Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 145
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Hauks Arnar
Birgissonar
BAKÞANKAR
Ódýrt fyrir alla
Ég á litla frænku, hún er 13 ára gömul. Hún er með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm
og í gegnum árin hef ég fylgst með
foreldrum hennar annast hana.
Ég sé hversu mikið það reynir á
þau að horfa á dóttur sína þjást – á
hverjum einasta degi. Oft í viku
fær hún ofsafengin köst sem valda
lömun og vítiskvölum. Daginn út
og inn. Dag eftir dag.
Fyrir ekki svo löngu síðan upp-
götvuðu foreldrar hennar að með
því að gefa dóttur sinni tiltekna
olíu þá sló það á verkina og köstin.
Dóttur þeirra leið betur. Þessa
olíu var ekki hægt að kaupa hér
á landi og þurfti þau því að f lytja
hana inn. Fleira fólk, sem glímdi
við mismunandi sjúkdóma, hóf
einnig að nota olíuna og hjálpaði
hún þeim að líða betur. Hún linaði
þjáningar þeirra.
Olían inniheldur efnið CBD,
sem unnið er úr kannabisplönt-
unni. Plöntuna þekkja f lestir en
færri vita að hún býr yfir miklum
lækningamætti. Efni plöntunnar
sem notað er í olíuna veldur ekki
vímu og er ekki ávanabindandi.
Það stendur samt, einhvers staðar
í einhverri reglugerð, að efnið
f lokkist sem lyf og því hefur Lyfja-
stofnun bannað foreldrunum að
f lytja olíuna til landsins.
Fyrir Alþingi liggur nú þings-
ályktunartillaga um að heimila
almenna sölu á CBD-vörum. Ýmsir
hagsmunaaðilar leggjast gegn
tillögunni og benda á að rannsaka
þurfi betur af leiðingarnar. Þetta
er algengt viðhorf, sem felst í því
að betra sé að banna hluti áður
en þeir eru leyfðir. Af leiðingin er
hins vegar sú að fjöldi fólks þarf
að bíða og líða vítiskvalir á meðan
opinberar stofnanir rannsaka
hvort olían virkar. Framburður
þeirra, sem kveljast áfram, er víst
ekki nóg.
Þið verðið
að bíða
Dreifðu
greiðslunum
á svörtum
föstudegi