Fréttablaðið - 27.04.2016, Qupperneq 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Maríu Elísabetar
Bragadóttur
Bakþankar
Að finna til smæðar sinnar getur aflétt álögum hvers-dagsins. Ég flysja epli sem
er maukkennt, loðir við hnífsblað
og klístrast í krikana milli fingra.
Velti fyrir mér hvaða þýðingu það
hefur að flysja epli. Amma flysjar
öll epli. Henni finnst óbærilegt
þegar ég skola epli en flysja ekki.
Tilheyrir það liðnum tíma eða
ömmu minni einvörðungu?
Fyrir hálfu ári sat ég við eldhús-
borðið hjá ömmu. Hún sagði mér
frá því þegar hún sá fyrst appels-
ínur og banana, á meðan sauð hún
marmelaði í potti. Ógrynni sykurs
með ævintýralega freyðandi
appelsínuberki. Hvað hefur gerst
á þeim tæplega 80 árum síðan
fimm ára gömul amma mín horfði
í forundran á mömmu sína afhýða
útlenskan banana? Heimsstyrjöld
og barnsfæðingar, mörg þúsund
sólarupprásir. Friðargöngur,
Óskarsverðlaun, sjónvörp og
hnífsstungur. Megrunarkúrar,
vasadiskó, vatnsrúm, hrákökur
og þoturákir milli skýjabólstra.
Fólk er hætt að teppaleggja öll
gólf, kaupir chia-fræ þar sem það
áður keypti niðursoðnar perur.
En unglingsstelpa byrjar enn á
blæðingum, íhugar endimörk
alheimsins, verður ástfangin,
gerir tilraunir með samlokur og
mannleg samskipti. Svo hvað
hefur raunverulega gerst síðan
amma var barn á Akureyri og sá
banana í fyrsta sinn? Hvenær lýkur
fortíð og framtíð hefst?
Ég flysja epli. Horfi út um glugga
á hversdagslegan himin. Oft líkur
tvívíðri leikmynd. Grábláu vegg-
fóðri. En stari ég vandlega finn
ég til smæðar minnar. Fæ óljósa
tilfinningu fyrir duldum óra-
víddum. Kemst nálægt því að sjá
veruleikann sem ráðgátu. Og finn
að það eru skil milli þess sem er og
þess sem er ekki, en er bara ekki
viss hvort þau eru raunveruleg.
Ráðgáta:
Ég flysja epli
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS
BRISTOL f rá
m a í - j ú n í
7.999 kr.
EDINBORG f rá
j ú l í - s e pte m b e r
9.999 kr.
*
DUBLIN f rá
m a í - j ú n í
7.999 kr.*
*
WOW
Í SUMAR!
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
GSM
2.990 KR.*
1817 365.is
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til
útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is