Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 126
SORPA | Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa.is
Desember er dásamlegur og það er ansi margt í jólaundirbúningnum sem má
gera á umhverfisvænan hátt. Njótum aðventunnar, jólanna og áramótanna
með því að endurvinna, endurnýta og föndra. Það er gott fyrir umhverfið og
skapar notalegar samverustundir með fjölskyldunni.
Við skulum skilja við gamla árið eins og við viljum taka á móti því nýja. Eftir
mikil veisluhöld þarf að taka til. En best er að sýna fyrirhyggju og skilja sem
minnst eftir sig. Njótum nýja ársins og setjum umhverfið okkar í forgang.
Jóla- og áramótaruslið
Allar nánari upplýsingar um
flokkun er að finna á sorpa.is
Í hvaða flokk? Hvert á að skila?
Það er einfalt og ódýrt að búa til fallegan jólapappír með því að mála
dagblöð eða tímarit og skreyta með litríkum úrklippum. Síðan er upplagt
að pakka gjöfum í kassa og box úr skápnum og nota gamla efnisbúta og
viskastykki í staðinn fyrir hefðbundinn gjafapappír.
Mandarínukassar Ómálað timbur Endurvinnslustöð
Jólagjafapappír Pappír og pappi Endurvinnslustöð, grenndargáma og blátunnu
Jólakort og pakkamiðar Pappír og pappi Endurvinnslustöð, grenndargáma og blátunnu
Plastumbúðir Plastumbúðir og annað plast Endurvinnslustöð og grenndargáma
Jólatré Trjágreinar Endurvinnslustöð
Jólaseríur Lítil raftæki Endurvinnslustöð
Gjafir sem hittu ekki í mark Nytjahlutir Endurvinnslustöð
Leikföng úr plasti Plastumbúðir og annað plast, nytjahlutir (ef heilt) Endurvinnslustöð og grenndargáma
Rafmagnsleikföng Lítil raftæki, nytjahlutir (ef heilt) Endurvinnslustöð
Jólapeysur Föt og klæði Endurvinnslustöð og grenndargáma
Flugeldar (notaðir) Almennur heimilisúrgangur Endurvinnslustöð og orkutunnu
Flugeldar (ónotaðir) Spilliefni Endurvinnslustöð
Það er góð hugmynd að föndra sitt eigið jólaskraut. Möguleikarnir eru
endalausir og á netinu má finna margar góðar hugmyndir. Mundu samt
að gæta fyllstu varúðar. Við viljum ekki eldhættu á hátíð ljóss og friðar.
Umhverfisvænn
jólaundirbúningur
Tökum vel
á móti 2020
Gjafapappírinn
Skrautið
Gjafapappírinn
og pakkaböndin
Best er að endurnýta pappírinn og böndin.
Brjótum pappírinn saman, losum hnúta,
rúllum upp og geymum. Sá pappír sem fer í
ruslið má fara í blátunnuna en pakkabönd úr
plasti og plastumbúðir fara í grenndargám
fyrir plast. Athugið að pappír með glimmer
eða málmáferð hentar illa til endurvinnslu.
Skreytingar úr
greinum og jólatré
Í sumum tilfellum sækja sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu jólatré til íbúa en
hægt er að finna upplýsingar um það á
heimasíðum þeirra. Á endurvinnslustöðvum
er tekið við jólatrjám frá einstaklingum
án gjaldtöku en þau eru send til frekari
vinnslu í Álfsnesi, m.a. sem stoðefni í gerð
jarðvegsbætis.
Flugeldar, notaðir
og ónotaðir
Þó að flugeldar séu að mestu leyti úr
pappa gerir leirinn í botninum á þeim það
að verkum að pappinn er ekki hæfur til
endurvinnslu. Þess vegna fer flugeldarusl
í gám fyrir blandaðan úrgang á næstu
endurvinnslustöð. Ósprungnir flugeldar eiga
hinsvegar að fara í spilliefnagám og þá skal
ekki geyma á milli ára á heimilum.
Heimagerð jólakort sem eru búin til úr pappa og öðru efni sem er til á
heimilum eru persónuleg og vekja kátínu. Síðan er tilvalið að nýta gömul
jólakort, gefa þeim framhaldslíf og nota sem pakkamiða.
Kortin
Á nytjamörkuðum, eins og Góða hirðinum, leynast margir fallegir munir sem
er gaman að gefa öðrum um jólin. Heimagerðar gjafir slá líka alltaf í gegn.
Þeim fylgir hlýhugur sem sýnir sanna væntumþykju. Það er líka gaman að
gefa gæðastund og lauma í pakkann miða á tónleika, í leikhús, nudd eða
annað notalegt sem kætir.
Gjafirnar