Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 72

Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 72
Fólk| helgin Pevaryl sveppalyf fæst án lyfseðils og er ætlað til sjálfsmeðhöndlunar á sveppasýkingum í leg­göngum fyrir konur sem áður hafa verið greindar hjá lækni og þekkja einkennin. Pevaryl inniheldur virka efnið econazol sem hefur breiða sveppaeyðandi verkun. Econazol frásogast lítið og er því fyrst og fremst um stað­ bundna verkun að ræða. Að sögn Guðnýjar Traustadóttur, markaðstengils hjá Vistor, er mikil reynsla komin á lyfið en Pevaryl hefur verið á markaði hér á landi í 35 ár og verið notað af fjölda kvenna. Fjöldi kvenna á barneignaraldri fær einhvern tímann sveppasýkingu í leggöng og um það bil helmingur þeirra fær hana að minnsta kosti einu sinni aftur. Sýkingin kemur frá smásæjum sveppi, „Candida albicans“, sem almennt er til staðar í líkamanum en ef jafnvægi hans raskast getur það valdið sveppasýkingu. Sveppasýking þrífst best þar sem er rakt, hlýtt og þétt, svo sem í leggöngum. Sveppasýking herjar oft á konur á barneignaraldri þar sem þær hafa meira af hormóninu östrógeni, en það eykur glúkósamagn í leggöngunum sem sveppurinn nærist á. Auk þess kemur sveppasýking oft fram í tengslum við sýklalyfjameðferð, að sögn Guðnýjar. Guðný segir að það geti verið kostur að nota staðbund­ ið lyf eins og Pevaryl við sveppasýkingum í leggöngum þar sem frásog þess er lítið. einKenni SVePPASÝKingAR Helstu einkenni sveppasýkingar eru kláði í og utan við leggöng, hvítleit og jafnvel kornkennd útferð. Slímhúðin getur auk þess verið sár, þurr og með sviða. PAKKningAR PeVARYl: • 1 Depot forðastíll og krem (samsett meðferð) • 3 skeiðarstílar og krem (samsett meðferð) • 1 Pevaryl Depot forðastíll (eins dags meðferð) Setjið skeiðarstílinn hátt í leggöng að kvöldi fyrir svefn. Berið kremið á og í kringum leggangaop og/eða á skapa­ barmana 2­3 sinnum á dag þar til óþægindin eru horfin og í þrjá daga til viðbótar. Þegar keyptur er pakki með 3 stílum er mjög mikilvægt að klára meðferðina, það er þrjú kvöld í röð. Pevaryl má nota á öðrum og síðasta þriðjungi með­ göngu en ekki skal nota Pevaryl á fyrsta þriðjungi með­ göngu nema samkvæmt læknisráði. Pevaryl fæst án lyfseðils í næsta apóteki. Við SVePPASÝKingu í leggöngum ViStoR KYnniR Pevaryl skeiðarstíla og Pevaryl krem til staðbundinnar notkunar við sveppasýkingum í leggöngum. Við Hafnargötuna á Akureyri stendur verslunin Flóra, nýtin og náttúru­væn verslun, vinnustofur og við­ burðastaður í miðbæ Akureyrar. Verslun­ ina reka þau Hlynur Hallsson, safnstjóri á listasafni Akureyrar, og kona hans, Kristín Þóra Kjartansdóttir, og þar er bæði hægt að fá skemmtilegt handverk og lífrænan varning. Þar er einnig sýningarrými og um helgina verður opnuð þar sýning Þórgunn­ ar Oddsdóttur, Grasafræði, en Þórgunnur er kannski betur þekkt sem einn af um­ sjónarmönnum hins vinsæla sjónvarps­ þáttar Landans. Þórgunnur vann sýning­ una út frá Flóru Íslands, sem er vísun í sýningarrýmið sjálft að hennar sögn en líka leikur með hugmyndir um staðreyndir og sannleika. SKáldSKAPuRinn eR SAnnleiKuR líKA „Við fyrstu sýn virkar þetta eins og venju­ legar þurrkaðar plöntur en þegar nánar er að gætt þá sést að allar plönturnar eru samsettar, það er búið að setja lauf á fífilinn sem eru af einhverju allt öðru blóm svo dæmi séu tekin. Svo fór ég í fornbókabúð og fann þar Grasafræðibók eftir Stefán Stefánsson skólameistara sem var kannski dálítill frumkvöðull í náttúru­ fræði á Íslandi. Ég klippti orð og setningar í bókinni í sundur og nota í verkin þannig að ég yrki eiginlega ljóð upp úr þessum fræðilega texta. Mér finnst mjög gaman að taka hluti í sundur og búa til eitthvað annað úr þeim, finna möguleikana í efninu. Það er hægt að taka allt, hvort sem það er fræðilegur texti eða hlutir í kringum mann og búa til glænýtt samhengi með því að raða saman á annan hátt og skapa nýtt sjónarhorn. Ég hef líka verið að vinna með söfn og hef áhuga á hvernig hlutir eru settir fram til að við skiljum þá, með merkimiðunum sem staðsetja hlutina í til­ verunni. Mér finnst gaman að leika mér með tilhneigingu okkar til að skilja alla hluti og að setja fram eitthvað í þessum formlega sýningarbúningi sem er ekki staðreyndir en samt jafn mikill sannleikur og hvað annað.