Fréttablaðið - 27.04.2016, Qupperneq 16
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Umsjón Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir | Forsíðumynd Ernir Eyjólfsson
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Skjóðan
Við tökum varfærið
skref af því að það
er margt óljóst með hvernig
svona fjárfestingar geti átt sér
stað.
Ingi Rafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Karolina Fund
miðvikudagur 27. apríl
Hagstofa Íslands Vinnumarkaður í
mars 2016
ÞJóðsKrá Íslands Hverjir eiga við-
skipti með íbúðarhúsnæði?
Össur Uppgjör fyrsta ársfjórðungs
fJarsKipti Uppgjör fyrsta ársfjórðungs
nýHErJi Uppgjör fyrsta ársfjórðungs
Fimmtudagur 28. apríl
Hagstofa Íslands Gistinætur og
gestakomur á hótelum í mars 2016
Vísitala neysluverðs í apríl 2016
icElandair group Uppgjör fyrsta
ársfjórðungs
árborg Ársreikningur 2015
rEyKJavÍKurborg Ársreikningur
2015
sÍminn Uppgjör fyrsta ársfjórðungs
sJóvá Uppgjör fyrsta ársfjórðungs
n1 Uppgjör fyrsta ársfjórðungs
Föstudagur 29. apríl
Hagstofa Íslands Verðmæti sjávar-
afla, janúar 2015 til janúar 2016.
Vísitala framleiðsluverðs í mars 2016
Nýskráningar og gjaldþrot hlutafélaga
og einkahlutafélaga í mars 2016
Vísitala framleiðsluverðs í mars 2016
Vöruviðskipti við útlönd, janúar–mars
Á döfinni
Vikan sem leið
már guðmundsson er bankastjóri
Seðlabanka Íslands. Sem slíkur
kemur hann reglulega á fundi efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis
til að gefa skýrslur um stöðu mála og
svara spurningum nefndarmanna.
á mánudaginn kom Már á fund
nefndarinnar. Hann var krafinn
svara um það hvers vegna peninga-
stefnunefnd Seðlabankans heldur
vöxtum jafn háum og raun ber vitni
á sama tíma og verðbólga hefur í
mörg misseri haldist í sögulegu lág-
marki. Hann var einnig spurður að
því hvers vegna húsnæðiskostnaður
sé hafður inni í vísitölu hér en ekki
erlendis og hvers vegna bankinn
noti ekki frekar bindiskyldu en
vaxtatækið í baráttu sinni við verð-
bólgu.
Ef fyrir framan þingnefndina
hefði setið umsækjandi um starf
hagfræðings í Seðlabankanum eru
engar líkur á að hann hefði verið
ráðinn í starfið. Svo umfangsmikil
voru undanvik frá spurningum og
yfirgripsmikil fáfræðin.
En Þarna sat ekki nýútskrifaður
hagfræðingur heldur seðlabanka-
stjórinn sjálfur. Hann gat með engu
móti gert grein fyrir því hvers vegna
húsnæðiskostnaður er reiknaður
inn í vísitölu hér á landi en ekki
í öðrum löndum. Þessi spurning
er þó áleitin sökum þess að hér á
landi uppfærast höfuðstólar flestra
neytendalána í takt við vísitöluna
en slíkt tíðkast alls ekki í öðrum
löndum.
sEðlabanKastJórinn sagðist
hafa fengið uppáskrift Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins á ágæti þess að
stýrivextir hér eru mörg hundruð
sinnum hærri en í sumum helstu
nágrannalöndum okkar þó að verð-
bólgan sé á svipuðu róli hér og þar,
alla vega ef notaðar eru áþekkar
forsendur útreikninga. AGS er
vitanlega ánægður með hina háu
stýrivexti, sem skapa vaxtamunar-
viðskipti upp á tugi eða jafnvel
hundruð milljarða, sem alla skal
nota til að hleypa spákaupmönnum
og kröfuhöfum, sem læstust inni
með peningana sína á Íslandi í
hruninu, út úr íslenska hagkerfinu.
Hagsmunagæsla spákaupmanna og
kröfuhafa er verkefni AGS. Hvernig
borga á nýju snjóhengjuna í fyllingu
tímans er annað mál. Sennilega
verða vextirnir þá hækkaðir enn
frekar með sérstakri blessun AGS.
fram Kom á fundinum að seðla-
bankastjóri segist vita nákvæmlega
hver áhrif vaxtabreytinga eru á
hagkerfið en hefur litla hugmynd
um áhrif bindiskyldu. Samt hefur
verðbólguspá Seðlabankans verið
kolvitlaus í mörg ár eða jafnvel ára-
tugi. Hvernig má það vera ef Seðla-
bankinn veit upp á hár hver áhrif
vaxtastefnu hans eru? Og, af hverju
hefur bankastjórinn ekki hugmynd
um áhrif breytilegrar bindiskyldu?
Ber honum ekki að kynna sér þau
tæki sem honum standa til boða í
sínu mikilvæga starfi?
nýÚtsKrifaður hagfræðingur að
koma úr starfsviðtali hefði gert sér
fulla grein fyrir því að hann klúðraði
viðtalinu og fengi ekki starfið enda
ætti hann ekkert erindi í það.
