Fréttablaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 87
Við höldum í okkar jóla-hefðir og allt sem gefur góðan anda er í heiðri haft,“
segir listamaðurinn Aðalheiður
Eysteinsdóttir. Þótt hún sé komin
með starfsemi sína að mestu í
Alþýðuhúsið á Siglufirði mun hún
halda jólin í Freyjulundi með fjöl-
skyldu sinni. Þar er stór stofa enda
er Freyjulundur gamalt
samkomuhús sem
stendur miðja vegu milli
Akureyrar og Dalvíkur.
„Ég smíða í stofunni
minni og prjóna og eins
og aðrir horfi ég á sjón-
varpið.“ Jólatréð stendur
innan um timburdót og
skúlptúra. „Þetta er jólatré
sem ég smíðaði sjálf, skreytt
með fundnum hlutum og
heimagerðu skrauti, alls konar
munum sem við í fjölskyldunni
höfum gert, barnabörn, ömmur,
afar, systkini og frændfólk. En ég
hef líka ljósaseríu á því og einstaka
glitrandi kúlu, smá glimmer.“ Hún
segir tréð í raun það eina sem hún
skreyti fyrir jólin en auk þess geri
hún lítil jólatré og hafi úti í glugga.
Spurð af hverju tréð sé blátt, svarar
hún: „Ég hugsa það sem blágreni.“
Talsvert ber á kattafígúrum á
trénu og kringum það þegar það
er fullskreytt, að sögn Aðalheiðar
og hún útskýrir hvernig sú hefð
er tilkomin. „Við eigum læðu sem
eignaðist kettlinga um
tveimur mánuðum
fyrir jólin 2006, þeir
voru heldur betur orðnir
sprækir á aðfangadag og
klifruðu stöðugt í trénu. Svo mér
fannst kjörið að búa til spýtukett-
linga. Þessir sem voru lifandi hafa
eflaust haldið að ég hafi búið jóla-
tréð til handa þeim.“
Opið hús um helgar
Kattafígúrur eru list-
munir sem Aðalheiður
er orðin þekkt fyrir og
hún segir þær alltaf að
þróast. „Engir tveir kettir
eru eins. Yfir allt árið set
ég kubba í sérstakan kassa
sem merktur er jólakettir. Svo
þegar fer að líða að jólum fer ég að
tína þá upp og vinna úr þeim. Við
opnum heimili okkar og vinnu-
stofu fyrstu og síðustu aðventu-
helgina og á Þorláksmessu. Þá er
gestum boðið að skoða verkin
okkar sem hugsanlega gætu ratað í
jólapakka,“ útskýrir hún.
Þegar líður að jólum fjölgar á
heimilinu í Freyjulundi. „Börnin
mín eru orðin fullorðið fólk og
fjölskyldan er svolítið á tvist
og bast, sonur minn býr í Dan-
mörku og yngsta dóttir mín er í
Listaháskólanum í Reykjavík en
er skiptinemi úti í Aþenu. Elstu
dæturnar tvær búa á Akureyri
með fjölskyldur sínar. Þau koma
samt heim um jólin svo það verður
ástvinafundur.“
Litfagurt grænmetisfæði
Hvað borðað er á aðfangadags-
kvöld segir Aðalheiður alltaf
að breytast og engar hefðir séu
í því matarvali nú orðið. „Við
gerum alltaf einhverjar tilraunir
og erum aðallega með litfagurt
grænmetisfæði á aðfangadegi jóla.
Á jóladag hefur hangikjötsveislan
verið á undanhaldi og mun nú
víkja fyrir alls konar girnilegum
og framandi réttum. Laufa-
brauðið fær þó að vera með,
við leggjum mikið upp
úr laufabrauðsskurði á
heimilinu.“
Annan jólabakstur
segir Aðalheiður hafa
breyst mikið. „Það eru
ekki margar sortir af
smákökum, heldur er allt
sem bakað er sykur- og hveiti-
laust. En við erum með konfekt og
gotterí sem við gerum saman, oft
bara á meðan á annarri matargerð
stendur. Það gerist allt á stund og
stað. Við erum ekkert að farast
úr stressi yfir jólaundirbúningi
á mínu heimili, alls ekki. En við
hlökkum alltaf til samverunnar.
Fólk í fríum kemur heim og oft
erum við líka með aukagesti
hjá okkur, vini
og vandamenn.
Þetta er alltaf
dásamlegur
tími, jól og ára-
mót, fjölskyldu-
samvera með
ástvinum. Við
erum ekki mjög
bókstafstrúuð fjöl-
skylda en trúum á
allt sem gott er.“
Trúum á allt
sem gott er
Bláa spýtujólatréð hennar Aðalheiðar
Eysteinsdóttur myndlistarmanns er einstakt
listaverk sem stendur í stofunni í Freyjulundi í
Eyjafirði innan um tréfólk í raunstærð. Um jólin
fyllist stofan líka af lífi og kærleika.
Stofan í Freyjulundi er jafnframt vinnustofa og þar eru listaverk á hverju strái eftir heimilisfólkið. Kisurnar eiga eftir að verða meira áberandi þegar nær dregur jólum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Vefverslun og sölustaðir á oskabond.is
F
all
ega
r g
ers
em
ar
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 966