Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 8

Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 8
SA M FÉ L AG Kynjafræðingurinn Jenný Valberg starfar í Kvenna­ athvarfinu og gerði nýlega rann­ sókn á heimilisof beldi. Þar tók hún viðtöl við bæði íslenskar og erlendar konur og ræddi meðal annars reynsluna af skilnaði og sáttameðferð. Þá hefur Jenný einn­ ig persónulega reynslu, en hún gekk í gegnum skilnað eftir ofbeldissam­ band og þurfti að ganga í gegnum sáttameðferð. Hún segir þolendur í mjög slæmri stöðu þegar kemur að því að skilja, sérstaklega erlendar konur sem hafa hvorki bakland né vitneskju um réttindi sín. „Of beldið hættir oft ekki eftir sáttameðferð,“ segir Jenný. „Konur koma oft í viðtöl jafnvel árum eftir skilnað af því að málum er ekki lokið.“ Mikil umræða er um að fella skyldu til sáttameðferðar eftir skilnað niður og átta þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis. Þá hefur Ísland einnig skrifað undir Istanbúl­samninginn svo­ kallaða þar sem bann er lagt við slíkri skyldu. Jenný segir að skilnaðarferlið sé notað af of beldismönnum, þeir neiti að ganga frá umgengnis­, for­ ræðis­ og eignaskiptasamningum. Á meðan er ekki hægt að sækja fjár­ hagslegan stuðning eins og meðlag, barnabætur og húsaleigubætur. Fordæmi eru fyrir því að þetta hafi gengið í nokkur ár. „Þolendur of beldis eru skikkaðir í sáttameðferð á versta tíma, þegar gerandinn er hættulegastur og hann finnur að hann er að missa tökin og gerir allt til að halda þeim,“ segir Jenný. Nefnir hún svokallaða gas­ ljóstrun í því samhengi, áralangt andlegt of beldi þar sem gerandi fær þolanda til að efast um eigin skiln­ ing og minningar. „Kona sem hefur orðið fyrir of beldi er í slæmri stöðu þegar hún kemur inn í herbergið og þarf að mæta gerandanum. Hún þekkir allar hans hreyfingar og Þær virðast frjósa en þær eru að vega og meta hvernig best sé tryggja öryggi fyrir sig og börnin sín. Jenný Valberg kynjafræðingur Um er að ræða lagabálka sem að óbreyttu myndu standa áfram í lagasafninu að þarflausu segir um lögin sem nú að fella úr gildi. Stutt í kvöldmatinn? Þegar þú vilt virkilega góðan og einfaldan kjúklingarétt ferðu á gottimatinn.is ALÞINGI Fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi lista yfir laga­ bálka sem eru úreltir og leggur til að þeir verði felldir úr gildi. „Viðkomandi lagabálkar eiga ekki lengur við, ýmist sökum breyttra aðstæðna, vegna þess að hlutverk þeirra var afmarkað í tíma eða sökum þess að fyrir­ hugaðar ráðstafanir komu ekki til framkvæmda. Að óbreyttu munu þeir standa áfram í lagasafninu að þarf lausu,“ segir í greinargerð með tillögunni sem á við um ýmis sér­ stök lög á sviði fjármála­ og efna­ hagsráðuneytisins. Meðal laga sem fella á brott eru lög frá 1926 um heimild fyrir ríkis­ stjórnina til að ganga inn í við­ bótarsamning við myntsamning Norðurlanda, lög frá 1946 um heimild fyrir ríkisstjórnina til að taka á leigu geymsluhús Tunnu­ verksmiðju Siglufjarðar, lög frá 1948 um skattfrelsi vinninga varð­ andi happdrættislán ríkissjóðs og lög frá 1953 um framlengingu á heimild ríkisstjórnarinnar til að nota allt að fjórum milljónum doll­ ara af yfirdráttarheimild Íslands hjá Greiðslubandalagi Evrópu. Fleiri dæmi eru lög frá 1984 um heimild fyrir ráðherra til að ábyrgj­ ast lán fyrir Arnarf lug