Morgunblaðið - 03.09.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólkUST grunn að því hvernig ætti að
taka þetta tjón út á meðan Bún-
aðarstofa var hjá Bændasamtök-
unum. Bændur hafa getað skráð
tjón vegna ágangs í nokkur ár og
hafa verið hvattir til þess að skila
skýrslum. Gögnin hafa verið notuð
til að undirbúa greiðslurnar sem
von er á núna.
Snýst um styrkhæfa ræktun
Samkvæmt reglugerð um al-
mennan stuðning við landbúnað
(1260/2018) er talað um ágang álfta
og gæsa þegar hann er svo mikill
að hann veldur eða er líklegur til
að valda tjóni á ræktarlandi. Það
gildir jafnt um tún, akra, kartöflu-
rækt eða aðra styrkhæfa ræktun.
Þeir sem geta sótt um styrki eru
skráðir eigendur eða leigjendur
lögbýlis/garðyrkjubýlis með lög-
heimili á Íslandi og stunda land-
búnað á lögbýlinu/garðyrkjubýlinu
með virkt virðisaukaskattsnúmer.
Þá þarf starfsemi þeirra að falla
undir atvinnugreinanúmer 01 og 02
í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Ís-
lands, með undantekningum sem
eru nánar tilgreindar í reglugerð-
inni.
styrkja,“ sagði Jón Baldur. „Síðan
kemur ákveðið álag á ræktunar-
styrkina sem getur verið 20-70%
eftir því hvað tjónið er mikið. Erfitt
getur verið að meta tjón sem varð í
vor og væntanlega mun þetta snúa
meira að tjóni að hausti, t.d. á
kornrækt, en það á eftir að koma í
ljós.“
Taka mið af Norðurlöndum
Búnaðarstofa MAST er í sam-
starfi við Umhverfisstofnun (UST)
og úttektarmenn búnaðarsambanda
um allt land varðandi þessi mál.
Jón Baldur sagði að undirbúningi
að úttektunum væri nú lokið. Einn-
ig hafa verið gerðar rannsóknir á
ágangi álfta og gæsa. Markmiðið er
að geta bætt tjón bænda vegna
ágangs fuglanna með sambæri-
legum hætti og gert hefur verið
annars staðar á Norðurlöndum.
„Við vinnum þetta með faglegum
hætti með Umhverfisstofnun. Fag-
leg vinna í tengslum við úttektirnar
skiptir miklu máli og við munum
fara betur í þá vinnu á grundvelli
þeirrar reynslu sem mun fást
núna,“ sagði Jón Baldur.
Bændasamtökin lögðu ásamt
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Framkvæmdanefnd búvörusamn-
ings hefur ákveðið að nýta heimild
til að styðja bændur sem verða fyr-
ir ágangi álfta og gæsa á ræktunar-
löndum sínum. Þetta er í fyrsta
sinn sem þessi heimild er nýtt, en
hún kom inn með nýjum búvöru-
samningum sem tóku gildi árið
2017. Matvælastofnun (MAST)
annast úthlutun styrkjanna og hef-
ur opnað fyrir rafræn skil á tjóna-
skýrslum sem þarf að skila í síðasta
lagi 20. október næstkomandi.
Álag á ræktunarstyrki
Jón Baldur Lorange, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarstofu
MAST, sagði að tjón vegna ágangs
álfta og gæsa yrði bætt með álagi á
ræktunarstyrki eftir nánari út-
reikningum. Á fjárlögum þessa árs
er alls veitt um 396 milljónum til
ræktunarstyrkja.
„Menn fylla út tjónaskýrslu raf-
rænt vegna ágangs álfta og gæsa
og tjónið verður svo tekið út af út-
tektarmönnum, þeim sömu og taka
út jarðrækt vegna ræktunar-
Morgunblaðið/RAX
Álftir og gæsir Bændur hafa kvartað vegna mikils ágangs fuglanna í ræktarlönd. Nú á að bæta þeim tjónið.
Veita styrki vegna
ágangs álfta og gæsa
Fyrsta sinn sem heimild er nýtt Frestur til 20. október
Landsréttur staðfesti á föstudaginn
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Suðurlands yfir karlmanni
sem handtekinn var 26. ágúst á
heimili sínu í Reykjavík vegna
rannsóknar lögreglustjórans á
Suðurlandi m.a. á ræktun og sölu á
fíkniefnum og peningaþvætti.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
fór fram á að manninum, sem er er-
lendur ríkisborgari, yrði gert að
sæta gæsluvarðhaldi til klukkan 16
3. september 2019. Maðurinn mót-
mælti kröfunni og fór fram á að
henni yrði hafnað en til vara að
gæsluvarðhaldstíminn yrði
skemmri. Féllst Landsréttur sem
fyrr segir á kröfu lögreglustjórans
á þeim forsendum að tímalengd
gæsluvarðshaldsins væri ekki óhóf-
leg.
Rannsókn málsins hófst í apríl
þegar þrír menn voru handteknir í
sumarhúsum á Suðurlandi þar sem
umfangsmiklar ræktanir fíkniefna
voru í fullum gangi.
Grunaður um
fíkniefnasölu og
peningaþvætti
Allt um sjávarútveg