Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.04.2016, Blaðsíða 18
„Þetta er hefur verið mjög dapur- legt. Ég vann þarna í þrjú ár í mis- munandi nefndum og þekki marga þarna,“ segir Calderón um FIFA- hneykslið svokallaða. Margir af æðstu stjórnendum FIFA sæta rannsókn hjá FBI, meðal ann- ars vegna gruns um að hafa selt atkvæði sín þegar val á stórmótum fór fram. Sepp Blatter, sagði af sér sem forseti FIFA í febrúar síðast- liðnum eftir 18 ár í starfi. Calderón segir að meðferðin á Blatter hafi að sumu leyti verið ósanngjörn. „Ég tel að í tilfelli for- setans séu hlutirnir ekki alveg skýrir. Ég held að hann hafi ekki hagnast eins og hann var sakaður um að hafa gert. Kannski gat hann ekki stýrt gjörðum annarra,“ segir Calderón. „Þeir misnotuðu stöðu sína til að draga sér fé ólöglega. For- setinn gerði það ekki.“ „Ég þekki hann vel, hann hefur unnið allt sitt líf fyrir fótboltann, markmið hans var að styðja við fótboltann, en ekki að hagnast. Það var eitthvað sem aðrir gerðu, sem stundum er ekki hægt að stýra,“ segir Calderón um Blatter. Calderón hefur trú á að nýkjör- inn forseti FIFA, Gianni Infantino, geti stuðlað að siðbót innan FIFA. Hann þekki Infantino af góðu einu frá tíð hans sem framkvæmdastjóri UEFA. „Það sem hefur gerst hefur haft slæmar afleiðingar fyrir ímynd knattspyrnunnar, það er ekki spurning. Við verðum að berjast til að breyta þessu.“ Telur meðferðina á Blatter að sumu leyti ósanngjarna Það er ekki ofsögum sagt að Real Madrid sé stærsta knattspyrnulið heims. Ell-efu ár í röð hefur það verið tekjuhæsta knattspyrnu- lið í heimi og hefur unnið spænsku deildina og Meistaradeild Evrópu oftast allra. Þegar Ramón Calderón tók við sem forseti Real Madrid árið 2006 hafði liðið ekki unnið titil í þrjú ár þrátt fyrir að fráfarandi for- seti, Flor entino Pérez, hefði fjárfest í mörgum af stærstu stjörnum knatt- spyrnuheimsins, leikmönnum á borð við hinn brasilíska Ronaldo, Zinedine Zidane og David Beckham. Hugarfarið ekki rétt Calderón segist hafa viljað breyta hugarfarinu hjá félaginu þegar hann Hugarfar leikmanna var ekki rétt Ingvar Haraldsson ingvar@frettabladid.is tók við sem forseti. Hann hafði hafið bein afskipti af Real Madrid um alda- mótin og starfaði sem stjórnarmaður til ársins 2006. „Þau sex ár sem ég var stjórnarmaður var módelið mjög gott að mörgu leyti. Því við vildum fá bestu leikmennina, á hinu svokölluðu Galácticos-tímabili. En við gleymdum að með hæfileikum og leikni þyrfti vinnusemi, fórnfýsi og aga, sem er nauðsynlegt til að ná árangri í lífinu og í íþróttum,“ segir Calderón. „Þegar forsetinn hætti sagði hann að hann hefði að sumu leyti ofdekrað leikmennina. Með hjálp þjálfarans, Capello, og Mijatović, yfirmanns knattspyrnumála, tókst okkur að halda bestu leikmönnunum en einnig að innleiða það hugarfar að búningurinn og merkið væri ekki nóg til að vinna leiki. Við skiptum um 14 leikmenn á einu ári og unnum deild- ina tvö ár í röð. Við unnum Barcelona með sömu leikmenn og þeir hafa nú, Messi, Iniesta, Xavi, leikmennina sem allir þekkja.“ „Ég ákvað að setja borða í alla bún- ingsklefa hjá liðinu, þar á meðal á Bernabeu-vellinum, þar sem stóð: Við getum tapað þótt við leggjum hart að okkur en ef við leggjum ekki hart að okkur þá höfum við tapað. Það var heimspekin sem við ákváðum að vinna eftir.“ Stuðningsmennirnir aldrei saddir Þrátt fyrir að vera sigursælasta lið heims eru stuðningsmenn Real Madrid sjaldan fyllilega sáttir. „Það finnst öllum að þú verðir að vinna alla titla sem í boði eru á hverju ári og spila vel og skora fleiri mörk en allir aðrir. Það er ekki hægt. Ég reyndi að útskýra að það liðu 32 ár frá því að við unnum sjötta meistaradeildartitilinn árið 1966 þar til við unnum þann sjö- unda árið 1998,“ segir Calderón. Því tók Calderón þá ákvörðun að segja upp þjálfaranum, Fabio Capello, sumarið 2007, eftir ár í starfi þrátt fyrir að hann hefði tryggt liðinu fyrsta titilinn í fjögur ár. Liðið þótti ekki leika nægilega áferðarfallega knattspyrnu. „Ég vissi sem stjórnarmaður að pressan væri mikil. En þegar þú ert forseti ertu í æðsta embættinu og berð mesta ábyrgð. Þú veist að milljónir eru að fylgjast með, hvort leikmenn- irnir sem þú kaupir