Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 25

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 25
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Í Hofsprestakalli er mikið barnastarf allan veturinn og á aðventunni er alltaf meiri gleði en venjulega. „Barnastarfið er fjórum til fimm sinnum í viku. Á aðventunni koma börnin í kirkjuna og við spjöllum um til­ gang jólanna og gírum okkur upp í að vera þakklát og njóta samveru með fólkinu okkar á jólunum,“ segir Þuríður. Í kirkjunni föndra börnin og borða mikið af piparkökum, búa til brjóstsykur og æfa helgi­ leik. „Það eru þrjár kirkjur hér í þessu prestakalli og ég sinni þeim öllum,“ segir Þuríður, „Í byrjun desember eru aðventu­ kvöld í öllum kirkjunum og svo eru messur á aðfangadag, jóladag, annan í jólum og nýársdag.“ Það er því nóg að gera hjá Þuríði og lítið um jólafrí, en hún segir það ekki koma að sök þar sem vinnan sé svo skemmtileg. „Messurnar eru mjög vel sóttar á jólunum, það er yfirleitt alltaf full kirkja. Messan á aðfangadag er klukkan 17 á Vopnafirði, það hefur alltaf verið þannig þar. Á Bakka­ firði er messa í Skeggjastaðakirkju á jóladag og svo er messa í Hofs­ kirkju og á elliheimilinu á jóladag líka,“ segir Þuríður. „Jólin eru mikill gleðitími í starfinu. Kirkjan er full af lífi á þessum tíma og það er mikið um að vera. Margir sækja kirkju aðallega á stórhátíðum svo það koma fleiri í kirkjuna en á venjulegum sunnudegi.“ En þrátt fyrir að jólin séu aðal­ lega gleðitími í kirkjunni eru þau erfiður tími líka. „Það er oft meiri sálgæsla á þessum tíma en á öðrum árstímum. Margir eiga um sárt að binda í kringum jólin, sérstaklega þeir sem hafa misst einhvern nákominn á árinu eða jafnvel fyrr. Kirkjan sinnir líka sérstakri fjárhagsaðstoð fyrir jólin fyrir fjölskyldur sem þurfa á henni að halda. Þó að jólin séu tími gleði og hamingju fyrir f lesta er fullt af fólki sem upplifir þau ekki á þann hátt og þá reynir kirkjan að koma til móts við það fólk og aðstoða það,“ segir Þuríður. Þuríður segir að þessi þjónusta kirkjunnar sé mikilvæg, hún er ókeypis og er stuðningur fyrir fólk. „Það eru samverustundir í mjög mörgum kirkjum um allt land fyrir fólk sem upplifir sorg á þessum tíma. Það er mikilvægt að geta komið saman með öðrum sem upplifa það sama og geta tjáð tilfinningar sínar og fá styrk frá öðrum.“ Þuríður vígðist til prests fyrir tveimur árum og hefur sinnt Hofs­ prestakalli síðan þá. Hún segir að sér finnist kirkjan spennandi vinnustaður. „Kirkjan vinnur með fólki í öllum aðstæðum, bæði á erfiðum stundum og gleðistund­ um. Mér fannst það heillandi og það er hluti ástæðunnar fyrir að ég valdi þetta starf,“ segir Þuríður. „Maður kynnist líka fólkinu í sveitinni vel gegnum starfið. Ég er uppalin á Vopnafirði og er þess vegna komin heim aftur í allt öðru hlutverki en ég var í þegar ég fór. Ég er í allt annarri aðstöðu núna. Mér þykir rosalega vænt um það að fá að kynnast fólkinu hér á allt annan hátt en ég þekkti það áður.“ Þuríður segir að lokum að í hennar huga séu jólin tími fyrir tengsl og samveru með fólkinu sínu. „Boðskapur jólanna er boð­ skapur vonar. Vonarinnar um betri og bjartari tíma en þau eru um leið tækifæri til þess að staldra við og njóta þess sem við eigum hér og nú og rækta þakk­ læti.“ Boðskapur vonar og bjartari tíma Þuríður Björg Wiium Árnadóttir, sóknarprestur í Hofsprestakalli í Vopnafjarðarhreppi, segir líf og gleði einkenna kirkjustarfið í kringum jólahátíðina. En þó gleðin ríki hjá flestum á þessari hátíð ljóss og friðar segir hún að margir eigi um sárt að binda um jólin. Þuríður fylgist með lítilli stúlku kveikja á kerti á aðventukvöldi í Vopnafjarðarkirkju. MYND/MAGNÚS MÁR ÞORVALDSSON Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi. JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.