Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 4
Viðskipti Íbúðum í eigu Íbúða­ lánasjóðs hefur fækkað um 834 eða tæplega fjörutíu prósent á síðustu tveimur árum. Í lok mars 2016 voru 1.287 eignir í eigu Íbúðalánasjóðs samanborið við 2.121 í mars árið 2014. Stefnt er að því að þær verði 750 í árslok. Samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði er meirihluti íbúða seldur einstaklingum. Eignir á Suður­ nesjum hafa selst sérstaklega vel á tímabilinu. Íbúðalánasjóður hefur losað fjölda eigna að undanförnu. Í des­ ember síðastliðnum voru svo 504 eignir í fimmtán eignasöfnum settar í söluferli og rann tilboðsfrestur út þann 3. febrúar síðastliðinn. Í síð­ ustu viku var tilkynnt að nú þegar hafi Íbúðalánasjóður og Heima­ vellir náð samkomulagi um sölu á 139 þeirra íbúða. Markmiðið er að selja eftirstandandi eignir í safninu á árinu. Á síðustu tveimur árum hefur íbúðum Íbúðalánasjóðs á öllu land­ inu fækkað mismikið eftir lands­ hlutum, eða um fimm til fimmtíu og þrjú prósent. „Sala eigna hefur tekið vel við sér á flestum markaðs­ svæðum í landinu en þó misfljótt. Nú er lífleg sala nánast um land allt en mismikil þó eftir landsvæðum eins og fram kemur um Suðurnes,“ segir Ágúst Kr. Björnsson, forstöðu­ maður fullnustueigna Íbúðalána­ sjóðs. Íbúðum í eigu sjóðsins hefur fækkað um 432 á Suðurnesjum á tímabilinu. Ágúst segir að mikil eignasala á Suðurnesjum tengist að líkindum sterkara atvinnulífi, upp­ byggingu í ferðamannaþjónustu og fjölgun starfa á Keflavíkurflugvelli. Til stendur að selja níu hundruð eignir á árinu 2016. Nú hafa 313 Fjörutíu prósent færri íbúðir nú í eigu Íbúðalánasjóðs Á tveimur árum hefur eignum Íbúðalánasjóðs fækkað um átta hundruð. Stefnt er að sölu níu hundruð eigna á árinu. Mikil eignasala hefur átt sér stað á Suðurnesjum. Meirihluti íbúða er seldur einstaklingum. eignir selst og búið að samþykkja kauptilboð í 331 eign til viðbótar. Á sama tíma er áætlað að þrjú hundruð eignir bætist við safnið. Markmiðið er því að í árslok 2016 verði eignir orðnar um sjö hundruð. „Helsta ástæða þess að þrjú hundruð eignir bætast við á árinu er að nú er verið að ljúka úrvinnslu þungra greiðsluerfiðleikamála þar sem þessar eignir hafa verið í sér­ stakri skuldameðferð sem ekki hefur gengið upp eða hafa ekki náð að fá lausn í slíkum úrræðum. Þá er stundum um að ræða eignir þar sem eigendur eru fluttir til annarra landa og þar af leiðandi hefur tekið lengri tíma að ná fram fullnustu. Ætla má að til lengri tíma litið komi inn í kringum 100 eignir að jafnaði á ári af slíkum ástæðum,“ segir Ágúst. Íbúðum í eigu fjármálastofnana fækkaði verulega á síðustu tveimur árum. Frá desember 2013 til des­ ember 2015 fækkaði þeim úr 3.532 í 2.246, eða um 46 prósent. Samkvæmt upplýsingum frá Íbúða lánasjóði er meirihluti eigna seldur einstaklingum í gegnum fast­ eignasölur. Frá ársbyrjun 2008 til 24. apríl 2016 hefur sjóðurinn selt 3.159 eignir. Af þeim hafa 425 eignir farið í tveimur pakkasölum til leigufélaga, þá hafa 450 eignir farið í dótturfélag sjóðsins, Leigufélagið Klett. Ágúst segir að eignir Íbúðalána­ sjóðs séu seldar á markaðsverði, hvort sem þær séu seldar leigu­ félögum eða öðrum. „Við sölu eigna leggur Íbúðalánasjóður áherslu á að verðleggja eignir sem allra best í takt við markaðsvirði þeirra eftir því á hvaða landsvæði þær eru og eftir því í hvaða ástandi þær eru. Rétt er að benda á að markaðsvirði eigna er mjög mismunandi eftir landsvæðum, hæst í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu og lægra í öðrum landshlutum. Þá eru til svæði þar sem markaðsverð er einungis brot af verði sambærilegrar eignar í Reykjavík,“ segir Ágúst. saeunn@frettabladid.is samtals 1.287 2.121 4000 3000 2000 1000 des. '13 ✿ Íbúðir í eigu fjármálastofnana ✿ Fullnustueignir ÍLs eftir landshlutum des. '14 des. '15 39,3 % Vestfirðir 52 71 Norðurland v. 19 20 27 % 5 % Höfuðb. 