hf., lög frá 1985 um sjálfskuldarábyrgð ríkis­ sjóðs á láni vegna byggingar stál­ völsunarverksmiðju, lög frá 1988 um heimild fyrir ráðherra til að selja fasteignir Grænmetisversl­ unar landbúnaðarins að Síðumúla 34 og jarðhús í Ártúnsbrekku við Elliðaár og lög frá 2002 um heimild til handa ráðherra, fyrir hönd rík­ issjóðs, til að ábyrgjast skuldabréf vegna fjármögnunar nýrrar starf­ semi Íslenskrar erfðagreiningar. – gar Fella úr gildi sautján ára gömul lög um ábyrgð fyrir Íslenska erfðagreiningu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Skilnaðarferlið er tæki ofbeldismanna Kynjafræðingur sem starfar í Kvennaathvarfinu hefur rannsakað skilnaði og sáttameðferð sem skylduð er með lögum. Segir hún ferlið notað af ofbeldismönnum og að konur, oft erlendar og í slæmri stöðu, semji um hvað sem er til að losna úr hjónabandi. einu sinni túlk, þar sem sýslumaður þarf ekki að útvega hann, heldur þurfa að greiða fyrir þjónustuna sjálfar. Margar hafa ekki fjárhags­ lega burði til að gera það. Oft jánka þær öllu og skrifa undir hvað sem er, til að klára málið.“ Annað vandamál er staða þessara kvenna gagnvart Útlendingastofn­ un, það er konur sem ekki hafa feng­ ið íslenskan ríkisborgararétt. Hægt er að sækja um ríkisborgararétt eftir skilnað ef viðkomandi er með atvinnuleyfi. „En ef kona hefur ekki atvinnuleyfi og getur ekki unnið hangir það á eiginmanninum að skrifa undir að hann hyggist fram­ fleyta henni,“ segir Jenný og setur upp dæmigerða sögu. „Maður fer út, kynnist þar konu, sýnir sínar bestu hliðar og fær traustið frá henni og fjölskyldu hennar. Eftir giftingu flytja þau hingað og þá kemur hin hliðin í ljós.“ Oft séu mennirnir miklu eldri en þær og jafnvel í mikilli áfengis­ neyslu. Þær reyni að koma upp heimili en ef þær segi eitthvað sem þeim mislíkar sé þeim refsað. Jenný segir að mörg þessi mál upplýsist ekki fyrr en nágranni hringi á lögregluna þar sem konur þekkja ekki rétt sinn. „Lögreglunni finnst þessi mál oft svo erfið því að konan er tvístígandi um hvað hún vill gera. Þær virðast frjósa en þær eru að vega og meta hvernig best sé að tryggja öryggi fyrir sig og börnin sín.“ kristinnhaukur@frettabladid.is augngotur og veit hvað þær þýða. Það er enginn sem passar upp á hana þegar hún gengur út úr herberginu. Því reynir þolandi að segja ekkert í sáttameðferð sem getur ógnað öryggi hennar og barnanna þar sem þarna er verið að reyna að semja um forsjá og umgengni og algengt er að of beldismenn noti börnin til að halda of beldinu áfram.“ Jenný nefnir að sáttameðferð hefjist þegar enn hefur ekki verið gengið frá fjárskiptum og það hafi áhrif á hegðunina. Hún segir konur reyna að „haga sér vel“ því að mikið sé í húfi fyrir þær og börnin. Oft flýi þær af heimilum, eignir séu skráðar á eiginmenn en skuldir á þær. „Oft eru þetta konur frá Asíu eða Afríkulöndum sem hafa ekkert félagslegt bakland hér. Sumar eru á heimilunum og fá ekki að vinna, eða vinna einhvers staðar en skilja ekki tungumálið. Eiginmaðurinn hefur það vald að mata þær af upp­ lýsingum, oft röngum, eins og að konur af erlendum uppruna fái aldr­ ei að halda börnunum við skilnað,“ segir Jenný. „Þegar þessar konur mæta í sáttameðferð fá þær ekki Frá Ljósagöngu UN Women í gær sem nú beindist að ofbeldi á vinnustöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.