Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 36

Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskulegur eiginmaður minn, Óli Berg Kristdórsson (Óli í Pallaleigunni) f. 13.06. 1946, lést á Landspítalanum 25. apríl. Inger Nordahl Jensen Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gréta Björgvinsdóttir Seljabraut 74, lést mánudaginn 11. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðalheiður Rúnarsdóttir Björgvin Rúnarsson Þorvaldur Egilsson Ingibjörg B. Grétarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sæmundur Þorsteinsson Hryggjum, Mýrdal, andaðist á Hjallatúni, Vík í Mýrdal, 22. apríl. Útförin fer fram frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 30. apríl kl. 14.00. Ásmundur Sæmundsson Ólafur Sæmundsson Guðný Garðarsdóttir Þórhildur Sæmundsdóttir Ásgrímur Guðmundsson Sigrún Sæmundsdóttir Þórarinn Grímsson Höskuldur Sæmundsson Pálína Guðlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, Gísli Maack Álfkonuhvarfi 39, lést á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn 23. apríl. Sigríður Ása Maack Róbert Marvin Gíslason Árni Pétur Maack Jasmina Chow Maack og barnabörn. Okkar ástkæra Árný Snæbjörnsdóttir Droplaugarstöðum, áður Seljalandi 5, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 19. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. maí kl. 15.00. Svanhvít Aðalsteinsdóttir Snæþór Aðalsteinsson Sædís Geirmundsdóttir Börkur Aðalsteinsson Elínborg Jónsdóttir Emma Arnórsdóttir Heiðrún Aðalsteinsdóttir Magnús Ögmundsson og fjölskyldur. Eyvindur Eiðsson síðast búsettur á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést þann 22. apríl. Kistulagning og minningarstund verður föstudaginn 29. apríl í sjúkrahúskapellunni á Akranesi kl. 11.00. Jarðarför fer fram frá Laufáskirkju við Eyjafjörð þann 7. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalarheimilið Höfða. Aðstandendur. Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, Stefán Kristjánsson Tungunesi, Fnjóskadal, lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 24. apríl sl. Útför hans fer fram frá Hálskirkju í Fnjóskadal laugardaginn 30. apríl kl. 14. Alda Sigrún Alexandersdóttir Guðrún Stefánsdóttir Sigurður M. Sigurðsson Torfhildur Stefánsdóttir Guðmundur Sigvaldason Ásta Heiðrún Stefánsdóttir Sigurgeir Sigurgeirsson Svala Kristrún Stefánsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólafía Gunnlaug Guðmundsdóttir (Stella) Tjarnabakka 12, Reykjanesbæ, lést þann 24. apríl sl. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju 29. apríl nk. kl. 13.00. Anna Bára Gunnarsdóttir Guðbjörn Hafsteinsson Svavar Guðni Gunnarsson Lísa Bryndís Matthews Rakel Linda Gunnarsdóttir Viðar Jónasson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, Sigurlaug Jóhanna Bergvinsdóttir félagsliði, Ársölum 1, Kópavogi, lést mánudaginn 25. apríl á Landspítalanum Fossvogi. Útför hennar fer fram í Lindakirkju í Kópavogi föstudaginn 29. apríl kl. 13.00. Sveinn Símonarson Sólveig G. Sveinsdóttir Ragnar Bogi Pedersen Arnbjörg Ó. Sveinsdóttir Símon G. Sveinsson Helena Sif Kristinsdóttir Bergvin J. Sveinsson Hanna G. Brynjarsdóttir Soffía Anna Sveinsdóttir og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og systir, Guðlaug Pétursdóttir (Dolla) Kleppsvegi 40, lést á heimili sínu 22. apríl síðastliðinn í faðmi fjölskyldu sinnar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni 2. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Bjarni Júlíus Einarsson Þórunn Sigurðardóttir Pétur Þór Guðjónsson Sigríður Þóra Þorsteinsdóttir Gísli Finnsson Kolbrún Gígja Björnsdóttir Elísa Finnsdóttir Andri Þór Guðlaugsson barnabörn og systkini. Í skógi vaxinni hvilft skammt fyrir ofan borgina kúrir Waldorfskólinn í Lækjar­ botnum, elsti grunnskóli landsins sem starfar samkvæmt hugmyndafræði Rudolfs Steiner, hins þýska. Nú eru þar 70 börn í 1. til 10. bekk. „Hér erum við í einstöku umhverfi og það er upplifun fyrir börn úr borg­ inni að koma hingað og kynnast nátt­ úrunni í alls konar veðri,“ segir Eiríkur Gunnarsson sem hefur kennt við skólann frá 1993, með fimm ára hléi sem hann notaði til náms erlendis. „Fræinu sáði Sesselja á Sólheimum,“ segir Eiríkur, inntur eftir upphafinu. „Allt frá 1930 vann hún eftir stefnu Steiners og var brautryðjandi á Norður­ löndunum. Það fólk sem stofnaði Wal­ dorfskólann kynntist hugmyndinni hjá henni og menntaði sig svo í fræðunum. Eiríkur segir mikið lagt upp úr því í skólanum að þroska manneskjuna sem heild. „Áherslan er ekki bara á bóknám, við leyfum börnunum líka að gera mikið með höndunum og nota sköpunargáfuna á fjölbreyttan hátt. Í okkar augum eru þessir þættir allir jafn mikilvægir sem veganesti út í lífið. Við erum líka búin að vera með moltugerð frá upphafi og allir nemendur sá fræjum, sinna ræktun og uppskera.“ Eiríkur telur tækni nútímans spilla tengslum barna við sjálf sig. Betra sé fyrir þau að gera hlutina fyrst á blaði í stað þess að stytta sér leið með tölvuforritum. „Börnin hér fá námskeið í margmiðlunar­ tækni í 8., 9. og 10. bekk, þá verða tækin verkfæri í höndum þeirra. Einhvern tíma birtist blaðapistill um að forstjórar tölvu­ fyrirtækjanna í Silicon Valley í Bandaríkj­ unum sendi börn sín í Waldorfskóla.“ Í tilefni 25 ára afmælis skólans verður leiksýning í Gamla bíói í dag klukkan 17, svo verður hátíð í Lækjarbotnum 21. maí og opið hús allan daginn. gun@frettabladid.is Skóli í einstöku umhverfi Í hinum 25 ára Waldorfskóla í Lækjarbotnum er bóklegt, listrænt og verklegt nám lagt að jöfnu. Eiríkur Knútur Gunnarsson kennari þar er öllum hnútum kunnugur. „Það er ekki bara höfuðið sem er í skólanum,“ segir Eiríkur glaðlega, um áherslurnar í Wal- dorfskólanum.Fréttablaðið/PjEtur 2 7 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r16 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B l a Ð I Ð tímamót

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.