215 394 45 % Vesturland 145 250 42 % suðurnes 382 814 53 % suðurland 160 290 45 % Austurland 231 175 32 % Norðurland e. 83 107 22 % n Mars 2016 n Mars 2014 ReykjAVÍkuRboRg Mikill sandur á götum veldur slysum á hjólreiðafólki og eykur hættu á svifryksmengun. Nú hefur verið ákveðið að falla frá þeirri ákvörðun að spara í þvotti á götum Reykjavíkurborgar og verður hafist handa á næstu dögum. „Við endurskoðuðum þessa hug­ mynd um að spara húsagötuþvott,“ segir Hjálmar Sveinsson, borgar­ fulltrúi Samfylkingar og formaður umhverfis­ og skipulagsráðs. Framsókn og flugvallarvinir lögðu það til á borgarráðsfundi fimmta apríl að götur borgarinnar yrðu þrifnar með sama hætti og verið hefur undanfarin ár og gagnrýndu ákvörðun um að þvo ekki húsa­ götur borgarinnar sem var tekin af umhverfis­ og skipulagssviði Reykja­ víkurborgar til þess gæta aðhalds í rekstri borgarinnar. Sparnaðurinn var áætlaður þrjár milljónir króna. Kvartanir bárust vegna ákvörðun­ arinnar frá hjólreiðafólki, gangandi vegfarendum og almennum borg­ urum. Kvartað var undan því að sandur á götum auki hættu á svifryks­ mengun. Þá ylli sandur á götum meiri slysahættu. Hjól rynnu til í sand­ inum eins og í hálku. Þá var almennt kvartað yfir óþrifnaði og borgarbúar bentu á að hluti af lögbundinni þjón­ ustu sveitarfélaga væru þrif á götum. „Það verður brugðist við þessu og það verður byrjað að sópa og þvo á mánudaginn. Það er byrjað núna að forsópa götur, þá er verið að taka upp það mesta áður en við gerum allt spikk og span,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsingarfulltrúi Reykja­ víkurborgar. – kbg Borgin ætlar að bregðast við gagnrýni og þvo götur Borgarbúar hafa kvartað undan miklum sandi á götum og stígum. Hafist verður handa við þvott næstu daga. FréttaBlaðið/Heiða SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar Korputorg 112 Reykjavík Sími 551 5600 utilegumadurinn.is FERÐAVAGNAR KAUPLEIGA GRÆNIR BÍLAR Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16 Þýsk gæði Karlmaðurinn sem lést eftir að hafa fallið útbyrðis af báti á veiðum á Húnaflóa austur af Drangsnesi hét Ólafur Jóhannes Friðriksson. Hann var fæddur árið 1962. Ólafur Jóhannes var til heimilis á Hólmavík. Kyrrðar­ stund verður haldin í Hólma­ víkur kirkju klukkan 17 á morgun. Lést í sjóslysi spáNN Pedro Sanches, leiðtogi spænska Sósíalistaflokksins, hefur gefið frá sér stjórnarmyndunar­ viðræður. Hann segist ekki geta myndað starfhæfan stjórnarmeiri­ hluta á þingi. Búist er við að gengið verði til kosninga seinni partinn í júní, lík­ lega þann 26. Ekkert hefur gengið í stjórnar­ myndunarviðræðum frá því þing var kosið á Spáni stuttu fyrir síðustu jól. Tveir nýir eða nýlegir flokkar, Podemos og Ciudadanos, unnu stóra sigra en gömlu flokkarnir tveir, Sósíalistaflokkurinn og Þjóðar flokkurinn, guldu afhroð. Gömlu flokkarnir tveir fengu ekki nægan þingstyrk samtals til að starfa saman. Vinstri flokkarnir tveir, Sósíalistar og Podemos, náðu heldur ekki nægum þingmanna­ fjölda til stjórnarmyndunar og sömu sögu er að segja um hægri flokkana tvo, Þjóðarflokkinn og Ciudadanos. – gb Kosið verður aftur á Spáni Pedro Sanches, leiðtoga Sósíalista- flokksins, tókst ekki að mynda stjórn. FréttaBlaðið/ePa Viðskipti Unnur Gunnarsdóttir, for­ stjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að ekki nægi fyrir framkvæmdastjóra líf­ eyrissjóðs að tilkynna viðskipti með aflandsfélög til stjórnar lífeyrissjóðs­ ins. Samkvæmt lögum ber honum að afla leyfis stjórnar. Í lögunum er einnig tekið fram að eignarhlutur í fyrirtæki teljist þátt­ taka í atvinnurekstri nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórn þess. „Komi upp það tilvik að fram­ kvæmdastjóri lífeyrissjóðs stofni eða kaupi verulegan eignarhlut í fyrirtæki er honum því skylt að leita fyrirfram samþykkis stjórnar fyrir viðskiptum,“ segir Unnur Gunnars­ dóttir. Í umfjöllun Kastljóss á mánudag kom fram að tveir framkvæmda­ stjórar íslenskra lífeyrissjóða tengd­ ust nokkrum aflandsfélögum. Kári Arnór Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Stapa, og Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða líf­ eyrissjóðsins, voru báðir skráðir eigendur aflandsfélaga og hvorugur þeirra aflaði leyfis stjórnar fyrir þátt­ töku sinni í viðskiptunum. Jón Bjarni Gunnarsson, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins, sagði í samtali við mbl.is að hann teldi ekki víst að Kristján Örn hafi gerst brotlegur með því að tilkynna stjórninni ekki um félögin. Staða Kristjáns Arnar verður rædd á stjórn­ arfundi lífeyrissjóðsins í dag. – þv Framkvæmdastjórum bar að afla leyfis Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins. FréttaBlaðið/ernir Komi upp það tilvik að framkvæmda- stjóri lífeyrissjóðs stofni eða kaupi verulegan eignarhlut í fyrirtæki er honum því skylt að leita fyrirfram samþykkis stjórnar fyrir viðskiptum Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins Nú er lífleg sala nánast um land allt en mismikil þó eftir land- svæðum. Ágúst Kr. Björnsson, forstöðumaður fullnustueigna Íbúðalánasjóðs 2 7 . A p R Í L 2 0 1 6 M i ð V i k u D A g u R4 F R é t t i R ∙ F R é t t A b L A ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.