Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 2
Veður Í dag er útlit fyrir stífa norðanátt með kólnandi veðri og éljum fyrir norðan og austan. Sunnan og vestan til stefnir í nokkuð bjartan dag þó að hiti fari ekki mikið yfir 6 stig. sjá síðu 18 Garðbæingar í hreinsunarátaki Hjónin Inga Þyri Kjartansdóttir og Bergþór G. Úlfarsson fara með svarta plastpoka með sér í sinn daglega göngutúr með hundinn og tína rusl í Garðabænum. Bærinn stendur fyrir átaki í apríl með það að markmiði að verða snyrtilegasti bær landsins. Hjónin láta ekki sitt eftir liggja og hafa fyllt sjö poka á síðustu þremur dögum. Fréttablaðið/Vilhelm Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir, Fjarðarkaup og Þín verslun Seljabraut Öflug hita- og kælimeðferð NÁTTÚRULEGT VERKJAGEL lögreglumál „Þetta er náttúrlega algerlega óþolandi. Ef menn eru ósáttir eiga þeir að beina reiði sinni að þeim sem setja reglurnar en ekki að starfsfólkinu á planinu,“ segir Björn Halldórsson, framkvæmda- stjóri Sorpu, um viðskiptavini sem neita að borga uppsett gjöld og beita jafnvel starfsfólkið ofbeldi. Björn bendir á tvö nýleg tilvik. Fyrr í þessum mánuði hafi viðskiptavinur reynt að hrinda starfsmanni og hótað honum lífláti. Í desember síðastliðn- um hafi svo maður sem var beðinn að hætta að gramsa í gámi nærri ekið yfir starfsmann. „Hann gat ekki annað en séð starfsmanninn en keyrði samt áfram,“ segir Björn sem kveður vitað um hvaða menn sé að ræða. „Þetta snerist um það að þessi maður neitaði að borga 1.200 krón- ur,“ segir Björn um fyrrnefnda málið þar sem miðaldra karlmaður hafi hótaði starfsmanni Sorpu í Jafna seli lífláti er hann var rukkaður um gjald vegna losunar á byggingarefni. „Hann réðst á starfsmanninn og hótaði lík- amsmeiðingum og setti fram morð- hótun.“ Aðspurður segir Björn að enn hafi ekki verið haft samband við ofbeldis- mennina. „En það verður gert,“ segir hann. Til eru upptökur úr eftirlitsmynda- vélum af þessum tveimur atvikum og voru þær lagðar fram á síðasta stjórnar fundi Sorpu þar sem Björn kynnti „stjórn tvö atvik þar sem starfs- menn SORPU voru beittir ofbeldi og máttu sæta morðhótunum vegna innheimtu á gjaldskyldum úrgangi“, eins segir um málið í fundargerð stjórnarinnar. Ofbeldi viðskiptavina á endur- vinnslustöðvum Sorpu hefur áður verið til umræðu í stjórn fyrirtækis- ins, til dæmis í desember 2011. „Þá réðst einn viðskiptavinur á Dal- vegi á starfsmann með hníf,“ rifjar Björn upp. Ágreiningur hafi komið upp um skilagjöld vegna drykkjar- umbúða. Breytingar hafi verið gerðar í kjölfarið. „Meðal annars var eftirlit myndavéla aukið og starfsmönnum var kennt hvernig þeir ættu að bregð- ast við.“ Halldór Auðar Svansson, fulltrúi í stjórn Sorpu, segir að langoftast snúi þessi mál að því þegar starfs- menn rukka viðskiptavini um gjöld sem fylgja tilteknum efnisflokkum. Til greina komi að láta þá sem neita að borga einfaldlega fara sína leið og senda þeim síðan reikning eftir bíl- númerinu. Halldór bendir á að um gjaldtökuna gildi reglur og fólk megi búast við því að vera rukkað samkvæmt þeim. „Starfsfólkið fer einfaldlega eftir þess- um reglum og það er ekkert persónu- legt í því,“ segir hann. Björn segir að farið verði yfir verk- lag og það hvernig bregðast eigi við. „Við erum að skoða hvort þeir sem þetta stunda verði settir á svartan lista og fái ekki aðgang að endurvinnslu- stöðvunum. “ gar@frettabladid.is Hóta starfsfólki Sorpu lífláti vegna gjaldtöku Miðaldra karlmaður réðst að starfsmanni Sorpu og er sagður hafa hótað honum lífláti vegna 1.200 króna gjalds fyrir losun byggingarefnis. Annar viðskiptavinur ók starfsmann nærri niður vitandi vits. Stjórn Sorpu hugleiðir aðgerðir. ekki vilja allir viðskiptavinir hlíta reglum Sorpu. Fréttablaðið/Vilhelm Hann gat ekki annað en séð starfsmanninn en keyrði samt áfram. Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu halldór auðar Svansson, fulltrúi í stjórn Sorpu fjölmiðlar ICIJ, Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna, munu opna fyrir aðgengi að gagnagrunni með upplýsingum úr Panama-skjöl- unum svokölluðu þann 9. maí næst- komandi. Í gagnagrunninum verður að finna upplýsingar um rúmlega 200 þúsund aflandsfélög sem tengj- ast lögfræðistofunni panamísku Mossack Fonseca. Samkvæmt tilkynningu frá sam- tökunum verða ekki birtar persónu- legar upplýsingar um millifærslur, bankareikninga, tölvupóst eða önnur persónuleg samskipti. Þau gögn sem verða birt verða birt með almannahagsmuni í huga. Hægt verður að fletta upp í gagna- grunninum og koma þar fram upp- lýsingar um aflandsfélög og þá ein- staklinga, í um 200 löndum, sem standa að baki þeim. – þv Aflandsgögn verða birt í maí Dómsmál Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur átta ein- staklingum sem grunaðir eru um stórfelld skattalagabrot. Þeim er gefið að sök að hafa svikið allt að 300 milljónir króna af hinu opinber. Einn af ákærðu er fyrrverandi starfsmaður Ríkisskattstjóra og er hann talinn hafa aðstoðað hina grunuðu við fjársvikin auk þess að hafa gegnt lykilhlutverki í málinu. Málið er eitt það umfangsmesta sinnar tegundar hér á landi og hefur verið til meðferðar hjá lög- regluyfirvöldum og saksóknara frá árinu 2010. Talið er að ákærðu hafi sett á fót sýndarfyrirtæki sem höfðu enga raunverulega starfsemi í þeim til- gangi að svíkja fé út úr skattkerfinu. Málið verður tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjaness í næsta mánuði. – sks Ákærð fyrir 300 milljóna skattalagabrot NOregur Eftir 20 ár mun Noreg vanta nær 30 þúsund hjúkrunar- fræðinga. Skortur á sérhæfðum hjúkrunarfræðingum, einkum barnahjúkrunarfræðingum, er sér- lega mikill að því er kemur fram í nýrri skýrslu norsku vinnumála- stofnunarinnar. Fjöldi sviðsstjóra við norsk sjúkrahús  kveðst ekki hafa nógu marga sérhæfða hjúkrunarfræðinga við störf til að geta veitt fullnægj- andi þjónustu. Meirihluti þeirra sem eru við störf nú fer bráðum á eftirlaun. – ibs Þurfa fleira fólk við hjúkrun 200 þúsund aflandsfélög eru í gögnunum sem birt verða. 2 7 . a p r í l 2 0 1 6 m i ð V i K u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.