Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 4

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 4
Klikkuð Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Klikkuð Klikkuð Black Friday tilboðfrá 22. til 29. nóv. TOYOTA CHR Nýskráður: 2018 / Hybrid Sjálfskiptur / Ekinn: 49.000 km. Verð: 3.490.000 kr. Black Friday tilboð 3.190.000 kr. Rað.nr. 740457 -300.000 Rað.nr. 103715 PEUGEOT 3008 Nýskráður: 2012 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 103.000 km. Verð: 1.690.000 kr. Black Friday tilboð 990.000 kr. -700.000Rað.nr. 103641 CHEVROLET TRAX Nýskráður: 2014 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 70.000 km. Verð: 1.490.000 kr. Black Friday tilboð 990.000 kr. -500.000Rað.nr. 740429 HONDA CIVIC Nýskráður: 2012 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 123.000 km. Verð: 1.390.000 kr. Black Friday tilboð 990.000 kr. -400.000 NISSAN NOTE Nýskráður: 2016 / Dísel Beinskiptur / Ekinn: 82.000 km. Verð: 1.490.000 kr. Black Friday tilboð 990.000 kr. Rað.nr. 445933 -500.000 B irt m eð fyrirvara um m ynda- og textabrengl. Smelltu á notadir.benni.is Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is UMHVERFISMÁL Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Halldórs fiskvinnslu og f leiri um að fella úr gildi starfs- leyfi Umhverfisstofnunar til að urða sorp í Slökkum, nærri þéttbýli Bakkafjarðar í Langanesbyggð. Krafa kærenda var meðal annars studd þeim rökum að Umhverfis- stofnun hefði ekki staðið rétt að mati á aðstæðum í aðdraganda veitingar starfsleyfis. Fjarlægð frá íbúðabyggð sé innan við 500 metra og sama eigi við um grunnskólann. Auk þess sé um að ræða útivistar- svæði. Þá er á það bent að þurrkhjallar fyrir harðfisk séu innan 500 metra radíuss frá fyrirhuguðum urðunar- stað. Augljóst sé að skylt hafi verið að afla umhverfismats, en það var ekki gert. Að samanlögðu muni urðun sops hafa veruleg áhrif á umhverfi og samfélag á Bakkafirði og með því raska öryggi, lífsgæðum og fjárhagslegum hagsmunum. Umhverfisstofnun benti meðal annars á að fyrir liggi að Skipu- lagsstofnun hafi staðfest að ekki sé skylda til mats á umhverfisáhrif- um. Þá sé ekki nema að litlu leyti vikið frá viðteknum fjarlægðar- mörkum. Í málinu hafnaði Langanesbyggð málsástæðum kærenda. Samþykki heilbrigðisnefndar liggi fyrir og aðeins sé verið að veita leyfið til takmarkaðs tíma. Um sé að ræða enduropnun urðunarstaðar og þá kom fram af hálfu sveitarfélagsins að hús sem áður hýsti grunnskólann sé nú nýtt undir ferðaþjónustu. – jþ Mega urða á Bakkafirði þrátt fyrir nálæga fiskhjalla FERÐAÞJÓNUSTA Samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofunnar voru tekjur af þjónustuútflutningi 222,6 milljarðar króna á þriðja ársfjórð- ungi 2019. Útgjöld af innfluttri þjón- ustu voru 121,3 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd var jákvæður um 101,3 milljarða, það er 22,1 milljarði minna en á sama tíma árið 2018. Verðmæti þjónustuútf lutnings var 26 milljörðum króna lægra á þriðja ársfjórðungi 2019 en í fyrra. Það er 10,4 prósenta lækkun. Útflutningstekjur af ferðaþjónustu lækkuðu um 3,7 prósent á milli ára eða um 4,6 milljarða króna. Tekjur af samgöngum og f lutn- ingum á þriðja ársfjórðungi lækk- uðu um 18,3 milljarða króna eða 21,7 prósent. Mestur samdráttur var í tekjum af f lugi með farþega. Heildarverðmæti þjónustuút- flutnings á sama tímabili var 50,3 prósent, sem nam 112,1 milljarði króna. – bdj Lægri tekjur af ferðaþjónustu Á Bakkafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STJÓRNMÁL Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, viðraði nýlega hug- myndir um að verkalýðshreyfingin stigi á svið flokkspólitíkur, annað- hvort með eigin framboðslista eða með styrkjum til f lokka til að ná markmiðum hreyfingarinnar fram. Lögspekingar eru hins vegar ekki sannfærðir um að þetta samrýmist hlutverki hreyfingarinnar sam- kvæmt lögum. „Ég myndi segja að verkalýðs- hreyfingin ætti að fara varlega í að stofna stjórnmálaflokk eða styðja slíka flokka. Félögin eru samsett af hópi fólks sem þarf ekki endilega að eiga samleið með þeirri stjórnmála- skoðun,“ segir Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Hér ber að líta til félagafrelsis- ákvæðis stjórnarskrárinnar og 11. greinar Mannréttindasáttmálans um félagafrelsi. Gengið hafa dómar gegn Íslandi hjá Mannréttindadóm- stól Evrópu í Strassborg vegna þessa. Svo sem í máli Varðar Ólafssonar frá árinu 2010, er laut að gjöldum til Samtaka iðnaðarins og afstöðu þeirra samtaka til ýmissa pólitískra mála, svo sem aðildar að Evrópu- sambandinu. Elín Ósk Helgadóttir, aðjunkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir vísbendingar í lögum um að verkalýðsfélög sem slík geti ekki starfað sem stjórnmálaflokkar eða notað sjóði sína í framboð. „Í lögunum eru skýrar reglur um framlög sem stjórnmálasamtökum er heimilt að taka við frá einstökum lögaðila eða lögráða einstaklingi. Ljóst er að stéttarfélög fá fjárframlög eða afla sér fjármuna með öðrum og ólíkum hætti,“ segir Elín. Aðspurð um hvort verkalýðs- félög gætu stofnað framboð á ann- arri kennitölu segir hún það hæpið. „Miðað við hvernig lagaumhverfi stjórnmálaflokka er sett upp ann- ars vegar og stéttarfélaga hins vegar verður að ætla að þetta tvennt geti vart farið saman,“ segir Elín. Samkvæmt lögum nr. 17/2003 sé í báðum tilfellum um að ræða almenn félög og ekki skráningarskyld. „Við stofnun verða þau lögað- ilar og er skráning ekki skilyrði fyrir rétthæfi þeirra. Í lögum er ekki fjallað mikið að öðru leyti um skipan almennra félaga og skipta því ákvæði samþykkta og sérlaga miklu máli við túlkun á réttarstöðu þeirra. Miðað við framangreint verður því að ætla að ef verkalýðs- hreyfing „ætlar í framboð“ þurfi hún að stofna aðgreint almennt félag um starfsemina.“ Hvað varðar að styrkja f lokka telur Elín ekkert hindra að verka- lýðshreyfingin geti gert það upp að vissu marki, eða 550 þúsundum samkvæmt lögum. Segir hún ekki vera lögbundna aðildarskyldu að stéttarfélögum, heldur sé hægt að greiða vinnuréttargjald fyrir þá þjónustu sem stéttarfélögin myndu annars veita, svo sem kjarasamn- ingsgerð. kristinnhaukur@frettabladid.is Hæpið að verkalýðshreyfingin geti verið stjórnmálaframboð Prófessor í Háskóla Íslands segir að verkalýðshreyfingin ætti að fara varlega í að stofna stjórnmálaflokk. Aðjunkt í lögum við Háskólann í Reykjavík segir vísbendingar í lögum um að verkalýðsfélög geti ekki starfað sem stjórnmálaflokkar eða nýtt sjóði í framboð. Formaður VR hefur nú viðrað slíkar hugmyndir. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur nefnt hugmyndir um stjórnmálaþátttöku VR. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Félögin eru samsett af hópi fólks sem þarf ekki endilega að eiga samleið með þeirri stjórn- málaskoðun. Björg Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands 1 Draumur 10 ára barna varð að engu: Sátu heima grátandi „Einu fórnar lömbin í þessu öllu saman eru krakkarnir, sonur minn er grátandi.“ 2 Nafn mannsins sem lést í um ferðar slysi við Horna fjörð Bergur Bjarnason, bóndi í Við- borðsseli, lætur eftir sig sambýlis- konu og tvö uppkomin börn. 3 „Með þess u ertu að hald a and stæð ing um Sjálf stæð is­ flokks ins veisl u“ Kári Stef áns son ræð ir um eink a rekst ur og skil yrð i fyr ir hon um og tek ur fyr ir við tal við Bjarn a Ben e dikts son þar sem mál efn i Land spít al ans voru rædd. 4 Útreiðartúr talinn til stuðn­ings við Andrés Reiðtúr hinnar 93 ára gömlu Bretadrottningar og 59 ára gamals sonar hennar hefur verið umfjöllunarefni fjölmiðla í Bretlandi. 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.