Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 14
Í dag 18.30 Atletico - Bayern Sport 20.45 Meistaradeildarmörk Sport 19.30 Grótta - Fram Seltjarnarnes 19.30 Haukar - Stjarnan Ásvellir Breiðablik – 4. sæti ÞjálFAri Arnar Grétarsson Arnar stóð sig frábærlega á sínu fyrsta tímabili og náði silfrinu með uppeldisfélaginu. Nú þarf hann að fylgja því eftir. Ef allt gengur upp hjá Blikum og varnarleikurinn helst jafngóður getur liðið aftur barist um titilinn en annars misst af Evrópu. í besta/versta falli stærsta nafnið sem kom stærsta nafnið sem fór GenGi breiðabliks undanfarin sex sumur 2010 A-deild 2011 A-deild 2012 A-deild 2013 A-deild 2014 A-deild 2015 A-deild Daniel Bamberg Svíi sem mikið er talað um en hefur ekki enn spilað mótsleik. Kristinn jónsson Kristinn var stoðsendinga- hæsti leikmaðurinn í fyrra. 12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 spá íþróttadeildar 365 1. sæti ? 5. Valur 9. ÍBV 2. sæti ? 6. Víkingur 10. ÍA 3. sæti ? 7. Fylkir 11. Víkingur Ólafsvík 4. Breiðablik 8. Fjölnir 12. Þróttur pepsi spáin 2016 nánar á vísi Höskuldur Gunnlaugsson varð ein af stjörnum deildarinnar í fyrra. Hann var nálægt því að fara í atvinnumennsku í vetur en verður nú að stilla sig inn á annað tímabil með Breiðabliki. ↣ 1 7 26 2 4 körfubolti „Það er alveg geggjað að taka þetta þrjú ár í röð. Tilfinningin er ólýsanleg,“ sagði brosmild og kampakát Berglind Gunnarsdóttir, leikmaður Snæfells, eftir að stúlk- urnar úr Stykkishólmi tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð með sigri á Haukum í oddaleik á útivelli, 67-59, í gærkvöldi. Snæfell, sem varð einnig bikar- meistari fyrr á tímabilinu í fyrsta sinn, hefur verið besta lið landsins undanfarin ár og heldur þeim titli með glans. Haukarnir höfðu Helenu Sverrisdóttur en Snæfell Haiden Palmer, liðsheild og óþreytandi sigurvilja sem skín úr andliti hvers leikmanns. Sigurinn í gær var liðssigur eins og þeir eru svo oft hjá Snæfelli. Varnar- leikurinn frábær, samheldnin í liðinu eins og hún verður best og svo er erfitt að tapa fyrir framan alla Hólmara sem voru mættir á Ásvelli í gærkvöldi. „Ég veit ekki hver er að passa bæinn. Löggan eða eitthvað nema hún hafi komið líka. Það er eng- inn heima,“ sagði Berglind og hló aðspurð hver hefði fengið það hlutverk að passa upp Hólminn á meðan íbúarnir óku suður og fögnuðu með stúlkunum sínum. Úrslitarimman var alveg mögnuð en Snæfell tapaði tvisvar sinnum afar naumt á Ásvöllum áður en liðinu tókst loksins að vinna á Ásvöllum. Þetta var fyrsti sigur liðsins á heima- velli Haukanna í vetur. „Við völdum rétta leikinn til að vinna!“ sagði Berg- lind glöð í bragði og hélt áfram: „Þetta er búinn að vera körfubolti fyrir allan peninginn og áhorfendur hafa fengið ótrúlegt úrslitaeinvígi. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í þessu. Að klára þetta í oddaleik á Ásvöllum er ólýsanlegt. Við erum að vinna þetta þriðja árið í röð en þetta er alltaf jafngaman,“ sagði Berglind. Landsliðskonan, sem blaðamaður þurfti að rífa úr óteljandi faðmlögum og kossaflensi við áhorfendur til að ná tali af henni, þurfti að taka ákvörðun um hvort hún yfirleitt gæti haldið áfram að spila körfubolta fyrir nokkrum árum vegna þrálátra axlar- meiðsla. Hún spilar oft þjáð og öxlin er vafin. „Það eru þessir leikir og þessi til- finning sem heldur manni gangandi. Þetta er ástæðan fyrir því að maður heldur alltaf áfram. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er lætur sig hafa það að vera teipaður á hverri einustu helvítis æfingu því maður er alltaf að fara úr axlarlið,“ sagði Berglind sem var eðlilega í sigurvímu er hún horfði yfir stuðningsmennina í stúkunni. „Að spila fyrir þennan klúbb, vá, fyrir þetta fólk og þennan klúbb er ólýsanlegt.“ Berglind sagði að nú væri stefnan sett á að vinna titilinn fjórða árið í röð: „Við tókum bikarinn líka í ár sem var nýtt. Nú höldum við bara ótrauðar áfram,“ sagði hún, en spurð hvort það sé bara eitt stórveldi á Íslandi í dag var hún fljót að svara: „Það er bara eitt stórveldi á Íslandi í dag.“ tomas@365.is „Eitt stórveldi á Íslandi í dag“ Berglind Gunnarsdóttir þurfti að taka ákvörðun fyrir nokkrum árum um hvort hún ætlaði að halda áfram að spila körfubolta vegna þrálátra axlarmeiðsla. Hún gafst ekki upp og varð Íslandsmeistari með Snæfelli. Systurnar sigursælu, Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur. FréttABlAðið/ernir domino´s deild kvenna, úrslit Haukar - Snæfell 59-67 Haukar: Helena Sverrisdóttir 26/17 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10/7 fráköst/3 varin skot, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 8/5 fráköst/3 varin skot, Pálína María Gunn- laugsdóttir 5/8 fráköst, Auður Íris Ólafs- dóttir 5, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Dýrfinna Arnardóttir 2, María Lind Sigurðardóttir 0/4 fráköst Snæfelli: Haiden Denise Palmer 21/12 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14/9 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 12, Berglind Gunnarsdóttir 11/4 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 3/3 varin skot, Andrea Björt Ólafsdóttir 2, María Björnsdóttir 2, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Sara Diljá Sigurðar- dóttir 0/5 fráköst. Snæfell vann einvígið 3-2 og er Íslands- meistari þriðja árið í röð. 1. deild karla í körfubolta Fjölnir - Skallagrímur 75-91 Stigahæstir: Collin Anthony Pryor 23/12 fráköst, Garðar Sveinbjörnsson 14/5 frá- köst/5 stoðsendingar, Róbert Sigurðsson 13/5 fráköst/9 stoðsendingar - Kristófer Gíslason 24/6 fráköst, Jean Rony Cadet 22/22 fráköst/6 stoðsendingar/5 varin skot, Sigtryggur Arnar Björnsson 14/4 fráköst. Skallagrímur tryggði sér sæti í Domino´s deild karla í gærkvöldi og fer upp ásamt Þór Akureyri en FSU og Höttur féllu í 1. deildina í vor. meistaradeildin, undanúrslit Man. City - real Madrid 0-0 Cristiano Ronaldo lék ekki með Real Madrid á Etihad vegna meiðsla. Leikurinn var afar bragðdaufur en leikmenn Real fengu hættulegri færi og Joe Hart þurfti tvisvar að taka á honum stóra sínum í marki City. Seinni leikurinn fer fram á Santiago Bernabeu eftir viku. SLæMAR FRÉTTiR AF SöRU Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir meiddist aftan í læri á æfingu með sænska liðinu Rosengård og séu þessi meiðsli eins slæmt og óttast er þá gæti þetta haft áhrif á þátttöku hennar í mikilvægum leik á móti Skotum eftir rúman mánuð. Meiðslalisti Rosengård-liðsins er orðinn mjög langur og þjálfarinn segist þurfa að fara að endurskoða æfingaplan liðsins. Sara er einn mikil- vægasti leik- maður íslenska liðsins og ómissandi á miðj- unni. Til hamingju Snæfells- stelpur og Ingi Þór er maður- inn. Gullstyttan af honum er in the making. #dominos365 Hermann Hauksson @HemmiHauks 2 7 . a p r í l 2 0 1 6 m i ð v i k u d a G u r14 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð SporT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.