Fréttablaðið - 29.08.2015, Side 6

Fréttablaðið - 29.08.2015, Side 6
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 897-2896 OG Á WWW.BAKLEIKFIMI.IS Hefst 3. september Fjörugir tímar undir leiðsögn sjúkraþjálfara. Mánudaga kl. 17.45 og miðvikudaga kl. 18.15 í Grensáslaug AQUA FITNESS Hefst 7. september BAKLEIKFIMI & AQUA FITNESS UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA Í GRENSÁSLAUG, GRENSÁSVEGI 62. Upplýsingar og skráning á www.bakleikfimi.is Fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu. Áskriftarkort Borgarleikhússins Vertu með í vetur! Miðasala 568 8000 | borgarleikhus.is Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Tjakkar á góðu verði EP Pallettu-tjakkur 2 tonna lyftigeta 38.900 með PU hjólum kr 39.900 Rafmagnstjakkur 1,5 tonn 345.900 Galvaniseraður tjakkur 84.900 Palestínskur mótmælandi hendir stein í ísraelska vinnuvél eftir að mótmæli brutust út í Qadomem, nærri borginni Nablus á Vesturbakkanum. Sjö Palestínumenn særðust í átökunum. Fréttablaðið/EPA Ófriðurinn á Vesturbakkanum Sjávarútvegur HB Grandi, Síldarvinnsl­ an og Samherji, þrjú af stærstu sjávar­ útvegsfyrirtækjunum, högnuðust sam­ tals um 22 milljarða króna á síðasta ári. Hagnaður Samherja var mestur, eða rúmir 11 milljarðar króna, en um helm­ ingur starfsemi Samherja er á erlendri grundu. Arðgreiðslur til hluthafa munu nema 1,4 milljörðum króna. Síldarvinnslan hagnaðist næstmest, eða um 6 milljarða króna, sem er aðeins meira en árið 2013 þegar hagnaður var 5,6 milljarðar. Rekstrartekjur fyrir­ tækisins námu 21,4 milljörðum króna og rekstrargjöld 14,1 milljarði. HB Grandi hagnaðist  um 5,3 milljarða króna á gengi dagsins í dag, en félagið gerir upp í evrum. Fyrirtækið greiddi 2,7 milljarða í arð vegna síðasta árs. HB Grandi hefur einnig skilað upp­ gjöri vegna fyrri hluta ársins 2015 en hagnaðurinn ríflega tvöfaldast milli ára. Hagnaðurinn var 3,2 milljarðar á fyrri hluta þessa árs samanborið við 1,4 milljarða á fyrri hluta ársins 2014. Öll félögin gera erfiðar útflutnings­ horfur í uppsjávarafurðum að umtals­ efni í uppgjöri sínu. Síldarvinnslan frestaði arðgreiðslum vegna innflutn­ ingsbanns Rússa en um 40 prósent uppsjávarafurða Síldarvinnslunnar hafa verið flutt til Rússlands. HB Grandi gerir ráð  fyrir að  tap fyrirtækisins vegna innflutningsbannsins verði á annan milljarð króna. Samherji seg­ ist hafa flutt út afurðir fyrir á fimmta milljarð til Rússlands í fyrra. Þess utan séu markaðir fyrir uppsjávarafurðir í Úkraínu erfiðir og útflutningur hafi dregist saman. Þá hafi annað olíu­ útflutningsríki, Nígería, komið á inn­ flutningsbanni vegna gjaldeyrisskorts. Fyrirtækin hyggja öll á eða hafa lagt í umtalsverðar fjárfestingar. Sam­ herji hyggst kaupa sex ný fiskiskip sem kosta eiga nærri 25 milljarða. Þá hyggst HB Grandi láta smíða fjögur skip í Tyrklandi til viðbótar við togar­ ann Venus sem kom til landsins í vor. Alls eiga skipin að kosta 14 milljarða króna. Síldarvinnslan lagði í tíu milljarða fjárfestingu í fyrra. Fyrirtækið keypti aflaheimildir frá Stálskipum í Hafnar­ firði og hlutabréf í Gullbergi á Seyðis­ firði. Auk þess keypti Síldarvinnslan nýtt uppsjávarveiðiskip frá Noregi og reisti þúsund fermetra hús sem lið í uppbyggingu í uppsjávarvinnslu félagsins. ingvar@frettabladid.is Högnuðust um 22 milljarða í fyrra Samherji, Síldarvinnslan og HB Grandi högnuðust samtals um 22 milljarða króna á síðasta ári. Fyrirtækin segja horfur á uppsjávarmarkaði erfiðar í kjölfar innflutningsbanns Rússa. Tugmilljarða fjárfestingar eru fram undan í greininni. Ásbjörn RE í Reykjavíkurhöfn. HB Grandi hyggst leggjast í endurnýjun skipaflotans fyrir 14 milljarða króna með fimm nýjum skipum. Fréttablaðið/GVA 2 9 . á g ú S t 2 0 1 5 L a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.