Morgunblaðið - 03.09.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.2019, Blaðsíða 2
Úthlutað aflamark fiskveiðiárið 2019/2020 Fyrirtæki með mest aflamark, þús. þorskígildistonn og hlutfall af heild Skip með mest aflamark, heimahöfn og þús. þorskígildistonn Heimild: Fiskistofa 1. Brim hf. 35.111 9,44% 2. Samherji Ísland ehf. 24.577 6,61% 3. FISK-Seafood ehf. 22.485 6,04% 4. Þorbjörn hf. 20.447 5,50% 5. Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. 16.239 4,36% 6. Vísir hf. 15.839 4,26% 7. Vinnslustöðin hf. 15.276 4,11% 8. Skinney-Þinganes hf. 15.273 4,10% 9. Rammi hf. 14.957 4,02% 10. Síldarvinnslan hf. 12.456 3,35% 1. Sólberg ÓF 1 Ólafsfjörður 10.343 2. Kleifaberg RE 70 Reykjavík 10.109 3. Akurey AK 10 Akranes 9.388 4. Viðey RE 50 Reykjavík 8.244 5. Drangey SK 2 Sauðárkrókur 8.183 6. Höfrungur III AK 250 Akranes 8.095 7. Málmey SK 1 Sauðárkrókur 7.166 8. Breki VE 61 Vestmannaeyjar 6.904 9. Björgúlfur EA 312 Dalvík 6.826 10. Björg EA 7 Akureyri 6.255 11. Sólborg RE 27 Reykjavík 6.130 12. Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Ísafjörður 5.908 13. Björgvin EA 311 Dalvík 5.882 14. Kaldbakur EA 1 Akureyri 5.798 15. Arnar HU 1 Skagaströnd 5.566 16. Páll Pálsson ÍS 102 Hnífsdalur 5.511 17. Vigri RE 71 Reykjavík 5.463 18. Gullver NS 12 Seyðisfjörður 5.436 19. Gnúpur GK 11 Grindavík 5.354 20. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 Grindavík 5.083 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið sem hófst 1. september. Að þessu sinni er úthlutað 372 þúsund tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 384 þúsund þorskígildistonn í fyrra. Samdráttur- inn á milli ára samsvarar því um 12 þúsund þorskígildistonnum. Úthlutun í þorski er rúm 215 þús- und tonn og eykst um 7 þúsund tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn er rúm 32 þúsund tonn og dregst saman um 13 þúsund tonn. Úthlutað aflamark er alls um 440 þúsund tonn í hinum ýmsu kvótategundum, sem er um 11 þúsund tonnum minna en á fyrra ári. 50 stærstu með 89,2% Það skip sem fær úthlutað mestu aflamarki er Sólberg ÓF 1, en það fær 10.354 þorskígildistonn, eða 2,8% af úthlutuðum þorskígildum. Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 89,2% af því aflamarki sem úthlutað er og er það svipað hlutfall og í fyrra, en alls fá 336 fyrirtæki eða lög- aðilar úthlutað nú. Brim (áður HB Grandi) fær mestu úthlutað til sinna skipa, eða 9,4% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,6% og þá FISK Seafood með 6% og Þorbjörn hf. með 5,5%. Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár með úthlutað afla- mark. Mest fer til skipa með heima- höfn í Vestmannaeyjum, en þau ráða fyrir 11,4% úthlutunarinnar saman- borið við 10,6% í fyrra. Næstmest fer til Grindavíkur, 10,9% af heildinni samanborið við 11,0% á fyrra ári. Skip með heimahöfn í Reykjavík fá úthlut- að 10,6% samanborið við 11,6% í fyrra. Reykjavík, sem hefur til fjölda ára verið sú höfn landsins sem mestu afla- marki er úthlutað til, fellur úr fyrsta sæti í það þriðja. Hlutfall sem fer til skipa hjá hverri höfn fyrir sig breytist í flestum tilvikum eitthvað og má rekja það til breytinga á þorsk- ígildisstuðlum sem og tilfærslu afla- hlutdeilda á milli skipa með ólíka heimahöfn, segir í frétt Fiskistofu. Þar er vakin athygli á að síðar á árinu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að aukið sé við aflamark í uppsjávarfiski. Sérstaklega er bent á að engri loðnu var úthlutað núna. Ætla má að heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra breytist í kjölfar frekari úthlutana þegar líður á fiskveiðiárið. Aflamark á 466 skip Alls fá 466 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við 540 á fyrra fiskveiðiári. Skýringin á þessari miklu fækkun liggur í því að fjöldi skipa fékk úthlutað hlutdeildum í hlýra á grundvelli veiðireynslu í fyrra. Það hafði í för með sér mikla dreif- ingu á veiðiheimildum í litlum stofni á meðal skipa með engar aðrar hlut- deildir. Síðan þá hafa hlutdeildirnar í hlýra safnast á færri hendur. Sé fjöldi skipa með úthlutað aflamark nú bor- inn saman við fjölda slíkra skipa fyrir tveimur árum er fækkunin 23 skip og er það í samræmi við þá þróun sem verið hefur í mörg undanfarin ár. Bátar með krókaaflamark eru nú 285 og fækkar um 31. Skipum í afla- markskerfinu fækkar um 43 á milli ára og eru nú 181. Togurum fækkar um fimm en þeim hafði fjölgað í fyrra um þrjá eftir árvissa fækkun undan- farið. Togararnir eru nú 37 í íslenska flotanum. Samdráttur í út- hlutun á aflamarki  Reykjavík fellur úr fyrsta sæti í það þriðja 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra og Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, munu hittast á fundi sem haldinn verður í húsakynnum Landhelgisgæslu Íslands á Kefla- víkurflugvelli. Kemur varaforsetinn hingað til lands á morgun, miðviku- dag, og verður fundur þeirra haldinn að kvöldi sama dag. Fram hefur komið í Morgun- blaðinu að Pence hafi þekkst boð Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, um hádegisverðarfund á Bessastöðum. Einhver breyting kann að verða á þeim áformum því samkvæmt upplýsingum frá utan- ríkisráðuneytinu er varaforsetinn væntanlegur til landsins um há- degisbil. Þá hefur Morgunblaðið einnig greint frá því að Pence muni hitta Guðlaug Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra og Dag B. Eggertsson borgarstjóra í Höfða. Hundruð munu sinna öryggis- gæslu í heimsókninni, lögreglumenn, erlendar öryggissveitir og hermenn. Mike Pence hittir Katrínu á vellinum  Óvissa uppi með Bessastaðaboðið AFP Væntanlegur Pence kemur hingað til lands á morgun og hittir ráðamenn. Eldur kom upp í álverinu í Straumsvík í gærkvöldi. Um tíma mátti sjá þykkan og mikinn reyk leggja frá verksmiðjunni. Vegna þessa var allt tiltækt slökkvilið ræst út á höfuðborgarsvæðinu. Slökkviliðs- menn í álverinu náðu þó tökum á eldinum og var liðsaflinn því afturkallaður. Slökkvi- liðsmenn frá Hafnarfirði fóru þó á staðinn. Upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Ís- landi segir tjón óverulegt og að engin slys hafi orðið á fólki. Upptök eru ókunn. Ljósmynd/Aðsend Eldsvoði Um tíma mátti sjá mikinn svartan reyk leggja frá álverinu í Straumsvík. Skemmdir þar eru sagðar óverulegar en óvíst er með upptök. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á vettvangi Lögreglan við kerskála. Eldur kom upp í Straumsvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.