Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 55

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 55
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Mér finnst aðventan yndis-leg og vil njóta hennar með fjölskyldu og vinum. Við borðum saman góðan mat og förum á jólatónleika. Yfirleitt er ég búin að kaupa allar jólagjafir og skrifa jólakort í nóvember því í desember vil ég hafa nógan tíma til að vinna fyrir Bumbuloní,“ segir Ásdís Arna, framkvæmdastjóri hjá Five Degrees. Bumbuloní er góðgerðarfélag sem hún stofnaði til minningar um son sinn, Björgvin Arnar, sem lést langt um aldur fram árið 2013, þá sex ára gamall. Allur ágóði af sölu á jólakortum og öðrum varningi rennur beint til fjölskyldna lang- veikra barna. Í fyrra styrkti góð- gerðarfélagið tólf fjölskyldur og í ár er markmiðið að styrkja að minnsta kosti jafnmargar fjölskyldur. Jólin voru oft erfið „Björgvin minn var mikið jólabarn en oft voru jólin erfið og vegna veikinda hans var erfitt að halda uppi hefðbundnu jólahaldi. Ég er svo lánsöm að eiga tvö ung börn og tvö stjúpbörn, sem öll eru mikil jólabörn. Mig langar til að þau alist upp við skemmti- legar jólahefðir, sem þau taka svo með sér út í lífið. Það er fremur nýtt fyrir mér að líta á jólin sem hamingjutíma en núna nýt ég þeirra í botn,“ segir Ásdís, sem er gift Ægi Finnbogasyni matreiðslu- meistara. Hún segir ekki síst Ægi að þakka hversu mikið jólabarn hún sjálf sé orðin. „Hann er frá Bolungarvík og er alinn upp í sterkum jólahefðum. Við borðum vestfirska skötu á Þorláksmessu sem tengdapabbi verkar sjálfur. Ég var ekki vön skötu en var alveg til í að smakka hana og finnst hún dásamleg. Mér finnst jólin koma með skötuveisl- unni með stórfjölskyldunni. Á aðfangadag eru rjúpur og á jóladag er hreindýra steik með öllu tilheyrandi í matinn. Svo erum við með dásamlega góðan, heimalagaðan ís í eftirmat,“ segir Ásdís með bros á vör. Þegar hún er spurð hvað henni finnist skemmti- legast að gera fyrir jólin segir Ásdís að litlu hlutirnir gefi sér mikið. „Mér finnst best að vera í stresslausu umhverfi og njóta stundarinnar, t.d. spila tónlist og dúllast heima. Það gefur mér líka mikið að vinna fyrir Bumbuloní og minnast sonar míns. Það má því segja að aðventan hjá okkur snúist um fjölskylduna, vini og ríkar matar- hefðir,“ segir Ásdís Arna að lokum. SALTKARAMELLU SÚKKULAÐI HINDBERJAÍS fyrir 6 ½ l rjómi 8 eggjarauður 1 bolli púðursykur Fræ úr einni vanillu­ stöng 150 g saltkaramellu rjómasúkku­ laði, saxað 100 g hindber, skorin í helminga Þeytið rjómann. Þeytið eggja- rauður, púðursykur og vanillufræ vel saman svo blandan verði létt og ljós. Blandið rjómanum varlega saman við. Setjið saxað saltkara- mellusúkkulaðið rólega út í og hrærið varlega saman. Bætið hind- berjum út í blönduna. Setjið allt saman í form, setjið plastfilmu yfir og pakkið vel inn og setjið í frysti. Takið ísinn úr frysti 15 mínútum áður en hann er borinn fram. BALSAMICO HINDBERJASÓSA 2 msk. balsamico Modena 6 hindber Vanillubelgur Setjið allt saman í pott, hleypið suðunni upp og stappið berin saman við. Takið vanillubelginn frá, kælið sósuna og berið fram með ísnum. Skatan kemur með jólin inn á heimilið Ásdís Arna Gottskálksdóttir byrjar snemma að undirbúa jólin því vikurnar fyrir hátíðarnar sinnir hún góðgerðarstarfi í þágu langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Hún vill halda jólin í stresslausu umhverfi og njóta. Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur mikla ánægju af jólunum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Glæsilegur réttur. Saltkaramellu súkkulaði hindberjaís að hætti Ásdísar Örnu. Veldu milli sex mismunandi karfa og bættu við annarri matvöru, víni eða g jafavöru. Við sjáum um pökkunina þér að kostnaðarlausu. Frábær jólag jöf til viðskiptavina eða starfsmanna. Kíktu á ms.is - einfalt og fljótlegt. J Ó L A G J Ö F S Æ L K E R A N S Gómsætar jólagjafir „Við borðum vestfirska skötu á Þor- láksmessu sem tengdapabbi verkar sjálfur,“ segir Ásdís Arna. Það má því segja að aðventan hjá okkur snúist um fjöl- skylduna, vini og ríkar matarhefðir. JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 934
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.