séu þeir réttu, hvort þjálfarinn sé sá rétti. Mikil- vægi félagsins er gífurlegt,“ segir Calderón. Laða þá bestu til Madrid Viðskiptamódel Real Madrid hefur byggst á því að vera tilbúið að greiða háar upphæðir fyrir bestu leik- menn heims, sem tryggja eiga lið- inu styrktaraðila og áframhaldandi árangur. „Þetta er það sem við köll- um jákvæða hringrás. Með því að laða að sér bestu leikmennina færð þú meira fé í styrktarsamninga því fyrirtæki hafa meiri áhuga á félag- inu, verðmætari sjónvarpssamninga því sjónvarpsstöðvarnar hafa meiri áhuga á að sýna leikina þína og með bestu leikmönnunum vinnur liðið fleiri titla sem gefa af sér meira fé. Þú þarft að nýta peningana sem þú færð á ábyrgan hátt, til að kaupa bestu leikmennina þegar þeir eldri fara að hætta eða fara til annarra liða. Það er hugmyndin og kerfið sem hefur verið við lýði og skilað okkur miklum árangri.“ Að sögn Calderóns urðu tals- verðar breytingar hjá Real Madrid fjárhagslega í forsetatíð hans, tekjur af sjónvarpssamningum hafi þre- Ramón Calderón segir álagið sem fylgir starfi forseta Real Madrid gífurlegt. Liðið vann deildina tvívegis á ríflega tveimur árum. Hann hætti svo á miðju kjör- tímabili, búinn að fá nóg af ferðalögum og deilum. Hann vill kynna Ísland fyrir heiminum. Calderón fagnar deildarmeist- aratitli eftir sitt fyrsta tímabil sem forseti Real Madrid. NoRdiCpHotoS/getty Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir haust- prófum í verðbréfaviðskiptum sem hér segir: Próf úr I. hluta 10. ágúst 2016 Íslensk réttarskipun og Evrópu- réttur, Ábyrgðir, Ágrip úr réttarfari. 11. ágúst 2016 Viðfangsefni úr fjármunarétti, Félagaréttur. 12. ágúst 2016 Viðskiptabréfareglur, Veðréttindi, Þinglýsingar Próf úr II. hluta 15. ágúst 2016 Grunnatriði í fjármálafræðum. 16. ágúst 2016 Þjóðhagfræði. 17. ágúst 2016 Greining ársreikninga. Próf úr III. hluta 18. ágúst 2016 Lög og reglur um fjármagns- markaðinn. 19. ágúst 2016 Markaðsviðskipti og viðskipta- hættir. 22. ágúst 2016 Helstu tegundir verðbréfa og gjaldeyrir: Hlutabréf, Skuldabréf, Afleiður og gjaldeyrir. 23. ágúst 2016 Fjárfestingarferli: Samval verðbréfa og sjóðastýring, Ráðgjöf og skattamál. Próftími er 4 klukkustundir og tímasetning hvers prófs er 17:00-21:00. Prófsefni greinir í prófsefnislýsingu prófnefndar verðbréfaviðskipta. Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í einstaka prófum. Prófsefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði próf- nefndar verðbréfaviðskipta á heimasíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis: http://www.fjarmalaraduneyti.is/raduneytid/nefndir/ nr/16884 Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0. Skráning í haustprófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans í HR http://www.ru.is/opnihaskolinn/prof-i-verdbrefavid- skiptum/ Skráningu í haustpróf lýkur 20. júní 2016. Prófgjald vegna haustprófa er kr. 16.500 fyrir hvert próf. Vakin er athygli á að haustpróf verður ekki haldið nema að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í við- komandi próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. Haustprófin verða haldin í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, framkvæmda- raðila verðbréfaviðskiptaprófs veturinn 2015-2016. Tilkynning um þau haustpróf sem verða haldin, verða send út til skráðra próftaka 27. júní 2016. Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir út vegna prófa sem verða haldin. Skráning í próf er bindandi og og greiðsluseðlar verða ekki felldir niður. Reykjavík, 27. apríl 2016. Prófnefnd verðbréfaviðskipta Haustpróf í verðbréfaviðskiptum 2016 Þekkt umboð fyrir eldhús- innréttingar Vegna breytinga á rekstri fyrirtækisins er innréttingadeild þess til sölu. Fyrirtækið hefur umboð fyrir þekkt evópskt merki á sviði eldhúsinnréttinga og fataskápa. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki eða aðila í skyldum rekstri. Lítil fjárbinding í lager. Árleg velta á bilinu 70 - 100 milljónir. Áhugasamir hafi samband við Gunnar Svavarsson; gunnar@kontakt.is – sími 414 1200 H au ku r 0 4 .1 6 Til sölu: 2 7 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r4 markaðurinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.