Fréttablaðið - 27.04.2016, Page 13
Aðgangur að tryggu rafmagni er forsenda lífsgæða eins og kom berlega í ljós á Reykja-
nesi fyrir rúmu ári þegar járnplata
fauk á Suðurnesjalínu 1 og olli
nokkurra klukkutíma straumleysi á
svæðinu. Auk hefðbundinna afleið-
inga straumleysisins fyrir heimili
og fyrirtæki, svo sem fjárhagstjóns
og óþæginda, urðu einnig verulegar
truflanir á fjarskiptum, röskun á
tækjabúnaði Keflavíkurflugvallar
ásamt ýmsum öðrum atvikum sem
tengjast öryggi almennings.
Þessi atburður þann 6. febrúar
2015 sýndi í hnotskurn hve við-
kvæmt flutningskerfi raforku á
Reykjanesi er, eins og Landsnet
hefur bent á í rúman áratug, en nú
hillir loksins undir úrbætur með
byggingu Suðurnesjalínu 2.
Þörf fyrir bætta tengingu
Ánægjulegt var að sjá Örn Þor-
valdsson, rafiðnaðarmann og
fyrrverandi starfsmann Lands-
virkjunar og Landsnets, taka undir
þau meginrök Landsnets í grein
í Fréttablaðinu 21. apríl 2016 að
þörf væri fyrir lagningu annarrar
flutningslínu út á Reykjanes til að
auka afhendingaröryggi kerfisins
þar. Eina tenging Reykjaness í dag
við meginflutningskerfi Landsnets
er um Suðurnesjalínu 1, þannig að
öryggi flutningskerfisins á svæðinu
er algerlega ófullnægjandi, eins og
dæmin sanna.
Ekki er deilt um að þörf er á
annarri flutningslínu til að tryggja
afhendingaröryggi raforku á
Reykjanesi. Jafnframt er flutnings-
geta Suðurnesjalínu 1, sem rekin
er á 132 kV spennu, nú fullnýtt á
stundum eins og fleiri háspennu-
línur í flutningskerfi Landsnets.
Orkutap í raforkuflutningskerf-
inu er í dag um 350-400 GWst á ári,
eða sem samsvarar raforkufram-
leiðslu virkjunarinnar í Svartsengi.
Ein besta leiðin til að auka nýtni
orkuframleiðslunnar og draga úr
orkutapi í flutningskerfinu er að
hækka spennu á línum sem eru
mikið lestaðar. Á Reykjanesi blasir
jafnframt við að erfitt væri að nýta
þá jarðhitakosti sem settir eru fram
í nýtingarflokki Rammaáætlunar á
Suðurnesjum án þeirrar viðbótar-
flutningsgetu sem bygging Suður-
nesjalínu 2 skapar, en hún verður
byggð svo hana megi reka á 220 kV
spennu.
Bæði núverandi virkjanir á
Reykjanesi og virkjanakostir þar
í nýtingarflokki rammaáætlunar
byggjast á jarðvarma. Slíkar virkj-
anir henta illa þegar bregðast þarf
við sveiflum í raforkukerfinu og
halda uppi jafnvægi milli fram-
leiðslu og eftirspurnar á orku-
markaði og það hefur valdið vand-
kvæðum og straumleysi á svæðinu
þegar Suðurnesjalína 1 hefur farið
úr rekstri vegna viðhalds eða trufl-
ana, eins og sýndi sig í áðurnefndri
truflun 6. febrúar 2015 . Af þessum
sökum er afar mikilvægt að Reykja-
nes búi yfir sterkum tengingum við
meginflutningskerfið, einkum og
sér í lagi þegar bætast við fleiri jarð-
varmavirkjanir innan svæðisins.
Sveigjanleiki mikilvægur
Sveigjanleiki í flutningskerfinu er
ekki eingöngu vegna virkjana held-
ur einnig til að styðja við vöxt í raf-
orkunotkun hjá heimilum, iðnaði
og annarri margvíslegri atvinnu-
starfsemi á Suðurnesjum.
Með byggingu 220 kV Suðurnes-
jalínu 2 verður byggt upp sterkt
hryggjarstykki í flutningskerfinu
á Suðurnesjum. 220 kV flutnings-
línur eru að öllu jöfnu betur í
stakk búnar til að standast ytri
áraun en 132 kV línur. Enn fremur
mun tenging Suðurnesja á 220 kV
hafa í för með sér að raffræðilegur
styrkur flutningskerfisins á Suður-
nesjum mun aukast meira en verið
hefði með 132 kV tengingu. Þessi
aukni styrkur veldur því að hætta á
spennusveiflum og annarri röskun
spennugæða vegna truflana í kerf-
inu minnkar.
Núverandi virkjanir á svæðinu,
ásamt virkjanakostum í nýtingar-
flokki rammaáætlunar, telja rúm-
lega 400 MW uppsetts afls. Það
er meira en tvöfalt það afl sem
dæmigerð 132 kV lína getur flutt
en við hönnun kerfisins verður að
gera ráð fyrir að hægt sé að flytja
megnið af þeirri framleiðslu út af
svæðinu um eina flutningslínu, svo
Brýnt að styrkja flutningskerfi
raforku á Reykjanesi
Sverrir Jan
Norðfjörð
framkvæmda-
stjóri þróunar- og
tæknisviðs Lands-
nets
Eina tenging Reykjaness í
dag við meginflutningskerfi
Landsnets er um Suðurnesja
línu 1, þannig að öryggi
flutningskerfisins á svæðinu
er algerlega ófullnægjandi,
eins og dæmin sanna.
skilyrðum um afhendingaröryggi
sé fullnægt.
Á Reykjanesi hefur átt sér stað
mikil þróun á orkuvinnslu og
orkunotkun undanfarin ár. Áætl-
anir gera ráð fyrir að sú þróun muni
halda áfram á komandi árum og
því er það mat Landsnets að ekki
sé ásættanlegt að tengja svæðið
einungis á 132 kV spennustigi. MYND/VerkfræðiStofaN efla
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 2 7 . A p R í L 2 0 1 6