Fréttablaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 55
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Mér finnst aðventan yndis-leg og vil njóta hennar með fjölskyldu og vinum.
Við borðum saman góðan mat og
förum á jólatónleika. Yfirleitt er
ég búin að kaupa allar jólagjafir
og skrifa jólakort í nóvember því
í desember vil ég hafa nógan tíma
til að vinna fyrir Bumbuloní,“ segir
Ásdís Arna, framkvæmdastjóri hjá
Five Degrees.
Bumbuloní er góðgerðarfélag
sem hún stofnaði til minningar um
son sinn, Björgvin Arnar, sem lést
langt um aldur fram árið 2013, þá
sex ára gamall. Allur ágóði af sölu
á jólakortum og öðrum varningi
rennur beint til fjölskyldna lang-
veikra barna. Í fyrra styrkti góð-
gerðarfélagið tólf fjölskyldur og
í ár er markmiðið að styrkja
að minnsta kosti jafnmargar
fjölskyldur.
Jólin voru oft erfið
„Björgvin minn var mikið
jólabarn en oft voru jólin
erfið og vegna veikinda
hans var erfitt að halda
uppi hefðbundnu jólahaldi.
Ég er svo lánsöm að eiga tvö
ung börn og tvö stjúpbörn, sem
öll eru mikil jólabörn. Mig langar
til að þau alist upp við skemmti-
legar jólahefðir, sem þau taka svo
með sér út í lífið. Það er fremur
nýtt fyrir mér að líta á jólin sem
hamingjutíma en núna nýt ég
þeirra í botn,“ segir Ásdís, sem er
gift Ægi Finnbogasyni matreiðslu-
meistara.
Hún segir ekki síst Ægi að þakka
hversu mikið jólabarn hún sjálf sé
orðin. „Hann er frá Bolungarvík og
er alinn upp í sterkum jólahefðum.
Við borðum vestfirska skötu á
Þorláksmessu sem tengdapabbi
verkar sjálfur. Ég var ekki vön
skötu en var alveg til í að smakka
hana og finnst hún dásamleg. Mér
finnst jólin koma með skötuveisl-
unni með stórfjölskyldunni.
Á aðfangadag eru rjúpur og á
jóladag er hreindýra steik með öllu
tilheyrandi í matinn. Svo erum
við með dásamlega góðan,
heimalagaðan ís í eftirmat,“
segir Ásdís með bros á vör.
Þegar hún er spurð hvað
henni finnist skemmti-
legast að gera fyrir
jólin segir Ásdís að litlu
hlutirnir gefi sér mikið.
„Mér finnst best að vera
í stresslausu umhverfi
og njóta stundarinnar, t.d.
spila tónlist og dúllast heima. Það
gefur mér líka mikið að vinna
fyrir Bumbuloní og minnast
sonar míns. Það má því segja að
aðventan hjá okkur snúist um
fjölskylduna, vini og ríkar matar-
hefðir,“ segir Ásdís Arna að lokum.
SALTKARAMELLU
SÚKKULAÐI HINDBERJAÍS
fyrir 6
½ l rjómi
8 eggjarauður
1 bolli púðursykur
Fræ úr einni vanillu
stöng
150 g saltkaramellu rjómasúkku
laði, saxað
100 g hindber, skorin í helminga
Þeytið rjómann. Þeytið eggja-
rauður, púðursykur og vanillufræ
vel saman svo blandan verði létt
og ljós. Blandið rjómanum varlega
saman við. Setjið saxað saltkara-
mellusúkkulaðið rólega út í og
hrærið varlega saman. Bætið hind-
berjum út í blönduna.
Setjið allt saman í form, setjið
plastfilmu yfir og pakkið vel inn
og setjið í frysti. Takið ísinn úr
frysti 15 mínútum áður en hann er
borinn fram.
BALSAMICO
HINDBERJASÓSA
2 msk. balsamico Modena
6 hindber
Vanillubelgur
Setjið allt saman í pott, hleypið
suðunni upp og stappið berin
saman við. Takið vanillubelginn
frá, kælið sósuna og berið fram
með ísnum.
Skatan kemur með
jólin inn á heimilið
Ásdís Arna Gottskálksdóttir byrjar snemma að undirbúa jólin því vikurnar
fyrir hátíðarnar sinnir hún góðgerðarstarfi í þágu langveikra barna og
fjölskyldna þeirra. Hún vill halda jólin í stresslausu umhverfi og njóta.
Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur
mikla ánægju af jólunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Glæsilegur réttur. Saltkaramellu súkkulaði hindberjaís að hætti Ásdísar Örnu.
Veldu milli sex mismunandi karfa og bættu við
annarri matvöru, víni eða g jafavöru. Við sjáum
um pökkunina þér að kostnaðarlausu.
Frábær jólag jöf til viðskiptavina eða starfsmanna.
Kíktu á ms.is - einfalt og fljótlegt.
J Ó L A G J Ö F S Æ L K E R A N S
Gómsætar jólagjafir
„Við borðum vestfirska skötu á Þor-
láksmessu sem tengdapabbi verkar
sjálfur,“ segir Ásdís Arna.
Það má því segja
að aðventan hjá
okkur snúist um fjöl-
skylduna, vini og ríkar
matarhefðir.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 934