Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 19
UMRÆÐAN 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
Klukkan var um það
bil 17.00 þegar fyrsta ís-
lenska flugvélin lyfti
sér til flugs frá íslenskri
grund í fyrsta sinn.
Flugvélin, sem var eign
Flugfélags Íslands og
alveg ný, var af breskri
gerð, Avro 504K, sem
var tvívængja með 110
ha. Le Rhöne-mótor.
Flugmaðurinn var
Capt. Cecil Faber og völlurinn var í
Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Þetta var 3. september 1919. Er
hægt að hugsa sér spennuna sem
var í loftinu á þessum tíma, á þessari
stundu? Flug á Íslandi var að hefj-
ast!
Eflaust hafa margir bæjarbúar
séð þegar fyrsta flugvélin flaug yfir
Reykjavík þetta síðdegi í byrjun
september. Búið var að kynna það
að vélin yrði til sýnis í skálanum á
flugvellinum að kvöldi 3. sept. kl. 8,
og átti þar að halda hátíð og væntan-
lega fljúga fyrsta flugið fyrir augum
almennings.
Í auglýsingu á forsíðu Vísis 3.
sept. segir: „Flugvélin er nú sett
saman og verður sýnd í skálanum á
flugvellinum kl. 8. Aðgöngumiðar
seldir hjá Sigf. Eymundssyni, í Ísa-
fold og við inngangana og kosta 50
aura. Harpa leikur væntanlega á
lúðra á flugvellinum. Inngangar að
veginum niður á völlinn eru af Lauf-
ásvegi fyrir utan Laufás og af Mel-
unum beint niður af Loftskeyta-
stöðinni. Flugfélagið.“
Fyrsta flug á Íslandi
En, hvað gerðist? Af hverju flaug
Capt. Faber af stað á þessum tíma,
var búið að undirbúa
það flug? Almenn-
ingur virðist ekki hafa
vitað af flugi á þessum
tíma. Hátíðin átti að
hefjast kl. 8 um kvöld-
ið.
Í frétt Morgun-
blaðsins daginn eftir,
þ.e.a.s. 4. september,
er frétt þar sem m.a.
segir:
„Fyrsta flugið á Ís-
landi. Capt. Faber
flaug tvisvar í gær.“
Svo segir, „En um kl. 5 í gær (3.
sept.) gerðist óvæntur atburður suð-
ur á Flugvelli. Reynsluflugið var
ákveðið þá strax, og án þess að
nokkur vissi, ók Faber vélinni út á
völl, settist við stýrið og renndi af
stað. Vélin rann nokkra tugi faðma
niður eftir túninu, eins og álft sem
flýgur upp af vatni, og loks losnaði
hún frá jörðu og smáhækkaði. Hljóð-
ið frá mótornum heyrðist inn í bæinn
og menn fóru að skima í kringum
sig. Og allir, sem skimuðu, ráku aug-
um í það sama: vélin leið áfram um
loftið eins og risavaxinn fugl, stöð-
ugri en nokkur vagn á rennsléttum
vegi, sneri sér krappar beygjur og
tyllti sér eftir dálitla stund aftur á
grassvörðinn.“
Þarna fór fram fyrsta flug á Ís-
landi, þann 3. september árið 1919
um klukkan 5 síðdegis.
Þennan sama dag stóð þetta í
Bæjarfréttum Vísis:
„Flugvélin er nú komin í það horf,
að ekki vantar nema herslumuninn,
að henni verði treyst til að hefja sig á
loft. Eins og auglýst er hér í blaðinu
verður hún sýnd almenningi í kveld
kl. 8. Vel er mögulegt að fyrsta flug-
sýningin geti orðið annað kveld.
Mótorinn hefur verið látinn fara af
stað og reynst ágætlega. – Stendur
af loftskrúfunni svo mikið hvassviðri
að það fjúka höfuðföt af mönnum, er
standa fyrir aftan vélina. Ættu
menn, er vilja sjá þetta nýtískunnar
furðuverk að nota nú tækifærið, því
að við flugsýningarnar fá menn ekki
að koma í flugskálann eða alveg að
vélinni. Alþingismönnum og flug-
félagsmönnum er boðið að skoða vél-
ina kl. 7 ½.“
Þrátt fyrir að Capt. Faber hafi
farið í fyrsta flugið – sem kallað var
– óvæntur atburður og fáir vissu af,
áður en skipulögð hátíðahöld hófust,
var ekki svo að málin væru óskipu-
lögð og tilviljunarkennd.
Eins og áður segir var seldur að-
gangur að skemmunni þar sem flug-
vélin var sett saman. Þangað gat
fólk komið að kvöldi 3. sept. og barið
vélina augum. Fréttamiðlar þessa
tíma voru nokkur drjúgir að segja
frá og tilkynna um gang samsetn-
ingar vélarinnar og hvenær hún yrði
til sýnis. Einnig var búið að auglýsa
og tilkynna flugsýningar og farþega-
flug næstu daga eftir vígsluna, Jafn-
vel selja farmiða í flug með almenn-
ing, sem hafði efni á slíkum lúxus.
Daginn eftir fyrsta flugið – eða
réttara sagt tvö fyrstu flug á Íslandi
– kom auglýsing í Vísi sem sjá má á
myndinni.
Ljóst var að flugauglýsingar í
blöðum og á götum úti vöktu mikla
athygli almennings og mikill mann-
fjöldi sótti á „flugvöllinn“ þegar eitt-
hvað stóð til. Sagt er að menn hafi
hlaupið frá vinnu sinni þegar Capt.
Faber fór í sína fyrstu flugferð yfir
Reykjavík þann 3. september um
klukkan 5. Allir vildu sjá þegar hann
lenti þessu furðuverki á flugvell-
inum. Því voru það margir sem
stefndu þangað hlaupandi, fyrir utan
allt það fólk sem safnaðist saman,
víða um bæinn, þar sem sást til
Vatnsmýrarinnar.
En um kl. 7 ½, á spennudaginn
sjálfan þegar átti að fljúga fyrsta
flug á Íslandi, „var uppi fótur og fit á
bæjarmönnum,“ eins og skrifað var í
Vísi daginn eftir. Þá þyrptust mörg
hundruð manna suður á flugvöll. Þar
var flugvélin fyrst sýnd þingmönn-
um og meðlimum flugfélagsins inni í
skálanum, en síðan var henni ekið
út, og vissu menn, að nú átti hún að
hefja sig til flugs í annað sinn.
En áður en það yrði, flutti Garðar
Gíslason heildsali og formaður ný-
stofnaðs flugfélags, stutta tölu fyrir
hönd flugfélagsins. Benti hann á,
hve þýðingarmikið spor væri stigið
með því að fá fyrstu flugvélina hing-
að til lands, og hve mikla framtíð
flugsamgöngurnar myndu eiga;
skoraði fastlega á þing og þjóð, að
taka höndum saman og vinna að því,
að slíkum samgöngum yrði sem
fyrst komið á hér á landi. Var ræð-
unni vel tekið af áheyrendum.
Síðan hóf flugmaðurinn sig á loft í
flugvélinni í annað sinn, og laust upp
fagnaðarópi frá áhorfendum, er vél-
in lyfti sér frá vellinum og sveif í loft
upp. Sveif hún nú um loftið nokkra
stund og bylti sér á ýmsa vegu, uns
hún lenti aftur, og lokið var fyrstu
flugsýningu á Íslandi.
Ítarlegri grein um þennan merka
viðburð í samgöngusögu landsins
verður birt á heimasíðu Flugsafns
Íslands, www.flugsafn.is, innan
skamms.
Upphaf flugs á Íslandi
Eftir Gest Einar
Jónasson
»Er hægt að hugsa
sér spennuna sem
var í loftinu á þessum
tíma, á þessari stundu?
Flug á Íslandi var að
hefjast!
Gestur Einar Jónasson
Höfundur er útvarpsmaður og
safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri.
gestureinar @simnet.is
Ljósmynd/Úr safni Sarha Booth
Akureyri Aðeins ein önnur loftmynd er til frá árinu 1919.
Ljósmynd/Úr safni Sarha Booth
Avro 504K Flugmaðurinn Cecil Faber að keyra upp mótorinn og við vélina stendur vélamaðurinn Joe Kenyon.
Framan við dekkin á flugvélinni er planki til þess að koma í veg fyrir að vélin rjúki af stað. Mannfjöldanum er haldið
í skefjum með girðingu sem Flugfélag Íslands númer 1 varð að koma upp til að afmarka flugbrautina.
Nýverið var skýrsla
innri endurskoðunar
um grunnskóla Reykja-
víkur, úthlutun fjár-
hagsramma og rekstrar
kynnt í skóla- og frí-
stundaráði en það er ein
athyglisverðasta
skýrsla sem ég hef séð
lengi. Í skýrslunni
kennir ýmissa grasa en
þar segir orðrétt:
„Meginniðurstaða
þessarar skýrslu er að mismunandi
skilningur virðist vera á milli skóla-
stjórnenda og skóla og frístunda-
sviðs annars vegar og fjárveiting-
arvalds borgarinnar hins vegar um
hvað er nauðsynlegt fjármagn til
reksturs á grunnskólum borg-
arinnar. Skóla- og frístundasvið hef-
ur þurft að skera niður það fjármagn
sem reiknað hefur verið út að skól-
arnir þurfi, svo þeir
geti starfað innan
rammans. Afleiðingin
er sú að skólarnir fara
margir hverjir ítrekað
fram úr fjárhags-
ramma sínum. Í raun
standa skólarnir al-
mennt frammi fyrir því
að nánast allir rekstr-
arliðir fá of knappt
fjármagn.“
Hér kemst innri
endurskoðandi vel að
orði enda er hér tekið
undir sjónarmið og
áhyggjur okkar sjálfstæðismanna en
við höfum margítrekað bent á akk-
úrat þetta.
Skýrari geta skilaboð varla orðið.
Fjársvelti grunnskóla
grafalvarlegt
Þegar skólar eru fjársveltir þá
bitnar það á þeirri þjónustu sem
þeim ber skylda til þess að veita sam-
kvæmt lögum. Sérstaklega er tekið
fram í skýrslunni að úthlutun til sér-
kennslu og aðstoð við börn sem eru
af erlendu bergi brotin er minni en
reiknað hefur verið út að hún þurfi að
vera. Þar með er ekki verið að veita
þessum börnum þá þjónustu sem
Reykjavíkurborg er skylt að veita.
Síðan í hruninu, sem var fyrir tíu
árum síðan, hefur viðhald fasteign-
anna verið af skornum skammti með
þeim afleiðingum að viðhaldsþörf
hefur safnast upp í skólunum og því
er orðið mjög brýnt að taka til hend-
inni þar. Aðalorsök ófullnægjandi
viðhalds er skortur á fjármagni.
Það verður að teljast áhyggjuefni
ef borgin uppfyllir ekki ákvæði
grunnskólalaga um aðbúnað. Fjár-
hagsramminn hefur ekki tekið nægj-
anlegum breytingum liðinn áratug til
samræmis við hækkun á raunkostn-
aði og það felur í raun í sér skerðingu
á fjárframlagi. Þessi auknu fjárútlát
til skólamála sem meirihlutinn státar
sig af eru fyrst og fremst tilkomin
vegna kjarasamningsbundinna
launahækkana en ekki myndarskap
borgaryfirvalda. Það er því alveg
ljóst að grunnskólar borgarinnar eru
vanfjármagnaðir, þvert á orð meiri-
hlutans um aukna fjármögnun til
skólanna.
Það er ekki hægt að lesa annað út
úr skýrslu innri endurskoðunar en að
stærsta sveitarfélagi landsins hafi
mistekist að yfirtaka rekstur grunn-
skólanna frá ríkinu. Viðhaldi er
ábótavant, sérkennsla hefur ekki
fengið það fjármagn sem hún þarf,
ekki hefur verið komið til móts við
vísitöluhækkanir, veikindaforföll eru
mikil og gríðarlegur skortur er á
fjármagni til skólanna sem veldur því
að þeir ná ekki að reka sig réttu meg-
in við núllið.
Í skýrslu innri endurskoðunar er
lagt til er að skera frekar niður þá
þjónustu sem verið er að veita reyk-
vískum börnum og loka og sameina
skóla til að rétta við þessa stöðu.
Þannig má öllum vera ljóst að meiri-
hlutinn hyggst ekki bæta í heldur
mun halda áfram að skera niður.
Allir vita að þessi staða mun bitna
illa á starfsfólki og nemendum. Álag-
ið er því víða mikið.
Mér er það algerlega hulin ráðgáta
að stærsta sveitarfélag landsins geti
ekki haldið úti lögbundinni þjónustu
skammlaust á tímum sögulegs
tekjugóðæris. Ljóst er að borginni
hefur mistekist að yfirtaka rekstur
grunnskóla af ríkinu, það er í raun
það sem skýrsla innri endurskoðunar
staðfestir. Við verðum að gera betur
en þetta.
Enn einn áfellisdómurinn fyrir meirihlutann
Eftir Valgerði
Sigurðardóttur
Valgerður
Sigurðardóttir
»Ekki hægt að lesa
annað út úr skýrslu
innri endurskoðunar en
að stærsta sveitarfélagi
landsins hafi mistekist
að yfirtaka rekstur
grunnskólanna.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
valgerdur.sigurdardottir@reykjavik.is