þegar talið berst að þeim
um um það bil 100 sjálfboðaliðum
sem skiptast á að standa vaktina í
bílnum. „Við erum með alveg ein-
stakan hóp sem stendur vaktina
sama hvaða dagur er og vill allt
fyrir skjólstæðingana okkar gera,“
segir Elísabet og bætir við að fyrst
og fremst treysti heimilislausir
og sprautufíklar með fjölþættan
vímuefnavanda á Frú Ragnheiði.
Harmurinn í fegurðinni
Jólavaktir Frú Ragnheið-
ar vega þungt í huga
Elísabetar vegna þess
að skortur og sárar
tilfinningar hafa
tilhneigingu til að
magnast í birtu
j ó l a l j ó s a n n a .
„Þess vegna finnst mér svo dýrmætt
að sjálf boðaliðarnir okkar séu til-
búnir að standa vaktina óháð því
hvaða dagur er til þess að geta veitt
þessa mannlegu nánd og sálrænan
stuðning. Jólin eru einstakur tími
og ég kemst alla vega ekki í jóla-
skap án þess að taka vakt í Frúnni
í kringum jólin.“
Elísabet segir tilfinningatenging-
una milli sjálfboðaliðanna og skjól-
stæðinganna mögulega vegna þess
einstaka trausts sem Rauði kross-
inn og Frú Ragnheiður hafa náð að
byggja upp í gegnum árin.
„Skjólstæðingarnir okkar treysta
okkur mjög vel og það er alveg
ómetanlegt og dýrmætt fyrir verk-
efnið okkar. Við gætum náttúrlega
ekki starfað án þess að hafa traust
þeirra.
Þau vilja leita til okkar á
sínum forsendum og það
er svo dýrmætt í öllum
þessum samskiptum,
sérstaklega einmitt
svona í k r ing um
jólin þegar erfiðar
aðstæður geta mögu-
lega oft orðið ennþá
erf iðari í ljósi þess
hvernig allt á að vera.“
toti@frettabladid.is
Rúntar með
sprautunálar
og ullarsokka
Skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður
kemur við örsögu í Bergmáli eftir Rúnar
Rúnarsson. Atriðið snart aðstandendur
myndarinnar svo djúpt að þau ákváðu að
styrkja sprautubílinn góða með sérstakri
sýningu í Háskólabíói annað kvöld.
Skjólstæðingur leitar til Frú Ragnheiðar í aðdraganda jóla í einni þeirra tæplega sextíu örsagna sem verðlaunaleik-
stjórinn Rúnar Rúnarsson fléttar saman í sinni nýjustu kvikmynd, Bergmál.
Skaðaminnkun
Frú Ragnheiðar
Frú Ragnheiður – skaðaminnkun
var sett á laggirnar árið 2009
og byggir á hugmyndafræði
skaða minnkunar. Verkefnið
hefur þann tilgang að ná til
jaðarsettra hópa í samfélaginu
eins og húsnæðislausra ein-
staklinga og einstaklinga sem
nota vímuefni um æð og bjóða
þeim skaða minnkandi þjónustu
í formi heilbrigðisþjónustu og
nálaskiptiþjónustu. Frú Ragn-
heiðar bíllinn er sérinnréttaður
til að veita slíka þjónustu á vett-
vangi og þjónustar einstaklinga
á öllu höfuðborgarsvæðinu sex
kvöld í viku frá 18.00-21.00.
Árið 2018 leituðu 455 ein-
staklingar til Frú Ragnheiðar,
heimsóknir voru 3.854 talsins og
fargaði verkefnið 2.670 lítrum af
notuðum sprautubúnaði.
www.raudikrossinn.is
Styrktarsýning
Frú Ragnheiðar
Íslenska kvikmyndin Bergmál
verður sýnd í Háskólabíói á
sérstakri styrktarsýningu fyrir
Frú Ragnheiði klukkan 18 mið-
vikudaginn 27. nóvember. Allur
ágóði af miðasölu mun renna til
skaðaminnkunarverkefnisins og
skjólstæðinga þess.
Hjúkrun-
arfræðingurinn
Elísabet Brynjars-
dóttir stendur vaktina
í Frú Ragnheiði og bíður
spennt eftir því að sjá
sjálfa sig í hlutverki stall-
systur sinnar á hvíta
tjaldinu í Háskóla-
bíói.
2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð