Morgunblaðið - 03.09.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 03.09.2019, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019 ✝ Guðrún Ólafs-dóttir fæddist í Hafnarfirði 19. nóv- ember 1951. Hún lést á Droplaugar- stöðum í Reykjavik 22. ágúst 2019. Foreldrar hennar voru Kristín Sigurð- ardóttir, f. 10. októ- ber 1921, d. 6. febr- úar 1986, og Ólafur Frímannsson, f. 13. maí 1921, d. 5. apríl 1987. Systk- ini Guðrúnar voru Birgir Ólafs- son, f. 8. nóvember 1942, Sig- urður Ólafsson, f. 20. maí 1944, d. 4. september 2010, og Einar Ólafsson, f. 6. febrúar 1954. Guðrún giftist Kristjáni Jens Kristjánssyni, f. 4. april 1950. Börn þeirra eru Ólafur, f. 14. desember 1970, Matthías, f. 9. mars 1972, kvæntur Þórunni Sig- urðardóttur, f. 12. febrúar 1970, og Ásdís, f. 7. ágúst 1973, gift Ragnari Arelius Sveinssyni, f. 27. mars 1973. Börn Matthíasar eru Arndís Ýr, f. 12. febrúar 1999, og Helga Dís, f. 10. ágúst 2005. Dóttir Þórunnar er Guðný Stefánsdóttir, f. 4. júlí 1986. Börn Ás- dísar eru Hrafn- hildur, f. 3. október 1999, Halldór, f. 23. febrúar 2003, og Guðrún, f. 19. júlí 2010. Guðrún skildi við fyrri mann sinn árið 1990. Árið 2000 giftist Guðrún seinni manni sínum, Kristjáni Ingvarssyni, f. 18. mars 1947. Börn hans eru Trausti Þór, f. 1970, Arnar Helgi, f. 1972, og Berglind Sólveig, f. 1983. Guðrún vann lengstum á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði, fyrst sem sjúkralíði, síðar sem hjúkrunarfræðingur, svo á bráðamóttöku Borgarspítalans í nokkur ár. Útför Guðrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 3. september 2019, klukkan 13. Í dag kveðjum við mömmu. Hún var ekki bara mamma mín heldur líka besta vinkona. Við vorum alltaf nánar, alveg sama þótt við byggjum ekki á sama landinu í 21 ár. Fyrstu árin sem mamma bjó í Orlando héld- um við sambandi með faxsending- um. Kannski var hringt einu sinni til tvisvar í mánuði því það var svo dýrt. Síðan tóku við tölvupóstar, Skype-samtöl og að síðustu sam- töl í mynd með FaceTime. Með tækninni fengum við þann lúxus að geta talað saman á hverjum degi. Þannig gátum við enn betur tekið þátt í lífi hvor annarrar. Það besta var auðvitað að þá var svo auðvelt að taka þátt í lífi barna- barnanna. Hvað get ég sagt um mömmu. Hún var hlý, mátti ekkert illt sjá og var alltaf tilbúin að hjálpa. Enda átti hún stóran hóp vina og fjölskyldu sem stóðu þétt með henni í gegnum veikindin. Hún var ein óeigingjarnasta mann- eskja sem ég þekki. Alltaf gengu fjölskylda og vinir fyrir hennar þörfum. Í veikindunum kvartaði hún aldrei. Ég get ekki ímyndað mér hversu erfitt það var fyrir hana að missa málið og hreyfiget- una smám saman. Hún tók öllu með æðruleysi sem ég hef aldrei áður séð. Missirinn er ekki bara minn. Raggi eiginmaður minn missir tengdamóður sem tók honum strax sem hluta af fjölskyldunni. Hún tók honum sem eigin syni. Börnin okkar missa ömmu sem alltaf var til staðar og hafði ein- lægan áhuga á lífi þeirra. Yngsta dóttir okkar lýsir sínum missi svo vel: mér finnst ósanngjarnt að ég fékk bara að Mekka ömmu í níu ár. Síðasta samtal okkar mömmu, nokkrum dögum fyrir andlátið, lýsir henni líka vel. Ég var að kveðja hana eftir heimsókn á Droplaugarstaði. Eftir kossa og knús sagði ég við hana að ég kæmi fljótlega aftur í heimsókn. Hún svaraði: Það er eins gott. Já, húm- orinn fylgdi henni fram á síðasta dag. Það var svo gott að hlæja með henni. Fyrir nokkrum mánuðum rakst ég á texta Ómars Ragnars- sonar við lag Billy Joel, Íslenska konan. Mér finnst hann lýsa svo vel ást móður minnar á börnum sínum. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og þér helgar sitt líf. Með landnemum sigldi’hún um svarrandi haf. Hún sefaði harma, hún vakti’er hún svaf. Hún þerraði tárin hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan sem allt á að þakka vor þjóð. (Ómar Ragnarsson) Hvíl í friði, elsku mamma. Við söknum þín en við vitum að það verður vel tekið á móti þér hinum megin. Amma Didda og afi Óli hugsa vel um þig þegar þið hittist á ný. Við munum ávallt elska þig. Ásdís, Ragnar, Hrafnhildur, Halldór og Guðrún. Elsku amma okkar. Það var alltaf fjör í kringum ömmu Orlando. Hún var ung í anda og hún gat verið með okkur barnabörnunum tímunum saman þar sem hún skemmti sér sem allra best. Nei var ekki til í hennar orðaforða og maður gat platað hana í hvað sem er, hvenær sem er. Fermingarferðin sem við frænkurnar fórum í til ömmu í Or- lando er ógleymanleg og er alltaf ofarlega í huga okkar. Amma Or- lando fór með okkur stelpurnar í Universal Studios þar sem hún amma dró okkur með sér í alla rússíbanana og virtist hún skemmta sér betur en við. Mikið var hlegið og haft gaman þessa ferðina og það kom ekki einn dag- ur þar sem amma gat slappað af. Amma Orlando var mikil skvísa, hún var alltaf í litríkum kjólum og geislaði af henni hvar sem hún var. Hún eignaðist marga góða vini í gegnum ævina sem henni þótti afar vænt um. Það var sjaldan ró- legt heima hjá ömmu í Glaumbæ. Gestagangurinn var mjög mikill og mættu bæði boðnir sem og óboðnir gestir í veislu til þeirra sem höfðu getið sér gott orð með- al almennings og tók hún öllum opnum örmum, sem lýsir henni svo vel. Amma Orlando kenndi okkur margt um lífið, meðal annars að trúa og treysta á okkur sjálf og sjá það góða í öðrum. Elsku amma Orlando, nú hefur þú fært veisluna úr Glaumbæ upp í Skýjabæ. Elsku amma Orlando, við mun- um ávallt minnast þín og þú verð- ur ávallt í hjarta okkar. Þér kæra sendi kveðju með kvöldstjörnunni blá, það hjarta sem þú átt, en sem er svo langt þér frá, þar mætast okkar augu þó ei oftar sjáumst hér, ó, guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér, ó, guð minn ávallt gæti þín ég gleymi aldrei þér. (Bjarni Þorsteinsson) Þín barnabörn, Guðný, Arndís og Helga Dís. Það er með mikilli sorg í hjarta sem við setjumst niður og minn- umst yndislegrar systur og mág- konu. Strax á æskuárum mynd- uðust sterk tengsl milli okkar systkinanna sem héldust alla tíð. Við studdum hvort annað gegnum æskuárin og ekki síður eftir að við eignuðumst bæði fjölskyldur. Margs er að minnast. Sveitardvöl Guðrúnar í Klauf í V-Landeyjum og bróðirinn í sveit í A-Landeyj- um, sveitaböll og íþrótta- og hestamannamót. Aðeins 19 ára gömul stofnaði Guðrún heimili og fjölskyldan stækkaði hratt. Vinna, barnauppeldi og síðan sjúkraliðanám og þá hjúkrunar- nám. Það var ekki slegið slöku við hjá ungri konu. Mikið var ég stolt- ur af systur minni og auðvitað var reynt að hlaupa undir bagga eins og hægt var. Ævistarfið var við umönnun og hjúkrun og var hún afskaplega vel liðin af skjólstæð- ingum og ekki síður vinnufélögum enda nærgætin og samviskusöm svo af bar. Í þeim eignaðist hún marga góða vini. Guðrún var yndisleg frænka barnanna okkar. Alltaf spennandi að fá gjafir frá Gunnu frænku, ekki síst eftir að hún flutti erlendis. Það voru ófáar heimsóknir til hennar til USA og naut fjölskylda okkar ríkulegrar gestrisni hennar og Kristjáns. Þegar Guðrún kom til Íslands dvaldi hún oft hjá okkur enda eitt herbergið nefnt Gunnuherbergi. Eftir annasaman tíma fyrri part ævi sinnar naut hún þess svo sannarlega að ferðast vítt og breytt um heiminn með Kristjáni. Það átti hún svo sannarlega skilið. Fyrir rúmum tveimur árum dundi áfallið yfir. Guðrún greind- ist með mein sem ekki varð við ráðið. Enn kom í ljós æðruleysi hennar og innri styrkur. Aldrei kvartað, ávallt þakklát öllum sem hana önnuðust og reyndi að hug- hreysta aðra sjúklinga. Guðrún naut góðrar aðstoðar heima- hlynningar en síðustu vikur dvaldi hún á Landspítalanum og Droplaugarstöðum. Rétt er að þakka öllu því góða fólki sem ann- aðist hana í erfiðum veikindum. Ómetanlegt var að sjá hvað henn- ar góði vinahópur reyndist henni einstaklega vel á erfiðum tímum. Elsku Guðrún, við þökkum ein- staka samfylgd í gegnum lífið. Hittumst í blómabrekkunni. Við vottum Kristjáni, Óla, Matta, Ásdísi og fjölskyldum dýpstu samúð. Einar og Inga. Það er sárt að sitja hér nú og skrifa minningargrein um góða vinkonu okkar, Guðrúnu Ólafs- dóttir, sem