Morgunblaðið - 03.09.2019, Page 8

Morgunblaðið - 03.09.2019, Page 8
8 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019 Bændablaðið bendir á að vísindibyggi á gagnrýnni hugsun og að varasamt sé að spyrja ekki spurninga: „Því miður virðist heimsbyggðin og þar með íslenskt samfélag í æ ríkari mæli stefna án gagnrýni út á braut sem er upp- spretta öfga og pólitísks rétttrún- aðar. Við horfum upp á og heyrum um slíka hluti nær daglega og virð- ast þar engin takmörk fyrir hve upphrópanir og fullyrðingarnar geta verið sterkar, öfgarnar miklar og gagnrýnislaus meðvirkni botn- laus.“    Bent er á aðundir lok sjötta áratugarins hafi dr. John Gofman o.fl. gefið út ritgerð um að dýrafita væri hættu- leg heilsunni. Lífeðlisfræðingurinn Ancel Benjamin Keys hafi sett fram svipaðar kenningar.    Tekist hafi að fá setta lýðheilsu-stefnu, m.a. hér á landi, þar sem neysla dýrafitu var talin einn helsta orsök hjartasjúkdóma.    Loks segir: „Meginþorrivísindasamfélagsins studdi þessi opinberu lýðheilsumarkmið gagnrýnislaust, en þeir sem efuðust voru kallaðir óraunsæir, forpokaðir og fávísir. Síðan gerðist það þegar komið var fram á þessa öld að æ fleiri rannsóknir sýndu að bæði Gofman og Keys höfðu ekki aðeins haft rangt fyrir sér, heldur hafði svo- kölluð rannsókn Keys að stórum hluta verið blekking og uppspuni. Þá voru þær þegar búnar að valda milljónum manna miklum skaða. Reynslan kennir okkur því að ef menn ætla að lifa lífinu í blindri trú án þess að efast nokkurn tíma og neita að horfa gagnrýnum augum á umhverfi sitt og fullyrðingar ann- arra, þá getur farið illa.“ Hættulegt að hætta að spyrja STAKSTEINAR Síðasta verk alþingismanna í gær var að samþykkja breytingar á skattalögum sem hafa það í för með sér að greiðslur til einstaklinga sem rétthafa höfundaréttinda skuli telj- ast til fjármagnstekna. Jakob Frímann Magnússon, for- maður Samtóns, samtaka tónlistar- rétthafa, fagnaði samþykkt laganna í samtali við Morgunblaðið og sagði þau löngu tímabær, réttlát og sann- gjörn. Íslendingar hefðu með þessu orðið fyrsta þjóðin í heiminum sem setti slík lög og þau væru ávísun á að hægt yrði að fá alþjóðlega hug- verkamenn til að staðsetja sig á Ís- landi. Fram kom í áliti meirihluta efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis um málið að með frumvarpinu væri ekki ætlunin að hrófla við þeirri meginreglu að greiðslur vegna sölu á verkum sem jafna mætti við hverja aðra vörusölu, svo sem sölu á útgáfu- rétti, bókum, tónlist, myndverkum, aðgöngumiðum á listviðburði og öðru slíku, teldust til almennra tekna viðkomandi. Aftur á móti féllu óbeinar tekjur af nýtingu á verki undir gildissvið þess, svo sem við á um tekjur vegna flutnings verks í útvarpi eða tón- verks í leiksýningu, tekjur vegna notkunar listaverks á tækifæriskort, tekjur vegna upplestrar úr útgefnu bókmenntaverki o.s.frv. Sköttum af höfundargreiðslum breytt  Sanngjarnt, réttlátt og tímabært, segir formaður Samtóns Morgunblaðið/Árni Sæberg Á Alþingi Frá fundi Alþingis í gær. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Atli Eðvaldsson, fyrr- verandi landsliðs- þjálfari, landsliðs- fyrirliði og atvinnu- maður í knattspyrnu, lést í gær, mánudag- inn 2. september, 62 ára að aldri eftir bar- áttu við krabbamein. Atli fæddist í Reykja- vík 3. mars 1957. For- eldrar hans voru Sig- ríður Bjarnadóttir og Eðvald Hinriksson. Bróðir Atla er Jó- hannes Eðvaldsson, sem var einnig lands- liðsmaður í fótbolta. Atli lætur eftir sig fjögur börn: Egil, Sif, Emil og Söru. Atli lék á sínum tíma 70 landsleiki fyrir Ísland, var um skeið leikja- hæsti landsliðsmaður Íslands, og þjálfaði landsliðið frá 2000 til 2003. Hann hóf meistaraflokksferilinn með Val árið 1974 og lék 93 deildar- leiki fyrir liðið á sex árum, þar sem hann skoraði 31 mark. Á þeim árum varð hann tvisvar Ís- landsmeistari og þrisvar bikarmeist- ari. Árið 1980 samdi hann við stórlið- ið Borussia Dortmund í Þýskalandi og var þar í eitt tímabil. Þaðan lá leiðin til Fortuna Düsseldorf, þar sem hann lék 122 leiki og skoraði 38 mörk frá 1981 til 1985. Þá skoraði hann fyrstur erlendra leikmanna fimm mörk í einum leik í þýsku Bundesligunni, í 5:1-sigri á Eintracht Frankfurt. Atli kom síðar heim og lék með Val 1988 og 1989, þar sem hann varð bikar- meistari í fjórða sinn. Atli lék með KR í fjögur tímabil, frá 1990 til 1993. Atli tók til við þjálfun eftir leikmannsferilinn og tók fyrst við HK þar sem hann var spilandi þjálfari árið 1994. Hann tók síðan við ÍBV þar sem hann var við stjórn frá 1995 til 1996, áður en hann fór til Fylkis í eitt ár. Frá 1998 til 1999 var hann þjálfari KR en tók svo við íslenska karlalandsliðinu, sem hann þjálfaði frá 1999 til 2003. KR vann fyrsta Ís- landsmeistaratitil sinn í 31 ár undir stjórn Atla árið 1999 og varð jafn- framt bikarmeistari. Atli þjálfaði Þrótt í Reykjavík frá 2005 til 2006 en tók sér svo frí frá þjálfun áður en hann tók við Val 2009. Hann þjálfaði Reyni Sand- gerði 2013, Aftureldingu 2014 og svo að lokum Kristianstad í Svíþjóð 2017 og Hamar í Hveragerði sumarið 2018. Andlát Atli Eðvaldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.