Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 29
Ullarfrakki 24.990 kr.
Taska 7.990 kr.
Skyrta 7.590 kr.
JÓLAGJÖFIN FYRIR HANN
FÆST Í JACK & JONES
Það er í nógu að snúast þessa dagana hjá Svölu Björgvins-dóttur söngkonu. Jólin eru
að nálgast með sína vinnutörn en í
ár tekur hún ekki bara þátt í fjölda
jólatónleika heldur ákvað hún að
opna líka fyrir minni gigg á borð
við jólahlaðborð fyrirtækja.
Byrjaði um síðustu helgi
„Það er mjög mikið að gera, ég
byrjaði törnina um síðustu helgi, en
þá spilaði ég á nokkrum jólahlað-
borðum. Þetta er í fyrsta skipti sem
ég ákveð að taka svona jólahlað-
borðum, en ég tók fjögur þannig
um síðustu helgi og það var bara
mjög gaman. Ég er bara ein með
píanóleikara, það er aðeins lág-
stemmdara og meiri nánd á þannig
tónleikum,“ segir Svala.
„Ég verð svo með á fimm tón-
leikum í Salnum í Kópavogi, þar
Jólin mikil vinnutörn hjá Svölu
Svala segist sjálf ekki vera sérstaklega mikið jólabarn, enda lítill tími til þess í slíkri vinnutörn sem desember er. MYND/MUMMI LÚ
Steingerður Sonja
Þórisdóttir
steingerdur@frettabladid.is
En á aðfangadag er ég bara að borða
góðan mat, sofa og að
vera með fjölskyldunni.
Það eru mín jól, sam-
veran með fjölskyldunni.
Það er alltaf nóg að gera
hjá Svölu Björgvins
dóttur í kringum jólin.
Hún segist ekki vera
mikið jólabarn sjálf en
ætlar þó að vera með
fallegt jólatré í ár fyrir
fimm ára stjúpson sinn.
kem ég fram með þeim Friðriki
Ómari, Diddú og Jógvan. Þeir tón-
leikar heita Heima um jólin. Svo
verð ég auðvitað á Jólagestum í Eld-
borg,“ segir Svala en faðir hennar
Björgvin er að sjálfsögðu maðurinn
á bak við þá.
Af nógu að taka
Heima um jólin heldur síðan
norður og verða fimm tónleikar í
Hofi á Akureyri.
„Ég er líka að taka að mér aðeins
öðruvísi og minni gigg. Ég syng til
að mynda við Nova-skautasvellið á
Ingólfstorgi.“
Nú fyrr í mánuðinum gáfu Frið-
rik Ómar og Svala út lagið Annríki í
desember og í fyrra gaf hún út jóla-
lagið Sex með Baggalúti. Það er því
af nógu að taka hjá henni þegar það
kemur að jólalögum, en hún segist
alltaf taka sín klassísku jólalög. En
hvert er uppáhaldslagið hennar
Svölu?
„Það heitir Driving Home for
Christmas og er með Chris Rea. Það
er eitt af mínum uppáhaldsjóla-
lögum, en er eiginlega ekkert svo
jólalegt. Það er bara ótrúlega flott
lag sem ég hef alltaf haldið upp á.
Ég hef samt sjálf aldrei tekið það,
maður þarf eiginlega að vera karl-
maður með smá hrjúfa rödd til að
syngja það almennilega, smá svona
viskírödd,“ segir Svala og hlær. „Ég
elska þetta lag. En svo fíla ég líka
svona „cheesy“ lög á borð við Last
Christmas með Wham! Það er svo
mikil nostalgía sem fylgir þeim.“
Ekki mikið jólabarn
Það stendur ekki á svörum þegar
Svala er innt eftir því hvaða jólalag
henni sjálfri finnst skemmtilegast
að syngja.
„Ég syng mjög oft Þú komst með
jólin til mín, sem pabbi og Ruth
Reginalds gerðu á sínum tíma. Mér
finnst mjög gaman að syngja það og
svo er það líka svo flott lag. Maður
hefur sungið svo mikið af lögum. Ég
hef sungið líka Happy Xmas (War
is Over) með John Lennon, ég held
mikið upp á það,“ segir Svala.
Sjálf segist hún ekki vera sérstak-
lega mikið jólabarn, enda hefur
þetta oft verið sá tími árs sem er
hvað mest að gera hjá henni og
mikil vinnutörn. Hún fái því oft
ekki tækifæri til að slaka á fyrr en á
aðfangadag sjálfan.
„Æ, verða allir fyrir vonbrigðum
að heyra að ég sé ekki sérstaklega
mikið jólabarn? Ég er ekkert í því
að skreyta neitt sérstaklega mikið.
Ég var meira jólabarn þegar ég var
krakki. Þá elskaði ég jólin. Eftir því
sem ég varð eldri þá minnkaði það,
ég vinn svo mikið í nóvember og
desember, og hef gert síðastliðin
13-14 ár. Svo fer ég bara í mitt jóla-
skap á sjálfan aðfangadag, því ég er
líka að syngja á Þorláksmessu, þá
kem ég fram á Litlu jólum Björgvins
í Bæjarbíói. En á aðfangadag er ég
bara að borða góðan mat, sofa og
að vera með fjölskyldunni. Það eru
mín jól, samveran með fjölskyld-
unni,“ segir Svala.
Jólatré fyrir stjúpsoninn
Eins og áður kom fram er Svala ekki
mikið í því að skreyta, þótt henni
finnist æðislegt að annað fólk geri
það. Í ár verður þó undantekning
á, því Svala stefnir á að vera með
fallegt jólatré.
„Ég er ekki persónulega mikið
fyrir svona skraut en ég ætla samt
að setja upp jólatré í ár því ég á
stjúpson sem er fimm ára. Ég vil
endilega að hann sé líka með lítið
tré hérna, þannig að mig langar að
gera smá jólalegt fyrir hann.“
Í janúar og febrúar ætlar Svala
svo að henda sér af fullum krafti í
það að klára næstu plötu.
„Stefnan er að klára hana og
koma henni svolítið af stað. Þannig
að eftir áramót er ég svolítið að
fara að leggjast undir feld og gera
nýja músík. Þetta eru oft rólegustu
mánuðirnir, þannig að ég ákvað að
taka þá bara í að gera þetta. Ég hef
verið svo mikið að spila undanfarið
að ég hef ekkert komist í þetta, en
núna er ég á leið í stúdíóið,“ segir
Svala.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 98