Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls bárust 1.419 erindi til umboðs- manns barna í fyrra. Af þeim voru 628 munnleg en 791 skriflegt. Það er aðeins færra en árið áður, að því er fram kemur í nýbirtri ársskýrslu embættisins. Athygli vekur að af erindunum 1.419 voru 155 frá börnum. Flest þeirra berast með tölvupósti eða í gegnum vefsíðu embættisins. Ekki er gerð krafa um að börn gefi upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar. Einnig eru dæmi þess að börn komi á skrifstofu umboðsmanns barna og óski eftir upplýsingum og aðstoð. Ýmsar forvitnilegar spurningar bárust frá börnum að því er rakið er í ársskýrslunni. Börnin hafa meðal annars velt því fyrir sér hvort þau byrji að borga skatta á 16. ári eða þegar þau verða 16 ára og eins hvort þau fái kosningarétt á 18. ári eða 18 ára afmælisdaginn. Þá er síma- notkun greinilega bitbein eins og dæma má af eftirfarandi fyrirspurn: „Mega foreldrar tala við börnin sín með ógnandi rödd? Mamma mín vill setja eitthvað app í símann minn svo hún geti stjórnað frá sínum síma hvenær ég má vera í símanum. Ég er ekki oft í símanum því ég hef ekki mikinn tíma til þess. Þannig ég spyr má hún gera það?“ Svo eru það klassísk viðfangsefni eins og þetta: „Mega foreldrar þrýsta á mann að gera eitthvað sem maður vill ekki og banna manni að hætta að spila á hljóðfæri?“ Og þetta: „Má mamma mín ráða hvort ég má fá kærasta eða ekki?“ Í ársskýrslu umboðsmanns barna er starfsemi embættisins á síðasta ári rakin. Meðal þess sem fram kem- ur er að bæta þurfi fræðslu til barna og ungmenna um þátttöku á vinnu- markaði svo þau séu ekki hlunn- farin, eins og dæmi séu um. Þá eru rakin ný lög um umboðs- mann barna sem samþykkt voru á síðasta ári. „Meðal helstu nýmæla er að umboðsmanni barna er falið að afla og miðla gögnum og upplýs- ingum um aðstæður og stöðu tiltek- inna hópa barna á Íslandi. Í vor und- irrituðu embættið og Hagstofan viljayfirlýsingu þess efnis að hefja undirbúning þeirrar vinnslu. Með breytingunum var lögfest sú skylda umboðsmanns að hafa virkt samráð við börn ásamt því að hafa hóp barna sér til ráðgjafar. Slíkur hópur hefur starfað við embættið um árabil,“ segir í skýrslunni. Jafnframt að umboðsmanni hafi verið falið að halda þing um málefni barna annað hvert ár. Þingið verður haldið í fyrsta sinn í nóvember og munu börn taka virkan þátt í skipu- lagningu og framkvæmd þess. Mega foreldrar nota ógnandi rödd? Morgunblaðið/Hari Börn að leik Fjölmörg börn sendu umboðsmanni barna erindi í fyrra.  Umboðsmanni barna bárust 155 erindi frá börnum á síðasta ári  Óska meðal annars eftir upplýs- ingum um skattgreiðslur og kosningarétt  Aukna fræðslu þarf um réttindi ungmenna á vinnumarkaði Umboðsmaður barna » Umboðsmanni barna er ætl- að að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hags- muni þeirra, þarfir og réttindi í samræmi við ákvæði Barna- sáttmála SÞ. » Salvör Nordal heimspek- ingur hefur gegnt embættinu frá 1. júlí 2017. » Umboðsmaður nýtur lið- sinnis ungmennaráðs, tólf manna hóps sem hittist einu sinni í mánuði og ræðir málin. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík leggur í dag fram tillögu um að borgarstjórn feli umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa útboð vegna ljósastýringar og snjallvæð- ingar í umferðarstýringu. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, segir að þetta sé „fljótvirkasta, ábatasamasta og nútímalegasta lausnin sem hægt er að fara í“ til að bæta samgöngur í höfuðborginni. Samtök iðnaðarins (SI) hafa unnið greiningu á á bættri ljósastýringu og er það mat SI að 15% minnkun í um- ferðartöfum í höfuðborginni með ljósastýringu muni skila um 80 mö.kr. í ábata fyrir fyrirtæki og heimili á líftíma fjárfestingarinnar. Stofnkostnaður framkvæmdarinnar er 1,5 ma.kr. „Áætla má að um 9 milljónum klukkustunda verði sóað í umferðar- tafir innan höfuðborgarinnar á árinu 2019. Þar er m.a. horft til niður- staðna úr nýlegu umferðarlíkani VSÓ fyrir höfuðborgarsvæðið og um- ferðarmælinga Vegagerðarinnar. Só- aður tími veldur töluverðum um- framkostnaði, en áætla má t.d. að fyrirtæki borgarinnar verji tæplega 10 mö.kr. í óþarfa launakostnað vegna þessa