Morgunblaðið - 03.09.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 03.09.2019, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  206. tölublað  107. árgangur  SPJALLTÓN- LEIKAR MEÐ NICK CAVE ELVAR INN Á HJÁ STUTTGART JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR Á MORGUN MIKIL UPPLIFUN, 33 ERLENT OG INNLENT 36KJÁNAHROLLUR 37 Fæðingum fækkaði  Sjá fram á fækkun í grunnskólum á Akureyri vegna lægri fæðingartíðni  Sambærileg þróun að hluta til í borginni grunnskólunum innan fimm ára ef fram heldur sem horfir og stefnir í að heildarfjöldinn fari úr 2.700 börnum í 2.500 börn á þeim tíma,“ segir hann. Að hluta til virðist sambærileg þró- un blasa við stjórnendum Reykja- víkurborgar. Skv. upplýsingum Skúla Helgasonar, formanns skóla- og frí- stundaráðs, eru stóru fæðingar- árganganir sem fæddust á árunum eftir hrunið núna komir inn í grunn- skólana og árgangarnir í kjölfarið hafa verið minni, að sögn hans. „Undantekningin frá þessu er reyndar 2018-árgangurinn, sem er frekar stór. Hins vegar erum við með mikla uppbyggingu fram undan í borginni, í nýjum hverfum og á þétt- ingarreitum og þar munu verða til ný- ir skólar, s.s. í Vogabyggð, á Ártúns- höfða og í Skerjafirði, bæði leik- og grunnskólar. Hvort þessi uppbygging muni skila sér í fjölgun barna í borg- inni á eftir að koma í ljós en íbúum borgarinnar hefur fjölgað talsvert allra síðustu misserin.“ omfr@mbl.is Fæðingum á Akureyri hefur fækkað upp á síðkastið og ef heldur fram sem horfir mun nemendum í grunnskólum fækka um 200 á næstu fimm árum. Á sama tíma hefur íbúum fjölgað. Fleiri sveitarfélög gætu staðið frammi fyrir svipaðri þróun, þar sem útlit er fyrir fækkun í grunnskólum með lækkandi fæðingartíðni á síðustu árum. Karl Frímannsson, sviðsstjóri á Fræðslusviði Akureyrarbæjar, segir að þessi þróun hafi komið í ljós vegna endurskoðunar á þjónustu bæjarins í leikskólunum. ,,Stefnt er að því að taka 12 mánaða börn inn í leikskólana á næstu árum en þrátt fyrir það mun heildarfjöldinn ekki aukast frá því sem nú er vegna fámennari árganga. Áhrifanna fer hins vegar að gæta í MStanda frammi fyrir fækkun »16 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Börn Fæðingum hefur fækkað. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann Slóvakíu naumlega, 1:0, á Laugardalsvellinum í gærkvöld og er þar með komið með sex stig eftir tvo fyrstu leiki sína í undankeppni Evrópumótsins, en lokakeppnin fer fram á Englandi sumarið 2021. Elín Metta Jensen skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik og gerði þar með þrjú af fimm mörkum Íslands í sigurleikjunum tveimur gegn Ungverjalandi og Slóvakíu. Litlu munaði þó að slóvakíska liðið jafnaði metin undir lok leiksins eftir slæm varnarmistök íslenska liðs- ins, sem annars var með nokkra yfirburði í leiknum. „Við sáum í þessum leik að þær slóvakísku voru grimmar og léku þéttan varnarleik. Því er erfitt að brjóta svona lið á bak aftur en sem betur fer náðum við að koma einu inn,“ sagði vinstri bakvörðurinn Hallbera Guðný Gísladótt- ir við Morgunblaðið eftir leikinn. »34-35 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sex stig komin í safnið á leiðinni á EM Þriðji orkupakki Evrópusambands- ins vegna aðildar Íslands að EES- samningum og önnur þingmál hon- um tengd voru samþykkt með mikl- um meirihluta á Alþingi í gær. Alls greiddu 46 þingmenn með orku- pakkanum en 13 gegn. Allir þing- menn Sjálfstæðisflokksins, að undanskildum Ásmundi Friðriks- syni, kusu með orkupakkanum. Hann var eini stjórnarþingmaðurinn til að kjósa gegn orkupakkanum. All- ir níu þingmenn Miðflokksins kusu gegn orkupakkanum ásamt báðum þingmönnum Flokks fólksins. Jón Þór Ólafsson var eini þingmaður Pír- ata til að kjósa gegn orkupakkanum. Allir 11 þingmenn Vinstri grænna kusu með orkupakkanum. Þrír þing- menn voru fjarverandi og þá var Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, eini þingmaður- inn sem skráður var fjarverandi. „Ég verð að viðurkenna að þetta eru vonbrigði,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Mið- flokksins, um niðurstöðuna í samtali við mbl.is. Andstæðingar orkupakk- ans fylltu áhorfendapalla Alþingis og þurfti að vísa tveimur úr þingsal vegna óláta. »6 Mikill meiri- hluti studdi orkupakka  Einn stjórnarþing- maður sagði nei Morgunblaðið/Árni Sæberg Alþingi Sigmundur Davíð hefur leitt andstöðuna gegn orkupakka 3.  Sjálfstæðis- flokkurinn legg- ur í dag fram til- lögu þess efnis að borgarstjórn feli umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa útboð vegna ljósastýr- ingar og snjall- væðingar í um- ferðarstýringu. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, segir þetta vera fljótvirkustu, ábatasömustu og nútímalegustu lausnina sem hægt er að fara í til að bæta samgöngur. Samtök iðnaðarins segja 15% minnkun í umferðartöfum í höfuð- borginni með ljósastýringu skila um 80 mö.kr. í ábata fyrir fyrirtæki og heimili á líftíma fjárfestingar- innar. »4 Mikill ábati fylgir bættri ljósastýringu Tafir Bíll við bíl er ekki óalgeng sjón.  Umboðsmanni barna bárust í fyrra alls 1.419 erindi. Af þeim voru 628 munnleg og 791 skrif- legt. Er þetta meðal þess sem fram kemur í nýbirtri ársskýrslu embættisins. Athygli vekur að af erindunum 1.419 voru alls 155 frá börnum. Flest þessara erinda bárust emb- ættinu með tölvupósti eða í gegn- um heimasíðu embættisins. Ekki er gerð krafa um að börn gefi upp nafn eða aðrar persónuupplýs- ingar. Erindin eru af ýmsum toga. Sum þeirra snúa að símanotkun ungmenna. „Mega foreldrar tala við börnin sín með ógnandi rödd? Mamma mín vill setja eitthvað app í símann minn svo hún geti stjórn- að frá sínum síma hvenær ég má vera í símanum. Ég er ekki oft í símanum því ég hef ekki mikinn tíma til þess. Þannig ég spyr má hún gera þa?“ hdm@mbl.is »4 Alls bárust 155 erindi frá börnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.