Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 70
Kannski er
jólasveinnin á
leið í messu.
NORDICPHOTOS/
GETTYÍ Venesúela hefjast hátíðahöld tengd jólunum þann 16. desember. Í höfuð-
borginni Caracas hefur
skapast frekar sérstök
hefð þar sem fólk fer á
hjólaskautum í morgun-
messu dagana 16.-24.
desember. Þar sem þessi
hefði er svo vinsæl hafa lög-
regluyfirvöld tekið upp á því
að loka sumum götum borgarinn-
ar fyrir klukkan átta á morgnana
til að hjólaskautafólkið eigi auð-
veldara með að komast leiðar
sinnar. Börnin fara snemma
í háttinn á kvöldin til að
vakna hress fyrir mess-
una daginn eftir og þau
binda oft bandspotta
um stóru tána á sér og
setja endann á bandinu
út um gluggann, þá getur
hjólaskautafólkið sem á
leið hjá um morguninn togað í
spottann.
Á hjólaskautum í messu
Hvítklæddur McCartney árið 1973.
Lagið „Wonderful Christmas-time“ með Paul McCartney þekkja flestir en þetta sígilda
jólalag er samofið jólunum í
hugum margra. Þrátt fyrir miklar
vinsældir og spilun hefur laginu þó
verið lýst af gagnrýnendum sem
„versta lagi Pauls fyrr og síðar“,
enda er höfundurinn vissulega án
nokkurs vafa einn merkilegasti
tónlistarmaður sögunnar. Hvað
sem því líður þá verður að teljast
aðdáunarvert hversu lítillar fyrir-
hafnar lagasmíðin krafðist af Paul
en hann samdi það á einungis tíu
mínútum á sólskinsdegi í júlí árið
1979. Þá sá hann alfarið um útsetn-
ingu lagsins en sem dæmi má
nefna að barnakórinn sem syngur
hátíðlega „Ding Dong“ í laginu er
alls enginn barnakór, heldur bara
sjálfur Sir Paul McCartney að vera
dæmigerður Paul McCartney.
Dásamleg
en umdeild
jól með Paul
McCartney
Þetta er góð lausn til að spara bæði
pening og pláss. FACEBOOK/ONABUDGET
Facebook-síðan On a Budget birti nýlega frábært bragð til að spara peninga og pláss sem
færi annars í jólatré. Hægt að setja
upp lista, festa grenikransa á þá og
skreyta svo allt heila klabbið svo
með ljósum. Þetta er frábær kostur
fyrir fólk sem býr þröngt og hefur
ekki pláss fyrir tré, þá sem vilja
spara og þá sem vilja ekki fella tré
að óþörfu.
Síðan birti tvær myndir sem
sýna svona tré, önnur þegar það er
nýbyrjað að byggja það og svo eina
sem sýndi lokaútkomuna. Þrátt
fyrir að vera einfalt og ódýrt virkar
þetta merkilega vel og gefur her-
berginu þennan hlýja og jólalega
blæ sem við tengjum við jólatré.
Hugmyndin er vinsæl og hefur
verið deilt yfir 97 þúsund sinnum
þegar þetta er skrifað. En notendur
voru fljótir að benda á einn galla.
Þetta er kannski ekki hentugt fyrir
kattaeigendur, því það er hætta
á því að kisur hefðu gaman af að
leika sér með skreytinguna, eins
og þeir eiga til að gera með jóla-
skraut.
Skelltu trénu
á vegginn
Notaðu Pay Léttkaup í desember, dreifðu
greiðslum í allt að 36 mánuði og þú byrjar
ekki að borga fyrr en í febrúar.
siminnpay.is
Dreifðu
greiðslum,
borgaðu
eftir jól
JÓL 20192 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 49