Starfsviðtali klúðrað
1,3
milljarða
þarf VÍS að greiða Lífeyrissjóði
verkfræðinga, Lífsverki, í skaða-
bætur vegna kröfu lífeyrissjóðsins
í ábyrgðartryggingu stjórnar og
stjórnenda. Málið snerist um tvær
fjárfestingar í mars og september
2008. Dómurinn féllst að hluta til á
kröfur Lífsverks. Málinu hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
2,7
milljónir króna
var Vodafone dæmt til að greiða í
skaðabætur til þriggja einstaklinga
vegna Vodafone-lekans svokallaða
í nóvember 2013. Héraðsdómur
úrskurðaði í dag í fimm málum
en samtals var farið fram á 103,8
milljónir í skaðabætur. Félagið
var sýknað af tveimur skaðabóta-
málum.
Íslenska fyrirtækið Karolina Fund,
sem sérhæfir sig í hópfjármögnun á
netinu, er byrjað að leigja hugbúnað
sinn til fyrirtækis í Slóveníu og er jafn-
framt í þann mund að hefja samstarf
við aðila í Finnlandi og Danmörku.
Að auki er Karolina stór hluthafi í
fyrirtæki sem mun hefja starfsemi í
Noregi í sumar. Til þess að takast á við
aukna starfsemi hyggjast stjórnendur
fyrirtækisins sækja sér fjármagn til
fjárfesta. Hugsanlega með því að nota
hópfjármögnun, sem yrði þá fyrsta
hóphlutafjármögnun af þessu tagi á
Íslandi
„Við erum að hugsa um að fara af
stað með þetta fljótlega núna á næst-
unni,“ segir Ingi Rafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Hugmyndin, sem hefur þó ekki verið
meitluð í stein, er að í fyrstu umferð
verði safnað einni milljón evra, jafn-
virði um 140 milljóna króna, fyrir 10
prósenta hlut í fyrirtækinu. Svo verði
farið í aðra umferð eftir einhvern
tíma.
„Við tökum varfærið skref af því
að það er margt óljóst með hvernig
svona fjárfestingar geti átt sér stað.
Þannig að við ætlum að taka létta
útgáfu þar sem fólk getur skráð sig
hjá okkur og svo þarf lokaútboð að
eiga sér stað í framhaldi af því,“ segir
Ingi Rafn.
Karolina Fund hóf starfsemi í
október 2012, en þá hafði Ingi Rafn
verið að móta hugmyndina í fjögur
ár með meðstofnendum sínum. Síðan
þá hefur orðspor fyrirtækisins vaxið
mjög hratt hér á landi. Ingi Rafn segir
að auk þeirra fyrirtækja sem Karolina
Fund er þegar komið í samstarf við
séu mörg fleiri sem bíði, en verði ekki
hægt að þjónusta nema fyrirtækið
fjármagni umsvifameiri starfsemi
Ingi Rafn bendir á að Karolina
Fund sem fólk þekkir hérna á Íslandi
sé toppurinn á ísjakanum en stærstur
hluti starfseminnar sé rekinn undir
allt öðru vörumerki annars staðar
í heiminum. „Þetta er að einhverju
leyti farið að minna á módel Meniga,“
segir hann. Hann bendir á að mark-
aðshlutdeildin hér heima sé yfir 90
prósent. „Þetta er áhugaverður staður
fyrir start-up fyrirtæki, að hafa komist
í gegnum frumraun hugmynda og fá
staðfestingu á að þetta er að virka,“
segir Ingi Rafn. jonhakon@frettabladid.is
Fjármagna starfsemina
með hópfjármögnun
Karolina Fund hyggst fara í samstarf við aðila víða í Evrópu og á hlut í norsku
fyrirtæki. Ætlar að fjármagna starfsemina með hóphlutafjármögnun, sem
framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að sé hin fyrsta sinnar tegundar.
Ingi Rafn stofnaði Karolina Fund með félögum sínum árið 2012 en hafði þá unnið að undirbúningi að stofnun fyrirtækisins
um árabil. FRéttablaðIð/VIlhelm
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Áhugasamir hafi samband við Guðna Halldórsson;
gudni@kontakt.is. Sími 4141200
H
a
u
ku
r
0
4
.1
6
Hótel Siglunes
Hótel Siglunes er lítið og mjög fallegt hótel/guesthouse á
besta stað í ferðamannabænum Siglufirði.
Um er að ræða 19 herbergi, fullbúinn veitingastað sem tekur
um 40-50 manns í sæti og skemmtilegur 40-50 manna bar
með útisvæði.Hótelið er rekið í eigin húsnæði sem er samtals
um 900 fermetrar.
Til sölu:
á Siglufirði
Frábært tækifæri fyrir einstaklinga eða hjón sem vilja
hasla sér völl í mest vaxandi atvinnugrein landsins
á þessum einstaka ferðamannastað.
Frábærir dómar viðskiptavina!!
booking.com 9,1
Lonely Planet (stærsta ferðahandbók heims) gefur hótelinu
"Must-visit recommendation” með umsögninni "Personality
shines through in this cool guesthouse, where vintage
furniture is paired with contemporary art and ultramodern
bathrooms in the hotel-standard wing. There's equally appealing
guesthouse rooms, a big dining hall, and cosy bar area".
2 7 . a p r Í l 2 0 1 6 m i ð v i K u d a g u r2 markaðurinn