Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 36

Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 36
Talsverð vinna og rask fylgir því að skipta um gólfefni en að verki loknu hafa híbýlin gerbreyst til hins betra. Umfang þess gólfefnis sem rifið er af kemur oft á óvart. Gera þarf ráð fyrir einhverjum kostnaði við förgun eða leita annarra leiða. Förgun: Gegnheilt parket er hægt að fara með í Sorpu í Gufunesi. Þar kostar 4.37 krónur á kílóið Plastparket kostar 15,50 krónur. Gegnheila parketið er endurnýtt. Það er sent upp í málmblendiverksmiðjuna á Grundartanga sem timbur, þar sem það er notað sem kolefnisgjafi. Plastparketið er ekki endurnýtt og er urðað. Einnig er hægt að fara með parketið á næstu endurvinnslustöð og þá þarf að greiða 4.200 krónur fyrir rúmmetrann, hvort sem það er gegnheilt parket eða plastparket. Á endurvinnslustöðvarnar má þó einungis koma með tvo rúmmetra að hámarki. Endurnýtt í annað: Oft er hluti gamla parketsins vel nýti- legur til dæmis í smærri rými eða í tímabundin verkefni. Leikhópar gætu nýtt notað parket í leikmyndir og þá gæti handlaginn smíðað úr því tréhús eða kofa fyrir krakkana. Selt og gefið: Margir auglýsa gamla parketið til sölu á netinu. Með einfaldri leit fundust þó nokkrar auglýsingar á Bland.is um notað parket og var oftast beðið um tilboð. Í aug- lýsinguna ætti að setja inn nokkrar mynd- ir af parketinu og upplýsingar um tegund, þykkt, aldur og ástand. Heiðarlegast er að taka fram ef parketið er mikið rispað og jafnvel birta myndir af skemmdum. Þá er auðvitað hægt að gefa parketið og auglýsa það til dæmis á Facebook. Þá er nokkuð öruggt að losna hratt við það úr bílskúrnum. Það mætti jafnvel aug- lýsa það gefins gegn því að sá sem þigg- ur það sjái um að rífa það af gólfinu, vilji fólk spara sér vinnu. Hvað á að gera við gamla parketið? Talsverð vinna og rask fylgir því að skipta um gólfefni en að verki loknu hafa híbýlin gerbreyst til hins betra. Umfang þess góflefnis sem rifið er af kemur oft á óvart. Gera þarf ráð fyrir einhverjum kostnaði við förgun eða leita annarra leiða. Gamalt parket gæti vel nýst sem efniviður í trjáhús fyrir krakkana. Gera þarf ráð fyrir kostnaði við förgun á gömlu parketi eða leita annarra leiða til að losna við það. Parket var fyrst notað sem gólfefni á íbúðarhúsnæði á seinni hluta sautj- ándu aldar í Frakklandi. Aðeins þeir allra ríkustu höfðu efni á að hafa gegn- heila planka á gólfunum þar sem þeir voru handgerðir og mjög dýrir. Á átjándu og nítjándu öld var gegnheilt plankaparket ansi massíft, tveggja og hálfs sentimetra þykkt, að minnsta kosti 250 sentimetrar á lengd og rúmlega sex til átta sentimetra breitt. Sumir plankarnir voru helmingi lengri. Þeir þurftu að vera massífir vegna þess að ekkert undirgólf var notað. Eftir að rafknúin tæki til að pússa parket komu til sögunnar eftir 1920 var hægt að gera harðviðargólfin jafnari og betur slípuð. Fyrir þann tíma voru gólfin pússuð þannig að sköfublöð voru dregin eftir þeim Á fimmta áratugnum krafðist parketlagning mikillar vinnu. Fagmenn þurfti til að leggja það, pússa og svo þurfti að setja á það tvær umferðir af límefni og vaxi (sem notað var þar til á sjötta áratugnum þar til skipt var yfir í lakk og pólýúretan). Einnig þurfti að vaxbera parketgólfin vikulega. Á sjöunda áratugnum fækkaði parketlögðum gólfum til muna í Banda- ríkjunum þegar heimiliseigendum var heimilað að leggja teppi á gólfin í nýkeyptum húsum sínum og kostnaðurinn við það varð hluti af húsnæð- islánum þeirra. Bæði eigendur og verktakar sneru frá því að nota dýr og vinnufrek harðviðargólfefni og sneru sér að notkun ódýrra teppa sem voru mun auðveldari í ásetningu. Þetta var meginástæða hnignunar parketgeir- ans þar í landi sem varði allt þar til um miðjan níunda áratuginn. Upphaflega aðeins fyrir þá ríku BEINT FRÁ VERKSMIÐJU okkar eigin framleiðsla hágæða PLANKAPARKET ENGIR MILLILIÐIR LÆGRA VERÐ Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is ENGIR MILLILIÐIR LÆGRA VERÐ BEINT FRÁ VERKSMIÐJU okkar eigin framleiðsla hágæða PLANKAPARKET Kynning − auglýsing 29. áGúst 2015 LAUGARDAGUR6 Parket
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.