Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 81

Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 81
Um áratuga skeið hefur Húsasmiðjan verið í hópi stærstu söluaðila hér- lendis á parketi og öðrum gólf- efnum. Verslanir Húsasmiðj- unnar bjóða upp á gott úrval af bæði viðar- og harðparketi frá traustum og þekktum framleið- endum á borð við Kaindl, Egger, Barlinek, Eurohome og Tarkett. Að sögn Ingólfs Sigurðssonar, sölumanns í gólfefnadeild versl- unar Húsasmiðjunnar í Skútu- vogi, hefur harðparketið notið sífellt meiri vinsælda undan- farin ár enda harðgert og slit- þolið gólfefni á góðu verði. „Við seljum harðparket frá þremur erlendum framleiðend- um; Kaindl, Egger og Eurohome. Þar eru Kaindl og Egger sérstak- lega þekkt merki en þau eru bæði austurrísk. Ástæða þess að við kaupum parket frá nokkrum birgjum er sú að hver verksmiðja hefur sín sérkenni og þannig getum við boðið viðskiptavin- um okkar upp á betra úrval.“ Harðparketið er algengast í viðarútliti og ýmist þriggja stafa eða plankað og þá gjarna fasað. „Þá er fasaður örlítill kantur á borðið þannig að hvert borð verði betur afmarkað í gólfinu. Um leið skapast mun meiri kar- akter í gólfefninu.“ Hann segir ljósa liti mjög ríkjandi í harðparketi þótt dökk- ir litir séu að sækja í sig veðrið auk eftirlíkinga af eldri gólfum. „Við eigum um 30 gerðir á lager enda hefur sala á harð parketi aukist mjög mikið hérlendis undanfarin 5-8 ár. Íslendingar eru hættir að líta á það sem ein- hvers konar eftirlíkingu held- ur fyrst og fremst gólfefni sem getur staðið á eigin verðleikum. Enda er það hart, slitþolið og auðvelt í lögn og viðhaldi.“ Þekkt vörumerki Húsasmiðjan býður einnig upp á viðarparket frá tveimur birgjum, annars vegar Tarkett frá Svíþjóð og hins vegar Barlinek frá Pól- landi. „Tarkett er sérstaklega þekkt hér á landi enda höfum við selt það vörumerki í mörg ár. Þegar kemur að viðar parketi erum við með ágætt vöruúrval, þar sem við leggjum áherslu á það sem er vinsælast hverju sinni og á góðu verði. Við selj- um mest planka og þriggja stafa efni í dag. Einnig bjóðum við upp á gott úrval af eik, sem er langvinsælasta efnið í parketi í dag. Þar hefur ljós eik lengi verið í tísku og jafnvel hvíttuð eik og út í ljósgráa og gráa tóna. Hins vegar hafa olíuborin gólfefni gefið eftir undanfarin ár vegna mikils viðhalds. Þótt þetta séu falleg gólfefni er mikið mál að halda þeim í góðu lagi.” Reynslumiklir starfsmenn Flaggskip Húsasmiðjunnar þegar kemur að gólfefnum er verslunin í Skútuvogi í Reykja- vík. Einnig má finna mjög gott úrval í verslunum Húsasmiðj- unnar á Akureyri, á Egils- stöðum, Selfossi og í Grafar- holti í Reykjavík. „Sýnishorn af parketi okkar má svo finna í öllum öðrum verslunum okkar víða um land. Í öllum verslun- um okkar starfa reynslumiklir starfsmenn sem leiðbeina við- skiptavinum um efnisval og gera þeim tilboð. En það er ekki bara parketið sjálft sem þarf að hafa í huga. Við bjóðum einnig upp á ýmis fylgiefni, til dæmis fjölda gerða undirlags og gólflista, auk þess sem við erum viðskiptavin- um innan handar með parket- lögnina sjálfa og þrif og við- hald.“ Allar nánari upplýsingar um parketúrval Húsasmiðjunn- ar má finna á www.husa.is. 11Kynning − auglýsing Parket Áratuga reynsla, þekking og gott verð Húsasmiðjan býður upp á gott úrval af bæði viðar- og harðparketi frá traustum framleiðendum. Verslanir Húsasmiðjunnar má finna víða um land en flaggskip hennar þegar kemur að gólfefnum er verslunin í Skútuvogi í Reykjavík. Fyrir allar minni afgreiðslur má nálgast harðparketið beint úr versluninni. Í gólfefnadeildinni má einnig skoða hurðir, loftaþiljur, sólbekki, borðplötur og margt fleira fyrir heimilið. Það er auðvelt að skoða harðparketið á stórum fleti í gólfefnadeildinni. Ingólfur Sigurðsson, sölumaður í gólfefnadeild í Skútuvogi, hér með ljóst eikarplankalíki í harðparketi. MYNDIR/GVA 29. ágúSt 2015 LAUgARDAgUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.