Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 21

Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 21
Garðar & hellulagnir 27. apríl 2016 Kynningarblað Stakfell | Brú | Torg | Borg | Lind | 101 Reykjavík | Ás Verslanir Húsasmiðjunnar og Blómavals eru flestar undir sama þaki víða um land. Eina af stærri verslunum landsins er að finna í Grafarholtinu í Reykjavík þar sem viðskiptavinir geta fundið allt fyrir garðinn og pallinn á einum stað auk þess sem fjöldi reynslu- mikilla starfsmanna aðstoðar við- skiptavini við val á réttu vörunum. Sigurður Svavarsson er rekstrar- stjóri Húsasmiðjunnar í Grafar- holti. Hann segir stærstu timbur- sölu Húsasmiðjunnar vera þar til húsa og bæði einstaklingar og fag- menn séu þjónustaðir jöfnum hönd- um. „Við búum svo vel að hafa frá- bæra sölumenn og ráðgjafa sem búa yfir mikilli reynslu og þekk- ingu. Þeir aðstoða viðskiptavini við val á efni og gefa tilboð í sólpall- inn, sumarhúsið eða hvað sem er.“ Húsasmiðjan hefur í mörg ár teiknað palla fyrir viðskiptavini sína og nú sér garðahönnuður um að teikna pallinn í þrívídd. „Þann- ig sjá viðskiptavinir betur hvernig pallurinn kemur til með að líta út. Þessi þjónusta er mjög vinsæl og því best að panta tíma í síma 525- 3000 tímanlega.“ Allt fyrir pallinn Fúavarin fura er alltaf vinsæl- asta pallaefnið að sögn Sigurð- ar en lerki og harðviður hafa líka rutt sér til rúms undanfarin ár og býður Húsasmiðjan upp á allar þessar viðartegundir. „Auk þess bjóðum við upp á margar lausnir í viðarvörn og seljum m.a. eina mest seldu pallaolíu landsins til margra ára sem er frá Jotun Treolje. Versl- unin selur gott úrval viðarvarna fyrir pallinn, skjólvegginn, sum- arhúsið og garðhúsgögnin. Starfs- fólk málningardeilda okkar hefur í mörg horn að líta í maí og fram í júlí þegar flestir landsmanna hefja viðhaldsvinnu sumarsins.“ Auk þess býður Húsasmiðjan upp á gott úrval vara sem gjarnan fylgja pöllum og görðum, t.d. garð- verkfæri, sláttuvélar, garðhúsögn að ógleymdum grillunum. „Húsa- smiðjan hefur verið einn stærsti seljandi gasgrilla á landinu sl. 20 ár og seljum við m.a. þekkt vöru- merki á borð við Weber, Broil King og Outback auk úrvals aukahluta fyrir grillin.“ Sumarvörurnar í Blómavali Nú er að hefjast eitt mesta sölu- tímabil Blómavals og verslanir orðnar fullar af sumarvörum og því helsta sem fólk þarf fyrir garð- ræktina. Ekki má gleyma sumar- blómunum en þau koma í verslanir Blómavals á næstu vikum að sögn Ásdísar Ragnarsdóttur, deildar- stjóra Blómavals í versluninni í Grafarholti. „Blómaval hefur alla tíð lagt mikla áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af góðum vörum á góðu verði, allt árið um kring. Við höfum frábært starfs- fólk, þar á meðal garðyrkjufræð- inga sem geta veitt ráð og góðar leiðbeiningar varðandi flest sem snýr að garðinum, matjurtarækt- un og fleiri þáttum.“ Vor og sumar eru annasamir tímar hjá starfsmönnum Blóma- vals en sífellt færist í vöxt að fólk kaupi afskorin blóm fyrir alls konar tilefni. „Viðskiptavinir kaupa hjá okkur skreytingar fyrir ýmis tækifæri og við bjóðum upp á gott úrval af tækifæris vöndum og tilboðsvöndum fyrir heimilið. Það er líka ánægjulegt að sjá hve áhugi á pottaplöntum er að aukast, þá einkum á meðal unga fólksins. Við erum stolt af því mikla úrvali sem við höfum upp á að bjóða, allan ársins hring.“ Verslanir Húsasmiðjunnar og blómavals í grafarholti eru á Vín- landsleið 1, 113 reykjavík. nánari upplýsingar um vöruúrval þeirra má finna á www.blomaval.is og á www.husa.is. allar vörur fyrir garðinn og pallinn undir einu og sama þakinu Húsasmiðjan og blómaval hafa í mörg ár þjónustað heimili og fyrirtæki landsins með vandaðar vörur fyrir pallinn og garðinn. Verslunin í Grafarholti er stærsta timbursala landsins, hefur á að skipa reynslumiklum starfsmönnum auk þess sem sumarvörurnar eru komnar í hús. Húsamiðjan og blómaval bjóða upp á gott úrval vara sem fylgja pöllum og görðum. Sigurður Svavarsson, rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar, og Ásdís ragnarsdóttir, deildar stjóri blómavals, í versluninni í grafarholti. MynDir/Ernir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.