Fréttablaðið - 29.08.2015, Side 112
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Pawel
Bartoszek
Bakþankar
Martröð: Ég stend fyrir framan spegil með pening um hálsinn og smelli af mynd. Hárið blautt af völdum rign
ingar og svita. Fer í tölvuna og pósta
á vegginn: „42 kílómetrar að baki.
Líðan góð.“ Síðan uppfærir sig. Stend
upp til að leita að lyklunum. Ég sé að
færslan er komin inn. Sest umsvifa
laust niður aftur, píri og þurrka
augun. Þarna stendur skýrum stöfum:
„Mætti skelþunnur í vinnunna.“
Undrandi þurrka ég út færsluna. Um
kvöldið ákveð ég að baka pitsu. Hnoða
deigið sjálfur, sýð tómata og bæti
óreganó og basilíku út í. Flet út deigið
og set á pepperóní, ólífur, þistilhjörtu
og rauða papriku. Útkoman er girnileg.
Smelli af einni mynd í gegnum símann
og set beint á fésið. Skrifa: „Laugardags
pitsan.“
Síminn hringir. Þetta er góður vinur.
„Blessaður, félagi!“ segi ég. „Hvað er
títt?“ „Hefur einhver komist í feisbók
ina þína?“ „Nú?“ spyr ég. „Já, þetta er
bara óvenjuhreinskilið hjá þér. Jú, jú,
það hafa eflaust einhverjir fleiri stund
að sjálfsfróun á almenningssalerni. En
það er samt alger óþarfi að segja öllum
heiminum frá því!“
Við höfum öll hluti sem við erum
stolt af og viljum deila með öðrum og
svo annað sem við erum minna stolt
af eða viljum síður að aðrir frétti. Við
getum aðeins hugsað hvernig það væri
ef samfélagssíðurnar myndu, af völd
um einhvers djöfullegs víruss, fyllast af
hinu síðarnefnda: Sögum af kynlífi eða
persónulegu spjalli okkar um fólk sem
heyrir ekki til.
Martröðin er samt raunveruleg.
Vodafonelekinn og Ashley Madison
lekinn hafa í raun búið til svona opna
Bizarro Facebookveggi fyrir fjölda
fólks. Þetta er alvarlegt. Mörgum líður
illa. Munum að þetta eru þolendur sem
eiga að fá að leita réttar síns. Munum
að þótt einhver hafi brotið upp lásinn
á íbúð nágranna okkar þýðir það ekki
að okkur sé frjálst að valsa inn og horfa
á þá baða sig.
Bizarro
Facebook
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka