Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019 Mikill meirihluti þingmanna sam- þykkti bæði þriðja orkupakka Evr- ópusambandsins vegna aðildar Ís- lands að EES-samningnum og önnur þingmál honum tengd í gær. Þar á meðal breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun til þess að innleiða pakkann. Fá mál hefur verið tekist jafn mikið á um á Alþingi og þriðja orkupakkann og tók umræðan um málið í þinginu samanlagt um 148 klukkustundir, en mikil umræða var um það í vor, daga og nætur, þar sem einkum þingmenn Miðflokksins komu við sögu. Þriðji orkupakkinn var samþykkt- ur með 46 atkvæðum gegn 13. Einn stjórnarþingmaður greiddi atkvæði gegn honum, Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Andstæðingar orkupakkans fylltu áhorfendapalla Alþingis í gær. Tveimur var vísað úr þingsal vegna framíkalla og óviðeigandi hegðunar. Tekinn allur sá tími sem þurfti Miðflokkurinn lagðist algjörlega gegn málinu og ítrekað hefur verið fjallað um titring í röðum Sjálf- stæðisflokksins vegna þess. Spurður hvað hann vilji segja við þá kjósendur Sjálfstæðisflokks sem nú leiti á önn- ur mið vegna málsins segir Guðlaug- ur Þór Þórðarson utanríkisráðherra: „Stóra spurningin í þessu, sem hefur ekki verið svarað, er af hverju skiptu forystumenn Miðflokksins svona um skoðun? Þegar við komum að þessu liggur fyrir að þeir eru búnir að leggja það til við þingið að við sam- þykkjum þetta, án þess að við færum í neina þá vinnu sem við fórum síðan í. Ég get alveg fullvissað stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins og aðra landsmenn um að þetta mál var unnið mjög vel. Það var tekinn allur sá tími sem þurfti, það voru allir sérfræðing- ar kallaðir til, vegna þess að menn taka málefnalega gagnrýni alvarlega. Ég vona bara að þetta verði til þess að beina kastljósinu að þessum mikil- vægu alþjóðasamningum sem við er- um aðilar að,“ segir Guðlaugur í sam- tali við mbl.is. Spurður hvort sú andstaða sem orkupakkamálið hefur mætt innan þings og utan hafi komið honum á óvart segir hann að svo hafi ekki endilega verið. Hann segir norsk áhrif vera mikil í andstöðuhreyfing- unni. „Ég hef náttúrlega fylgst með stjórnmálum lengi og verið þátttak- andi í stjórnmálum lengi, meðal ann- ars alþjóðastjórnmálum. Við höfum verið laus fram til þessa við þá óværu sem er í norskum stjórnmálum, sem er stefna norska Miðflokksins og líka sömuleiðis þau samtök sem kalla sig „Nei til EU“, en eru í rauninni eins og Miðflokkurinn norski að reyna að koma EES-samstarfinu fyrir kattar- nef.“ Málið að byrja fyrir alvöru „Ég verð að viðurkenna að þetta eru vonbrigði. Alveg fram á síðasta dag átti ég von á því að einhverjir stuðningsmenn stjórnarflokkanna myndu taka mið af afstöðu almenn- ings og ekki síst eigin stuðnings- manna, sem eru yfirgnæfandi á móti innleiðingu þessa orkupakka. Það gerðu þeir ekki, með einni undan- tekningu, svo þetta er niðurstaðan,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Miðflokksins. Sig- mundur Davíð segir málið nú byrja fyrir alvöru, því nú muni Íslendingar smám saman sjá áhrifin. „Þau munu koma fram í innleiðing- unni, í minnkandi valdi lýðræðislega kjörinna fulltrúa og þar með almenn- ings yfir orkumálum á Íslandi,“ segir Sigmundur Davíð og vísar til reynslu Belga af innleiðingu þriðja orku- pakkans. Sigmundur Davíð endurtók þann punkt sem hann hefur haldið mjög á lofti í umræðunni síðustu daga um að Íslendingar ætli sér að ganga enn lengra en Belgar í innleið- ingu orkupakkans, „innleiða pakk- ann að fullu“, sem myndi að sögn Sigmundar Davíðs færa „landsregl- aranum“ allt það vald sem Evrópusambandið ætlast til, „vald yfir framkvæmdum í orkumálum og vald yfir ákvörðunum um tengingu yfir landamæri“. Morgunblaðið/Árni Sæberg Niðurstaðan ljós Þingmenn kusu um þriðja orkupakkan á Alþingi í gær. Ekkert þingmál hefur verið rætt jafn mikið á Alþingi í lýðveldissögunni. Umræðutími var um 150 klukkustundir. Mótmælt Um áttatíu til hundrað manns mættu á Austurvöll til að mótmæla. Þriðji orkupakkinn samþykktur á Alþingi  Andstæðingar orkupakkans fylltu áhorfendapalla þingsins „Það sem við þurfum að gera til að ná aftur eyrum þessara kjós- enda er að skerpa línuna. Annars vegar varðandi orku- stefnuna fyrir landið og fá fólk til að skilja að við ráðum sjálf okkar eigin málum á orkusvið- inu og dýpka almennan skilning á framkvæmd EES-samningsins og hvaða virði og gildi hann hef- ur fyrir okkur sem þjóð,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurður um óánægju innan Sjálfstæðis- flokksins með samþykkt þriðja orkupakkans. Spurður hvort samþykkt orkupakkans væri svik við kjósendur flokksins sagði Bjarni svo ekki vera. Ráðum sjálf okkar málum BJARNI UM ORKUMÁL Gerum við hedd og erum einnig með ný hedd á flest allar vélar Er heddið bilað? Við erum sérfræðingar í heddum TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.