Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 19

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 19
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Ég vil bara það besta,“ segir Björn Þór Heiðdal, verslunar­stjóri í Rúmföt.is, einni alflottustu rúmfatabúð landsins sem fagnar sínu fyrsta afmæli um þessar mundir. „Viðtökur á fyrsta starfsárinu hafa farið fram úr björtustu vonum,“ segir Björn. „Margir hafa nefnt við mig að það hafi verið vöntun á svona verslun eftir að Fatabúðin og Verið hættu starf­ semi og fólk er virkilega þakklátt fyrir að enn sé hægt að kaupa sængurfatnað í góðum gæðum á Íslandi,“ segir Björn. Fann ekki góða sæng heima Ásamt því að selja lúxus rúmfatnað frá Ítalíu, Þýskalandi og Kína selur Rúmföt.is dúnsængur og kodda í algjörum sérflokki. „Í janúar fór ég utan til Frankfurt til að skoða Heimtextil, stærstu textílsýningu heims sem þar er haldin ár hvert. Þangað mæta nán­ ast öll fyrirtæki í þessum bransa og skiptir ekki máli hvort leitað sé að indverskum mottum, sturtu­ hengjum fyrir hótel eða æðar­ dúnsængum frá Íslandi; þar finnst bókstaflega allt sem viðkemur textílvörum,“ upplýsir Björn sem uppgötvaði einstaklega mjúkar og vandaðar dúnsængur á Heimtextil, sem nú eru komnar í Rúmföt.is. „Það var nú pínu óvart,“ segir Björn brosandi. „Það stóð ekkert til að fara að flytja inn dúnsængur. Ég hafði alltaf staðið í þeirri meiningu að hægt væri að kaupa fínar sængur í næstu rúmabúð hér heima en fyrir síðustu jól langaði mig í nýja sæng. Sú gamla, sem mamma gaf mér á sínum tíma úr Dún og fiður, var komin til ára sinna. Ég fór því á stúfana og kíkti í allar búðir sem mér datt í hug, þuklaði á hinum ýmsu dúnsæng­ um en ekkert varð af kaupunum,“ upplýsir Björn. Dásamlegar dúnsængur Eftir að hafa heimsótt birgja sína á sýningunni í Frankfurt hélt Björn rakleiðis í sal 11.0 á Heimtextil. „Þar voru saman komnir flestir af bestu framleiðendum Evrópu í dýnum, dúnsængum og koddum. Úrvalið af öllu sem manni getur dottið í hug var ótrúlegt og ég rakst þar meira að segja á íslenskt fyrir­ tæki sem selur æðardúnsængur en þótti þær heldur dýrar,“ segir Björn sem varð fyrir hugarfarsbreytingu á Heimtextil. „Gæðin sem þar voru fengu mig til að endurskoða mína fyrri afstöðu til þess að hægt væri að kaupa hágæða sængur á Íslandi, en í stuttu máli er það varla hægt,“ segir Björn sem ræddi við nokkra aðila í sal 11.0. „Sumir höfðu takmarkaðan áhuga á að ræða við mig, en sem betur fer kannski því ég endaði með að semja við framúrskarandi framleiðanda um alveg svaka­ Hjá Rúmföt.is fást ítölsk rúmföt í miklum gæðum, 600-700 þráða. Gullfalleg rúmföt í miklu gæðum er gjöf sem gleður og endist lengi. Rendur, doppur, blóm og óræð munstur prýða rúmfötin í mörgum litum. Það er ævintýri að koma í verslunina Rúmföt.is á Nýbýlavegi 28 og skoða fallegt úrval sængurfata við allra hæfi. Glæsileg rúmföt úr egypskri bómull fást meðal annars í Rúmföt.is. Nætursvefninn verður betri þegar hvílst er í rúmfötum úr satíni eða damaski og þau eru sannkölluð heimilisprýði. Þetta var nú pínu óvart. Það stóð ekki til að fara að flytja inn dúnsængur en ég samdi við framúrskar- andi framleiðanda um svakalega flottar sængur og mjög fín verð. Björn Þór Heiðdal lega flottar sængur og fín verð,“ segir Björn sem einnig kíkti niður í kjallara þar sem fjölmörg asísk fyrirtæki voru með bása sína. „Þar var allt önnur stemning og mun meiri læti. Nokkur stór kínversk fyrirtæki vildu selja mér gáma af koddum og sængum til prufu. Ég var spurður hversu marga gáma ég vildi panta ef sýnis­ hornin væru í lagi. Ég setti þá upp mitt besta pókerandlit og sagði það fara eftir verðinu. Svo þakkaði ég fyrir mig og fór,“ segir Björn og brosir að minningunni. Flottustu efni í heimi Í Rúmföt.is fást einnig rómuð rúmföt úr ítölskum damask­ og satínefnum sem saumuð eru í búðinni. Það er Margrét Guðlaugs­ dóttir saumakona sem sér um vandaðan saumaskapinn en hún saumaði áður fyrir Fatabúðina og fleiri aðila. „Þetta eru flottustu efnin sem ég hef á ævinni saumað og hef ég nú saumað úr ansi mörgu í gegnum árin,“ segir Magga við sníðaborðið. En þótt Margrét sé dugleg koma flest rúmfötin tilbúin að utan, meðal annars frá ítalska vefar­ anum Quagliotti og þýska fyrir­ tækinu Curt Bauer. „Quagliotti er lítið, ítalskt fjöl­ skyldufyrirtæki sem framleiðir hágæða rúmföt fyrir kröfuharða viðskiptavini. Meðal viðskipta­ vina eru hótel á borð við Ritz í París, MGM í Macau, The Mark í New York, The Peninsula í Hong Kong og nýja Armani­hótelið í Mílanó. Þá er Curt Bauer leiðandi fyrirtæki fyrir betri sængurfatnað á þýska markaðnum og framleiðir dásamlega rúmföt sem er auðvelt að þvo og koma með rennilás í stað hnappa,“ segir Björn. Rúmföt.is selur einnig eftirsótt silkikoddaver í mjög fallegum litum. „Fyrir jólin bjóðum við kodda­ ver úr 100 prósent Mulberry­silki á aðeins 5.900 krónur, 22 og 25 mm gæði. Mér skilst að það eigi að fara einkar vel með hár og hárgreiðslur en því miður hef ég enga reynslu af því sjálfur,“ segir Björn og hlær. Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28 í Kópavogi. Sími 565 1025. Opið alla virka daga frá klukkan 12 til 18 og á laugardögum frá klukkan 11 til 15. Skoðið heillandi úrval sængurfata á rumfot.is. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.