Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 6
Tsjernóbyl minnst Kveikt á kerti við minnismerki um slökkviliðsmenn sem létust eftir störf á vettvangi Tsjernóbyl-slyssins. Þrjátíu ár eru liðin frá því sprenging varð í einum ofna kjarnorkuversins í Tsjernóbyl. Nordicphotos/AFp Á morgun 28. apríl gefur Íslandspóstur út fjórar frímerkjaraðir þar sem þemað er eldgosið í Holuhrauni, árstíðirnar, ferðamannafrímerki og Evrópufrímerki. Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkja sölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Safnaðu litlum lis taverkum HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is UP! MEÐ ÖRYGGIÐ VW Up! frá aðeins: 1.890.000 kr. ferðaþjónusta Farþegar hvala- skoðunarfyrirtækja á Íslandi voru 42 þúsund fleiri í fyrra en árið 2014. Frá og með árinu 2012 hefur fjölgun farþega fyrirtækjanna numið tugum þúsunda hvert einasta ár, eða frá 25 til 44 þúsund manns. Sú fjölgun jafn- gildir árlega öllum þeim fjölda ferða- manna sem nýttu sér þessa afþrey- ingu í kringum aldamótin. Þetta sýna tölur Samtaka ferða- þjónustunnar (SAF), sem teknar voru saman fyrir Fréttablaðið, og byggja á tölfræði Hvalaskoðunarsamtaka Íslands. Þær sýna að viðskiptavinir hvalaskoðunarfyrirtækjanna árið 2015 voru 272 þúsund, eða tæplega 100 þúsund fleiri en árið 2012. Árleg fjölgun hefur verið 15 til 34 prósent. Fréttablaðið óskaði jafnframt eftir því að SAF gæfi upp spá sína um fjölgun ferðamanna á skipsfjöl hjá hvalaskoðunarfyrirtækjunum á þessu ári, og samkvæmt henni verða það tæplega 327 þúsund manns sem nýta munu þessa þjónustu, sem jafn- gildir um það bil íbúafjölda landsins. Því er ljóst að 20 til 25 prósent þeirra ferðamanna sem sækja landið heim hafa farið í hvalaskoðunarferð á undanförnum árum, enda 99 prósent viðskiptavina fyrirtækjanna erlendir gestir. Tugþúsunda fjölgun í hvalaskoðun árlega Farþegar tólf hvalaskoðunarfyrirtækja í fyrra voru 272 þúsund alls. Fjölgunin á milli ára síðan 2012 er frá 15 til 35 prósenta. Farþegaspá þessa árs er í anda þeirrar fjölgunar ferðamanna sem stefna hingað til lands og slær öll fyrri met. Í gögnum SAF kemur jafnframt fram að tólf fyrirtæki muni bjóða hvalaskoðunarferðir á þessu ári. Þeim hefur fjölgað hægt en örugg- lega á undanförnum árum en þau voru níu árið 2005 en tíu árið 2010, og tólf voru þau í fyrra. Starfs- mannafjöldi þessara fyrirtækja var um 100 yfir sumartímann árið 2005 en losaði 250 í fyrra. Tvö þessara fyrirtækja gerðu út frá Reykjavík, fjögur frá Húsavík, þrjú í Eyjafirði og eitt fyrirtæki starfar á Ólafsvík, í Vestmannaeyjum og á Ísafirði. Samtök ferðaþjónustunnar eiga fund með sjávarútvegsráðherra í næstu viku þar sem samtökin munu leggja áherslu á mikilvægi þess að stækka griðasvæði hvala á Faxa- flóa. „Við viljum meina að verið sé að skerða atvinnufrelsi hvala- skoðunarfyrirtækja á Faxaflóa þar sem veiðar á hrefnu eru stundaðar á nánast sama svæði og hvalirnir eru skoðaðir. Að okkar mati er þetta spurning um skipulag og hvetjum við sjávarútvegsráðherra til að stækka griðasvæði á Faxaflóa í samræmi við óskir ferðaþjónust- unnar,“ segir Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferða- þjónustunnar. svavar@frettabladid.is Við viljum meina að verið sé að skerða atvinnufrelsi hvalaskoðunar- fyrirtækja á Faxaflóa þar sem veiðar á hrefnu eru stundaðar á nánast sama svæði og hval- irnir eru skoðaðir. Skapti Örn Ólafs- son, upplýsingafull- trúi SAF 150.000 manns fóru í hvalaskoðun frá reykjavík í fyrra. FréttAblAðið/pjetur efnahagsmál Meðalverð á fer- metra í leiguíbúðum var rúmlega 2.200 krónur í vesturhluta Reykja- víkur á fyrsta ársfjórðungi. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu var verðið um 85-90% af þeirri tölu. Á Akureyri var meðalverðið um 70% af dýrasta svæðinu á höfuðborgar- svæðinu. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans Vísitala leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu hækkaði um 2,1% á milli febrúar og mars og hefur hækkað um 6,2% undanfarna 12 mánuði. Síðustu 12 mánuði hefur kaupverð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 8,7% sem er töluvert meira en nemur hækkun leiguverðs. Kaupverð fjölbýlis hefur þannig hækkað 2,1% meira en leiguverð frá upphafi ársins 2011. Þar kemur jafnframt fram að á 1. ársfjórðungi var leiguverð að jafnaði hæst í vesturhluta Reykja- víkur og var hæsta leiguverðið fyrir 2ja herbergja íbúðir á því svæði. Leiguverðið var svo svipað á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. – jhh Meðalverð á fermetra í Vesturbæ er 2.200 krónur 6% hækkun hefur orðið á vísitölu leiguverðs á höfuð- borgarsvæðinu undanfarna 12 mánuði Hæsta leiguverðið er að jafnaði í vesturhluta Reykja- víkur. Leiguverð var svo svipað á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. 2 7 . a p r í l 2 0 1 6 m I ð V I K u D a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.