á árinu 2019 sem birtist í hærra verðlagi en ella og lægri fram- leiðni. Til viðbótar kemur aukinn kostnaður og skert lífsgæði þeirra sem ferðast í frítíma,“ segir í grein- ingu SI. Minni biðtími og meira flæði Þar kemur einnig fram ávinningur af breytingunum er áætlaður í 15% tímasparnað fyrir einkabíla, 50% minni biðtíma ökutækja í biðröðum og 20% meira flæði almennings- samgngna. Í samtali við Morgun- blaðið segir Eyþór að 50% minni bið- tími bíla muni klárlega minnka mengun til muna í borginni. „Þetta er sú leið sem hægt er að fara fljótast í. Það þarf ekki að fara í mikla hönnun á umferðarmann- virkjum eða búa til nýtt kerfi. Auð- vitað þarf að gera margt fleira, en þetta er fljótvirkasta, ábatasamasta og nútímalegasta lausnin sem hægt er að fara í,“ segir Eyþór. „Það er líka verið að tala um styttingu vinnu- vikunnar. Þarna er mögulega besta leiðin til þess að gera eitthvað fyrir þá sem eru að kveljast í umferðinni,“ bætir Eyþór við. Hann vonast eftir því að tillagan fái stuðning á fundi borgarstjórnar í dag. „Það hefur ekki verið farið markvisst í heildarbreyt- ingu á kerfinu. Það eru 15 ár síðan eitthvað var gert í ljósastýringu. Það var gert með útboði og var bara hluti af höfuðborgarsvæðinu og er orðið barn síns tíma,“ segir Eyþór. Morgunblaðið/Hari Daglegt ástand Höfuðborgarbúar eru margir hverjir orðnir vanir mikilli og hægfara umferð, enda daglegt brauð. „Nútímalegasta lausnin sem hægt er að fara í“  Betri ljósastýring gæti minnkað biðtíma í umferð um 50% Arðsemi ljósastýringa fyrir höfuðborgarsvæðið 140 120 100 80 60 40 20 0 400% 350% 300% 250% 200% 150% 100% 50% 0% Ábati, ma.kr. Arðsemi, % 10% minnkun í töfum 15% minnkun í töfum 20% minnkun í töfum Ábati á líftíma fjárfestingar Arðsemi fjárfestingar – innri vextir H ei m ild : S I Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Íbúar og sumarhúsaeigendur í Land- sveit telja að áform um ferðamanna- þorp að Leyni séu enn umfangsmeiri en áður hefur komið fram. Vísa þeir í matslýsingu sem verkfræðistofan Efla vann fyrir landeigendur að Leyni. Morgunblaðið sagði í síðustu viku frá því að þegar væru komin á svæðið hjólhýsi í útleigu. Jafnframt er stefnt að því að reisa eins konar kúluhús við hvert hjólhýsi. Gert er ráð fyrir gestahúsum og/eða gisti- heimili og fjórum íbúðarhúsum. Þá eru áform um að allt að fimmtíu sum- arhús rísi á svæðinu. Í matslýsing- unni er reiknað með að þessi upp- byggingaráform feli í sér gistingu fyrir allt að 350 manns. Nefnd landeigenda og sumarhúsa- eigenda á svæðinu fundaði um stöðu mála um liðna helgi. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins telja þeir hagsmunaðilar að sá fjöldi gistirýma sem vísað er til í matslýsingunni sé gróflega vanmetinn. Benda þeir á sumarhúsin 50 en þar sé heimilt að byggja aukahús og geymslu við hvert þeirra. Áætlanir geri aðeins ráð fyrir 110 gestum í þessum 50 húsum, sem sé vanáætlað verði af áformum um byggingu gestahúsa. Nær lagi væri að reikna með tveimur gestum í hverju húsi, frístundahúsi og gesta- húsi. Það sé þó varlega áætlað. Heild- arfjöldi gesta sé þá þegar kominn upp í 440 og gæti hæglega slagað í 500 að þeirra mati. Til samanburðar búa 780 í þorpinu á Hellu. Umræddir land- og sumarhúsa- eigendur hyggjast skila inn athuga- semdum við skipulagslýsingu sveitar- félagsins, sem er í kynningu fram á föstudag. Annað sem þeir hyggjast gera athugasemdir við er hvernig staðið verði að vatnsverndarmálum á svæðinu. Gerðar hafi verið ítarlegar rannsóknir á vatnsbúskap vegna byggingu kjúklingabús fyrir nokkr- um árum en ekki sé stuðst við þær rannsóknir nú. Hafa landeigendur lýst áhyggjum af því að rotþrær sem grafnar hafa verið í jörð að Leyni muni aðeins hreinsa um 55% af því skólpi sem fellur til frá ferðamanna- þorpinu. Því muni gríðarlegt magn af seyru, fullri af saurgerlum, renna í gegnum Minnivallalæk og að lokum í Lækjarbotna og Keraugað, núver- andi og framtíðar vatnsból Hellu. Telja að 500 manna þorp rísi  Óttast mengun í vatnsbólum Hellu Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Einstök gæði frá 40 ár á Íslandi Sterkir og notendavænir sláttutraktorar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.