Fréttablaðið - 29.08.2015, Side 10
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frábært verð
Frá kr. 79.900
Netverð á mann frá
kr. 79.900 m.v. 2+2 í íbúð.
Netverð á mann frá kr.
99.900 m.v. 2 í íbúð.
SIRIOS VILLAGE
Frábært verð
Frá kr. 124.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 124.900 m.v. 2+2 í
fjölsk.herbergi
Netverð á mann frá kr.
156.900 m.v. 2 í herbergi.
GALINI SEA VIEW
MARINA SANDS
OMEGA APARTMENTS
HELIOS APARTMENTS
Frábært verð
Frá kr. 119.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá kr.
119.900 m.v. 2+2 í fjölsk.
herbergi.
Netverð á mann frá kr.
149.900 m.v. 2 í herbergi.
Frábært verð
Frá kr. 85.900
m/morgunmat innifalinn
Netverð á mann frá kr.
85.900 m.v. 2+1 í herbergi.
Netverð á mann frá kr.
97.900 m.v. 2 í herbergi.
2FYRIR1
2FYRIR1
2FYRIR1
Frábært verð
Frá kr. 85.900
Netverð á mann frá
kr. 85.900 m.v. 2+2 í íbúð.
Netverð á mann frá kr.
113.900 m.v. 2 í íbúð.
Frá kr. 79.900
Krít
3. september í 11 nætur
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
70
54
1
2FYRIR1
2FYRIR1
Eldgosið í Holuhrauni hófst fyrir alvöru 31. ágúst 2014 og þegar það var í algleymi stóðu 60 metra háir strókar upp úr sprung-
unni og hraunflæðið var verulegt í sögulegu samhengi. Fréttablaðið/Auðunn
Mengun frá eldgosinu var sá þáttur þess sem mest áhrif hafði í byggð. Þegar líða tók
á september og kraftur gossins minnkaði sló mikilli mengun niður í byggð, ekki síst á
Austurlandi. Vandamálið var viðvarandi mánuðum saman. Fréttablaðið/Egill
Rétt ár er síðan eldsumbrot hófust í
Holuhrauni norðan Vatnajökuls eftir
mikil umbrot í Bárðarbungueldstöð-
inni vikurnar á undan. Frá því að eld-
gosinu lauk 27. febrúar hefur virkni
verið lítil á svæðinu en fyrir liggur að
atburðurinn frá upphafi til enda er
einn sá merkasti sem vísindamenn
og almenningur hefur orðið vitni að
út frá jarðvísindalegum sjónarhóli –
og er það fjarri því bundið við Ísland.
Magnús Tumi Guðmundsson,
prófessor í jarðeðlisfræði, segir að
strax eftir að eldgosinu lauk fyrir sex
mánuðum hafi ró færst yfir svæðið.
Þó sjá vísindamenn að breytingar
hafa orðið á jarðhita í Bárðarbungu
og þess vegna hafa myndast nýir sig-
katlar – alla vega tveir – í jöklinum í
sumar. Nánari rannsóknir á næstu
vikum leiða í ljós frekari upplýsingar
um þróun mála. Holuhraun kólnar
jafnt og þétt og lítið gasútstreymi
er þar í dag. Gígurinn Baugur er enn
þá að síga saman og landið að leita
jafnvægis, en vegna þess hversu
gríðarlega mikið af efni kom upp í
gosinu þá þarf ekki að fara djúpt til
að finna tæplega 200 gráðu hita. Í
öllum megin atriðum er því þessum
atburði lokið.
„Hvenær dregur aftur til tíðinda
er erfitt að segja til um. Líklega erum
við að horfa á ár eða áratugi áður en
eitthvað frekara gerist á svæðinu,“
segir Magnús Tumi. „Þegar allt er
tekið saman þá er þessi atburður sá
merkasti sem orðið hefur á Íslandi í
marga áratugi eða öld. Það fer saman
mjög stórt flæðigos og mikið öskju-
sig. Þetta höfum við ekki séð saman
áður með þessum hætti og þarf að
fara aftur til Skaftárelda til að sjá
stærri atburð. Það eitt og sér er stór-
merkilegt.“
Þó að eldgosið og atburðarásin því
samhliða sé flestum efst í huga, þá má
ekki gleyma því að upphaf umbrot-
anna fram til þess dags sem eldur
var uppi í lok ágústmánaðar er ekki
síður merkilegt. Jarðskjálftahrinan í
Vatnajökli og framrás berggangsins
undir norðvestanverðum Vatnajökli
er nokkuð sem aldrei hefur verið
skráð með viðlíka hætti með nútíma-
tækni.