“ SKemmtileg VinnA Þórgunnur nýtur þess að gefa sér frelsi til að skálda því í starfi sínu sem fjölmiðla­ kona þarf hún að vera trú staðreyndum. Hún hefur bæði unnið á prentmiðlum og í ljósvakanum. „Ég er nýbúin að taka við stöðu dagskrárgerðarmanns RÚV á Akureyri og er aðallega að vinna að dag­ skrárgerð fyrir Landann. Það er virkilega skemmtileg vinna því maður fær að fara svo víða og hitta fólk og heimsækja staði sem maður kæmi aldrei á annars. Það er gaman að fá að safna öllum þessum sögum og miðla þeim til áhorfenda. Fyrsti þáttur vetrarins fer í loftið 13. september og við erum á þeytingi núna að safna efni víða um land.“ hugleiðingAR um eftiRlitSþjóðfélAg Þórgunnur er einnig þátttakandi í Haust­ sýningu Listasafns Akureyrar, sem að þessu sinni er samsýning þrjátíu norðlenskra lista­ manna. „Þar er ég með eitt gamalt verk sem ég gerði í Listaháskólanum og byggir líka á safnhugmyndinni. Þetta er sýningarkassi, fullur af alls konar skrýtnum hlutum sem ég stilli upp með einhverju bulli úr sjálfri mér, eins og hann standi á minjasafni. Svo er líka ljósmyndaverk sem ég vann í Berlín í fyrra þar sem ég var í tvo mánuði í listamanna­ íbúð. Berlínarmúrinn heillaði mig og allt í kringum hann og ég var svona að velta fyrir mér eftirlitsþjóðfélaginu þegar allir eru að fylgjast með öllum og verið að reyna að hafa hemil á borgurunum. Ég fór í almennings­ garða og safnaði greinum og kurli af göngu­ stígum og bjó til litla varðturna sem ég tók síðan ljósmyndir af. Verkið samanstendur af ljósmyndum af þessum þýsku varðturnum.“ Það liggur beint við að spyrja hvort svo frjótt hugsandi kona hafi ekki einhvern tíma hugsað sér til skrifta og þá í skáldskap. „Ég hef skrifað en mest fyrir sjálfa mig, fyrir utan barnabókina Kári litli og klósett­ skrímslið. En mig langar að gera meira af því að skrifa.“ miKil gRóSKA á AKuReYRi Þórgunnur er alin upp á Dagverðareyri við Eyjafjörð en bjó í mörg ár í Reykja­ vík. Hún flutti aftur norður fyrir nokkrum árum. Hvernig er að vera á Akureyri? „Það er mjög fínt og mikil gróska í menningar­ lífinu. Miðað við íbúafjölda held ég að það sé ansi mikið að gerast hér. Stundum vantar aðeins upp á að fólk sé duglegt að mæta og mætti vera meira mannlíf. En um helgina er Akureyrarvaka og þá verður nóg um að vera.“ Nánari upplýsingar um viðburði Akureyrarvöku má finna á visit­ akureyri.is en sýning Þórgunnar í Flóru stendur til 24. september. leiKuR með hugmYndiR um StAðReYndiR og SAnnleiKA gRASAfRæði Akureyrarvaka stendur nú yfir. Meðal viðburða er myndlistarsýning Þórgunnar Oddsdóttur, Grasafræði, en Þórgunnur er einnig kunn sem dagskrárgerðarmaður í Landanum. flóRA íSlAndS Þórgunnur opnar sýningu sýna, Grasafræði, í versluninni Flóru um helgina. mYndliStAmAðuR Þórgunnur Oddsdóttir myndlistamaður tekur þátt í tveimur listsýningum á Akureyri um þessar mundir. Pevaryl 150 mg skeiðarstíll, Pevaryl Depot 150 mg skeiðarstíll og Pevaryl 1% krem (í samsettum pakkningum) (innihalda econazolnítrat) eru breiðvirk sveppalyf við sveppasýkingum í leggöngum (leggangabólga og skapabólga af völdum gersveppa). Skammtar: Einn skeiðarstíll hátt í leggöng að kvöldi fyrir svefn, 3 daga í röð (Pevaryl skeiðarstíll) eða einu sinni (Pevaryl Depot skeiðarstíll). Krem: Berist á svæðið í kringum leggangaop og endaþarmsop 2 3 á dag. Meðferð á að vara í 3 daga eftir að óþægindi eru horfin. Meðhöndlun maka: Þvoið reður og forhúð og berið kremið á tvisvar á dag þar til óþægindi hverfa og í 3 daga eftir það. Þungaðar konur ættu að þvo hendur vandlega fyrir notkun skeiðarstíla. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Varnaðarorð: Pevaryl og Pevaryl Depot má ekki nota samhliða annarri meðferð í eða á kynfærum. Ef fram koma merki um ertingu eða ofnæmi skal hætta meðferð. Pevaryl krem inniheldur bensósýru sem getur haft væg ertandi áhrif á húð, augu og slímhúðir og bútýlhýdroxýanisól sem getur valdið staðbundnum aukaverkunum í húð (snertiexemi) eða haft ertandi áhrif á augu og slímhúð. Pevaryl skeiðarstílar innihalda efni í olíugrunni sem getur haft áhrif á og dregið úr öryggi latexhetta og latexverja. Ekki skal nota lyfin samtímis slíkum verjum. Þeir sem nota sæðisdrepandi lyf skulu ráðfæra sig við lækni, þar sem staðbundin meðferð í leggöngum getur gert sæðisdrepandi lyf óvirkt. Meðganga / brjóstagjöf: Pevaryl má ekki nota á fyrsta þriðjungi meðgöngu nema skv. læknisráði. Nota má Pevaryl á öðrum og síðasta þriðjungi meðgöngu ef hugsanlegur ávinningur fyrir móður vegur þyngra en möguleg hætta fyrir fóstrið. Ekki er þekkt hvort econazolnítrat berst í brjóstamjólk. Gæta skal varúðar við notkun Pevaryl hjá konum með barn á brjósti. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: McNeil Sweden AB. Umboð á Íslandi: Vistor hf., sími: 535-7000
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.