Fréttablaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 41
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Ég baka alltaf smákökur eins og mamma og amma gerðu en mér finnst líka gaman að
prófa nýjar uppskriftir og á orðið
dágott matreiðslubókasafn. Á
aðfangadag er ég með mjög fastar
hefðir og elda alltaf það sama;
beikonvafinn humar með sítrónu-
sósu, fyllta aligæs og sérrífrómas
og toblerone-ís. Hins vegar eru
engar reglur á gamlárskvöld og þá
elda ég bara það sem mér dettur í
hug hverju sinni. Ég hef verið með
antilópu, fasana og stokkönd á
þeim tímamótum. Um leið og ég
byrja að undirbúa matinn kemst
ég í jólaskap,“ segir Anna Björk,
sem heldur úti uppskriftasíðunni
www.annabjork.is en hún hefur
mikinn áhuga á matargerð. Þar
má finna fjölbreyttar og ljúffeng-
ar uppskriftir sem kitla sannar-
lega bragðlaukana.
„Ég kunni ekkert að elda þegar
ég f lutti úr foreldrahúsum en
áhuginn hefur vaxið með árunum
og mér finnst eldamennska bæði
skemmtileg og um leið ákveðin
tjáning. Það er gaman að bera á
borð eitthvað fallegt og gott fyrir
fjölskyldu og vini. Það er eins
og lítil ástarjátning,“ segir Anna
Björk.
Í nóvember er hins vegar
lítill tími fyrir eldamennsku eða
bakstur því þá er hún önnum
kafin við að undirbúa jólakaffi
og -happdrætti Hringsins, sem
haldið verður í Hörpu þann 1. des-
ember. „Jólakaffið er einstaklega
vinsælt og börnin skemmta sér
alltaf svo vel. Við eigum von á um
eitt þúsund manns í kaffi svo það
er í nógu að snúast þessa dagana.
Allt starf Hringskvenna er unnið
í sjálf boðavinnu og allt fé sem
safnast rennur óskert í Barnaspít-
alasjóð Hringsins en við styrkjum
líka BUGL og heimili fyrir ein-
hverf börn. Þessi dagur er einn af
hápunktunum í því fallega starfi
sem Hringskonur sinna allt árið
um kring,“ segir Anna Björk.
MACADAMIA- OG
TRÖNUBERJAKÖKUR MEÐ
HVÍTU SÚKKULAÐI
Um 55 kökur
600 g hvítt súkkulaði, saxað
200 g smjör, mjúkt
2 egg
80 g ljós púðursykur
20 g dökkur púðursykur
175 g sykur
2 tsk. vanilludropar
350 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
100 g þurrkuð trönuber
100 g grófsaxaðar macadamia-
hnetur
Hitið ofninn í 180°C. Bræðið 170 g
af súkkulaðinu yfir vatnsbaði og
látið kólna lítillega. Þeytið smjör,
egg, sykur og vanillu saman við
bráðið súkkulaðið með rafmagns-
þeytara, þar til blandan er orðin
létt og ljós. Hrærið hveiti, lyfti-
dufti, kanil og ⅔ af því sem eftir er
af súkkulaðinu, ⅔ af trönuberjum
og ⅔ af hnetunum varlega saman
við þar til deigið verður þétt og
hangir vel saman. Klæðið bök-
unarplötu með bökunarpappír.
Setjið deigið með teskeið á plötuna
með góðu millibili. Stingið því sem
eftir er af súkkulaðinu, hnetunum
og berjunum ofan í kökurnar og
bakið í 12 mín. eða þar til kök-
urnar eru gylltar og fagrar. Látið
kökurnar kólna í smástund áður
en þær eru teknar af plötunni.
Setjið svo á grind til að þær kólni
alveg.
ROLO-KÖKUR MEÐ
SJÁVARSALTI
Um 40 kökur
225 g mjúkt smjör
225 sykur
2 eggjarauður
2 msk. mjólk
250 g hveiti
30 g kakó
¼ tsk. salt
U.þ.b. 40 pakkar Rolo
Sjávarsalt frá Saltverki eða
Maldon
Þeytið smjör og sykur í hrærivél
þar til blandan verður ljós og létt.
Setjið eggjarauðurnar í glas og
þeytið létt með gaff li. Bætið þeim
smám saman út í. Hellið mjólkinni
í glasið, hrærið lítillega og hellið
svo út í deigið og hrærið áfram.
Sigtið saman hveiti og kakó og
hrærið varlega saman við með
sleif og saltið. Pakkið því næst
deiginu í plast og geymið í ísskáp
í nokkra klukkutíma eða yfir
nótt. Hitið ofninn í 180°C. Klæðið
bökunarplötur með bökunar-
pappír. Takið deigið úr kæli, búið
til kúlur á stærð við valhnetur
úr deiginu með því að rúlla því á
milli handanna. Setjið á bökunar-
plötu og gætið þess að hafa gott bil
á milli þeirra því þær stækka við
baksturinn. Þrýstið síðan einum
mola af Rolo létt ofan á hverja
kúlu og sáldrið nokkrum salt-
kornum ofan á. Bakið í 12-15 mín.
eða þar til kökurnar virka þurrar
og svolítið sprungnar á toppnum.
Takið úr ofninum og látið kökurn-
ar standa í 5 mín. áður en þær eru
kældar á grind.
Lítil ástarjátning
Anna Björk er mikill snillingur í eldhúsinu. Hér gefur hún uppskriftir að
mjög girnilegum smákökum fyrir jólin. „Mér finnst gaman að prófa nýjar
uppskriftir og á dágott matreiðslubókasafn,“ segir hún.
Macadamia-
og trönu-
berjakökur
með hvítu
súkkulaði.
Rolo-kökur
með sjávar-
salti.
Anna Björk Eðvarðsdóttir,
formaður kvenfélagsins
Hringsins, byrjar jóla-
baksturinn í desember.
Hún gefur uppskriftir að
tveimur smákökusortum
sem sannarlega kitla
bragðlaukana.
Verð frá 94.999 kr.
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem
er. Búa til heita súpu
og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Jólagjöfin í ár
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ascent serían frá Vitamix
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 920