„Þetta sýnir okkur hvernig landið
verður til – það gliðnar í sundur og
fyllist upp með kviku. Þarna sjáum
við í fyrsta skipti hvernig megineld-
stöð og stórt flæðigos spila saman,“
segir Magnús Tumi og bætir við að
mikilvægi þessa atburðar verði að
skoðast í því ljósi að áþekk átök nátt-
úrunnar síðustu árin á jörðinni telji
aðeins örfá tilvik. „Þá er gasmengunin
ónefnd, sem gerir þetta allt enn sér-
stakara. Mengunin staðfestir hversu
eldgosið var stórt.“
Magnús telur það engar ýkjur að
þessi atburðarás öll sé betur skrásett
en nokkur önnur þar sem öskjusig
og flæðigos fer saman, og ekki síst
vegna þess að yfirstandandi var stórt
samevrópskt rannsóknarverkefni um
eldfjallavá – FutureVolc – sem þýddi
að þéttriðið mælanet var til staðar
þegar dró til tíðinda um miðjan
ágúst í fyrra. Eins var þarna hópur
vísindamanna með breiða þekkingu
á ólíkum þáttum jarðvísinda sem á
þessum tíma horfðu allir í sömu átt.
Samþætting alls þessa hefur dregið
upp skýra mynd af atburðum – allt
frá upphafi óróans í Bárðarbungu
um miðjan ágúst til gosloka í febrúar.
Bárðarbunga líklegast
í fastasvefni næstu árin
Rétt ár er síðan eldur var fyrst uppi í Holuhrauni. Eldgosið stóð í sex mánuði og
var eitt hið stærsta á síðustu öldum. Mikið hraunflæði einkenndi gosið en ekki
síður loftmengun sem var vandamál í byggð mánuðum saman.
Svavar Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
16. ágúst 2014 Skjálftahrina í
Bárðarbungu hefst. Ljóst að kvika
var á hreyfingu neðanjarðar og
berggangur að myndast til norð-
austurs, undir Dyngjujökli.
19. ágúst Samhæfingarstöðin í
Skógarhlíð virkjuð.
22. ágúst 25 kílómetra langur
berggangur hefur myndast undir
Dyngjujökli.
23. ágúst Órói á mælum bendir til
þess að eldgos sé hafið suðaustur
undan Bárðarbunguöskjunni.
25. ágúst Berggangurinn nær
norður fyrir Dyngjujökul og lengist
um fjóra kílómetra á dag.
28. ágúst Gliðnun lands við Vatna-
jökul 40 föld miðað við meðalárið.
29. ágúst Sprungugos hefst í Holu-
hrauni norðan Dyngjujökuls. Kvika
kom upp á um 600 metra kafla í
gamalli gossprungu u.þ.b. 5 kíló-
metra norðan við jaðar jökulsins.
Gosið stóð í aðeins fjórar klukku-
stundir.
31. ágúst Eldgos hefst á ný í
sprungunni í Holuhrauni. Áætlað
að gossprungan væri um 1,5
kílómetra löng. Stórt eldgos með
miklu hraunrennsli.
5. september Ný sprunga opnast
suður af þeirri fyrri.
12. september Brennisteins-
mengun frá gosstöðvunum í Holu-
hrauni eykst þessa daga í byggð og
verður viðvarandi vandamál um
allt land næstu mánuði.
8. október Gígurinn Baugur talinn
100 metra hár.
31. október – Stærsta hraun á
Íslandi á 230 árum á aðeins 60
dögum.
2. desember 5.727 jarðskjálftar
í Bárðarbungu frá byrjun goss.
23.901 jarðskjálfti frá 16. ágúst við
eldstöðina. Smátt og smátt dregur
úr gosvirkni. Hraun og gastegundir
halda áfram að streyma úr iðrum
jarðar og hraunstraumur er til
norðausturs sem náði vestustu
kvíslum Jökulsár á Fjöllum.
27. febrúar 2015 Engin hraunglóð
þegar flogið var yfir.
28. febrúar Goslok staðfest af
vísindamannaráði Almannavarna
þann 27. febrúar. Hraunbreiðan
rúmlega 85 ferkílómetrar. Botn
Bárðarbunguöskjunnar hefur sigið
um 60 metra.
✿ Eldgosið í hnotskurn
ág
ú
st
sEptEm
bEr
o
k
tó
bEr
d
EsEm
bEr
2014
2015
fEbrú
ar
10 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L a U g a r d a g U rf r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð