Morgunblaðið - 03.09.2019, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Fyrirtækið Foodco, sem á og rekur
Eldsmiðjuna, Saffran, American
Style, Aktu Taktu, Pítuna, Road-
house og Kaffivagninn, velti 3.493
milljónum króna árið 2018. Dróst
veltan lítillega saman á milli ára, en
árið 2017 nam veltan 3.516 milljón-
um króna.
Hagnaður félagsins nam 54 millj-
ónum króna og dróst töluvert saman,
en hann nam tæpum 105 milljónum
króna árið 2017. Rekstrarhagnaður
félagsins fyrir vexti, skatta og af-
skriftir (EBITDA) nam 147 milljón-
um króna í samanburði við 232 millj-
ónir króna árið 2017. Að sögn
Jóhanns Þórarinssonar skýrist
breytingin á EBITDA á milli ára
aðallega af hækkun launakostnaðar.
Launahlutfallið það hæsta
„Launahlutfallið á síðasta ári var
43,4% sem er það hæsta í 17 ára sögu
félagsins,“ segir Jóhann í samtali við
Morgunblaðið og nefnir að félagið
hafi greitt um 1,5 milljarða króna í
laun á síðasta ári, en þá var fjöldi
starfsmanna 430 og full stöðugildi
rúmlega 200.
Að sögn Jóhanns vann Foodco
varnarsigur á árinu 2018 þegar kem-
ur að veltu í ljósi erfiðra aðstæðna á
markaði. „Þá sérstaklega á seinni
hluta ársins þegar kjaraviðræður og
mikil óvissa í efnahagslífinu dró
verulega úr neyslu almennings á
veitingastöðum,“ segir Jóhann.
Foodco tilkynnti á dögunum að
stefnt væri að sameiningu við félag
Gleðipinna, sem á og rekur veitinga-
staðina Hamborgarafabrikkuna,
Blackbox og Shake&Pizza.
„Það eru afar spennandi tímar í
vændum og við sjáum mikil tækifæri
í sameiningunni við Gleðipinna. Þeir
hafa gert mjög skemmtilega hluti
með sína staði sem fallið hafa vel í
kramið hjá fólki. Við lítum björtum
augum á framtíðina saman. Við ætl-
um að leggja höfuðáherslu á aukin
gæði og höfða þannig til æ kröfu-
harðari neytenda sem hafa val um
marga góða veitingastaði,“ segir
Jóhann.
Umrót á markaði
Aftur á móti gerir hann ráð fyrir
nokkru umróti á markaði á næstu
misserum.
„Við gerum ráð fyrir því að mark-
aðurinn muni ganga í gegnum
ákveðna leiðréttingu á næstu 12-18
mánuðum þar sem fækkun staða er
óhjákvæmileg ásamt nauðsynlegri
aðlögun að nýju launaumhverfi,“
segir Jóhann og heldur áfram.
„Það hefur átt sér stað gríðarlega
mikil fjölgun veitingastaða á skömm-
um tíma. Ég held að það sé búið að
opna yfir 30 nýja veitingastaði á mið-
bæjarsvæðinu síðan í ársbyrjun
2018. Það eru margir sem hafa ætlað
sér að ná í sneið af ferðamannakök-
unni. Svo hefur komið smá bakslag í
ferðaþjónustuna. Væntingar manna
hafa aðeins brostið þar. Þessi þróun
er nú byrjuð að einhverju leyti eins
og sést hefur á fækkun staða í mið-
bænum,“ segir Jóhann.
Hann nefnir einnig hugsanlegar
neyslubreytingar fólks. T.a.m. séu
tilbúnir réttir sem hægt er að kaupa
í búðum og elda á skömmum tíma
hluti af samkeppni veitingastaða.
„Það er margt sem spilar inn í.“
Fækkun óhjákvæmileg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veitingasala Kaffivagninn á Granda er á meðal staða sem Foodco rekur.
FoodCo hagnaðist um 54 milljónir í fyrra Tekjur námu 3,5 milljörðum
Um varnarsigur að ræða að sögn Jóhanns Þórarinssonar framkvæmdastjóra
FoodCo
» Hagnaður nam 54 milljónum
króna árið 2018 m.v. 105 millj-
ónir árið 2017. Veltan nam
3.493 milljónum í fyrra m.v.
3.516 árið 2017.
» Foodco á Eldsmiðjuna,
Saffran, American Style, Aktu
Taktu, Pítuna, Roadhouse og
Kaffivagninn.
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
ingaskilta, límmiða og fána og eftir
kaupin á Merkismönnum geti fyrir-
tækið boðið viðskiptavinum upp á
fjölbreytilegri skiltagerð en áður,
auk bílamerkinga og prentunar og
uppsetninga á sandblásturs- og
sólarfilmum.
„Við erum mjög ánægð með
þessa viðbót við starfsemi Fjöl-
prents. Merkismenn hafa lengi ver-
ið með öflugri aðilum á sínu sviði og
það styrkir okkur gríðarlega að
geta boðið jafn víðtæka þjónustu
alla á sama stað,“ segir Ragnar
Másson, framkvæmdastjóri Fjöl-
prents, í tilkynningunni.
Prentfyrirtækið Fjölprent hefur
keypt skiltagerðina Merkismenn og
sameinar starfsemi fyrirtækjanna
undir sínu nafni.
Í tilkynningu segir að Merkis-
menn hafi starfað allt frá árinu
1989 við skiltagerð, auk þess að
merkja bíla og prenta útifána sem
og margvíslegar gluggafilmur.
„Eftir kaupin verður þessi þjónusta
Merkismanna í boði undir nafni
Fjölprents sem eflir þjónustu-
framboðið verulega,“ segir í til-
kynningunni.
Einnig segir að Fjölprent hafi
lengi sérhæft sig í prentun auglýs-
Fjölprent kaupir Merkismenn
Meiri fjölbreytni í skiltagerð
Kaup Gunnar Trausti Gunnbjörnsson frá Merkismönnum og Ragnar
Másson, framkvæmdastjóri Fjölprents, handsala samninginn.
● Á öðrum ársfjórðungi 2019 var 11,1
milljarða króna afgangur á viðskipta-
jöfnuði við útlönd. Halli á vöruskipta-
jöfnuði var 42,7 ma.kr. en afgangur á
þjónustujöfnuði var 52,1 ma.kr. Frum-
þáttatekjur skiluðu 8,6 ma.kr. afgangi
en rekstrarframlög 6,9 ma.kr. halla.
Þetta kemur fram í bráðabirgðayfirliti á
vef Seðlabanka Íslands
Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu
námu erlendar eignir þjóðarbúsins
3.878 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en
skuldir 3.249 ma.kr. Hrein staða við út-
lönd var því jákvæð um 628 ma.kr. eða
21,8% af vergri landsframleiðslu (VLF)
og batnaði um 44 ma.kr. eða 1,5% af
VLF á fjórðungnum.
11 milljarða afgangur
á viðskiptajöfnuði
3. september 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.12 125.72 125.42
Sterlingspund 152.4 153.14 152.77
Kanadadalur 94.09 94.65 94.37
Dönsk króna 18.522 18.63 18.576
Norsk króna 13.755 13.837 13.796
Sænsk króna 12.741 12.815 12.778
Svissn. franki 126.46 127.16 126.81
Japanskt jen 1.1754 1.1822 1.1788
SDR 171.12 172.14 171.63
Evra 138.11 138.89 138.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2051
Hrávöruverð
Gull 1526.55 ($/únsa)
Ál 1712.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.98 ($/fatið) Brent
● Úrvalsvísitala aðallista í Kauphöll Ís-
lands lækkaði um fimm prósent í ágúst
sl. samkvæmt nýju viðskiptayfirliti sem
kauphöllin sendi frá sér í gær. Þar kem-
ur einnig fram að heildarviðskipti með
hlutabréf í ágúst hafi numið 45,7 millj-
örðum, eða 2.178 milljónum á dag. Það
er 13% lækkun frá fyrri mánuði, en í júlí
námu viðskipti með hlutabréf 2.507
milljónum á dag. „Þetta er 31% hækkun
á milli ára (viðskipti í ágúst 2018 námu
1.667 milljónum á dag).“
Samkvæmt yfirlitinu voru mest við-
skipti í mánuðinum með bréf Brims,
Símans, Arion banka, Marel og Haga.
Í lok ágúst voru hlutabréf 24 félaga
skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First
North á Íslandi.
Úrvalsvísitalan lækkaði
um 5% í ágústmánuði
Viðskipti Kauphöll Íslands.
STUTT