Fréttablaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 25
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Í Hofsprestakalli er mikið barnastarf allan veturinn og á aðventunni er alltaf meiri
gleði en venjulega. „Barnastarfið
er fjórum til fimm sinnum í viku.
Á aðventunni koma börnin í
kirkjuna og við spjöllum um til
gang jólanna og gírum okkur upp
í að vera þakklát og njóta samveru
með fólkinu okkar á jólunum,“
segir Þuríður.
Í kirkjunni föndra börnin og
borða mikið af piparkökum,
búa til brjóstsykur og æfa helgi
leik. „Það eru þrjár kirkjur hér
í þessu prestakalli og ég sinni
þeim öllum,“ segir Þuríður, „Í
byrjun desember eru aðventu
kvöld í öllum kirkjunum og svo
eru messur á aðfangadag, jóladag,
annan í jólum og nýársdag.“ Það er
því nóg að gera hjá Þuríði og lítið
um jólafrí, en hún segir það ekki
koma að sök þar sem vinnan sé svo
skemmtileg.
„Messurnar eru mjög vel sóttar
á jólunum, það er yfirleitt alltaf
full kirkja. Messan á aðfangadag er
klukkan 17 á Vopnafirði, það hefur
alltaf verið þannig þar. Á Bakka
firði er messa í Skeggjastaðakirkju
á jóladag og svo er messa í Hofs
kirkju og á elliheimilinu á jóladag
líka,“ segir Þuríður. „Jólin eru
mikill gleðitími í starfinu. Kirkjan
er full af lífi á þessum tíma og það
er mikið um að vera. Margir sækja
kirkju aðallega á stórhátíðum svo
það koma fleiri í kirkjuna en á
venjulegum sunnudegi.“
En þrátt fyrir að jólin séu aðal
lega gleðitími í kirkjunni eru
þau erfiður tími líka. „Það er oft
meiri sálgæsla á þessum tíma en
á öðrum árstímum. Margir eiga
um sárt að binda í kringum jólin,
sérstaklega þeir sem hafa misst
einhvern nákominn á árinu eða
jafnvel fyrr. Kirkjan sinnir líka
sérstakri fjárhagsaðstoð fyrir jólin
fyrir fjölskyldur sem þurfa á henni
að halda. Þó að jólin séu tími gleði
og hamingju fyrir f lesta er fullt af
fólki sem upplifir þau ekki á þann
hátt og þá reynir kirkjan að koma
til móts við það fólk og aðstoða
það,“ segir Þuríður.
Þuríður segir að þessi þjónusta
kirkjunnar sé mikilvæg, hún er
ókeypis og er stuðningur fyrir
fólk. „Það eru samverustundir í
mjög mörgum kirkjum um allt
land fyrir fólk sem upplifir sorg
á þessum tíma. Það er mikilvægt
að geta komið saman með öðrum
sem upplifa það sama og geta tjáð
tilfinningar sínar og fá styrk frá
öðrum.“
Þuríður vígðist til prests fyrir
tveimur árum og hefur sinnt Hofs
prestakalli síðan þá. Hún segir
að sér finnist kirkjan spennandi
vinnustaður. „Kirkjan vinnur
með fólki í öllum aðstæðum, bæði
á erfiðum stundum og gleðistund
um. Mér fannst það heillandi og
það er hluti ástæðunnar fyrir að
ég valdi þetta starf,“ segir Þuríður.
„Maður kynnist líka fólkinu í
sveitinni vel gegnum starfið. Ég
er uppalin á Vopnafirði og er þess
vegna komin heim aftur í allt öðru
hlutverki en ég var í þegar ég fór.
Ég er í allt annarri aðstöðu núna.
Mér þykir rosalega vænt um það
að fá að kynnast fólkinu hér á allt
annan hátt en ég þekkti það áður.“
Þuríður segir að lokum að í
hennar huga séu jólin tími fyrir
tengsl og samveru með fólkinu
sínu.
„Boðskapur jólanna er boð
skapur vonar. Vonarinnar um
betri og bjartari tíma en þau
eru um leið tækifæri til þess að
staldra við og njóta þess sem við
eigum hér og nú og rækta þakk
læti.“
Boðskapur vonar og bjartari tíma
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir, sóknarprestur í Hofsprestakalli í Vopnafjarðarhreppi, segir líf og gleði einkenna kirkjustarfið í
kringum jólahátíðina. En þó gleðin ríki hjá flestum á þessari hátíð ljóss og friðar segir hún að margir eigi um sárt að binda um jólin.
Þuríður fylgist með lítilli stúlku kveikja á kerti á aðventukvöldi í Vopnafjarðarkirkju. MYND/MAGNÚS MÁR ÞORVALDSSON
Ekki gefa bara eitthvað,
gefðu frekar hvað sem er.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert
mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður
upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 94