í marga mánuði er bú- in að berjast hetjulegri baráttu fyrir lífi sínu en dugði ekki til. Þetta er búinn að vera langur og erfiður tími fyrir alla að sjá hana svona veika en hún átti góða að og Kristján og fjölskylda hafa hjálpast að við að létta vinkonu okkar lífið sem mest og best þau gátu. Það er fátt betra en að eiga góða vinkonu og Guðrún var okk- ur það alla tíð frá fyrstu kynnum. Guðrún og Kristján voru ein- staklega samhent hjón og getur verið erfitt að fjalla um Guðrúnu hér án þess að Kristján komi þar víð sögu líka, þannig voru þau bara. Hún var gestrisin og tók öllum fagnandi inn á heimili þeirra í Flórída og með árunum varð það svo að þau Guðrún og Kristján voru hjónin sem allir þekktu og Íslendingar á ferðalagi gátu leitað til þegar þeir komu til Ventura, það var alltaf pláss fyrir extra disk eða dýnu og engum var út- hýst, vinátta og hjartahlýja fylgdi líka með. Þessi ljúfmennska við alla var henni eðlileg og fengu allir hennar notið. Það var alltaf glatt í kringum hana og heimili þeirra opið fyrir Íslendinga sem vildu koma til að spjalla og hitta mann og annan eða fá aðstoð við eitthvað. Oftar en ekki var komið hlaðborð af mat sem hún töfraði fram á sinn ein- staka hátt og þá setið fram eftir kvöldi með góðum gestum. Ár eftir ár taldi Guðrún ekki eftir sér að að halda íslendingum á Ventura-svæðinu stórveislu, hvort sem var hrekkjavaka, Thanksgiving eða þorrinn eða bara eitthvað annað tilefni eða ekkert tilefni, þannig voru þau bara. Tók Kristján þá gjarnan gít- arinn og spilaði lög sem allir kunnu og tóku hressilega undir, þetta voru yndislegar stundir saman og ógleymanlegar. Fyrir þetta og svo ótal margt annað sem hún og þau hjónin saman lögðu að mörkum til hins góða samfélagi Íslendinga í Vent- ura í Flórída viljum við þakka þeim fyrir. Nú kveðjum við góða vinkonu en fallegar minningar um allar góðu stundirnar sem við áttum saman munu lifa með okkur ætíð. Gull og perlur að safna sér sumir endalaust reyna, vita ekki að vinátta er verðmætust allra steina. (Hjálmar Freysteinsson) Elsku Kristján og fjölskylda, okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Ragnhildur (Ransý) og Guðmundur. Í októbermánuði 2002 vorum við í fríi í Orlando í Flórída með Erni syni okkar og fjölskyldu hans. Við fjölskyldan höfðum þá eignast athvarf á Ventura-svæð- inu og vorum að njóta orlofsdval- ar þar í fyrsta sinn. Við vissum að nokkuð væri um Íslendinga á svæðinu en þekktum fáa. Atvikin höguðu því þannig að fyrir utan húsið á móti okkur heyrðum við talaða íslensku og röltum við yfir götuna til að heilsa nágrönnunum. Var okkur afar vel fagnað og við drifin inn. Húsráð- endur voru hjónin dr. Kristján Ingvarsson og Guðrún Ólafsdóttir og í heimsókn hjá þeim voru Ein- ar bróðir Guðrúnar og Inga kona hans með börn sín. Barnabörn okkar og börn Ingu og Einars fundu strax taktinn og sama gilti um okkur eldri kyn- slóðir. Þetta var upphafið að inni- legri og náinni vináttu. Guðrún og Einar bróðir hennar eru úr Hafn- arfirði og var ekki lengi verið að tengja saman, fara í ættfræðina og segja frá atburðum í hafnfirska mannlifinu. Foreldrar Kristjáns, Ingvar Emilsson og Ása Guðmundsdótt- ir, höfðu líka verið syni okkar Steinari innan handar þegar hann var skiptinemi í Mexíkó 1993-94. Þannig voru tengingarnar strax sterkar. Guðrún og Kristján voru ein- staklega gestrisin og meira en það. Þau voru ávallt til staðar til að liðsinna löndum sínum sem dvöldu á Ventura-svæðinu sem og öðrum sem til þeirra leituðu. Þau voru okkur miklar hjálparhellur, m.a. þar sem þau voru fastbúandi í Orlando og öllum hnútum kunn- ug þar. Kristján hefur rekið fyrir- tæki sitt Ocala Instruments Inc. um áratuga skeið á Flórída. Það var alltaf fyrsta verk okkar við komu til Orlando að heilsa upp á þau heiðurshjón og oftar en ekki sótti Guðrún okkur á flugvöllinn og var búin að kaupa inn matar- forða fyrir okkur til næsta dags. En við vorum ekki ein um að njóta þessarar miklu greiðasemi og væntumþykju. Guðrún og Kristján voru alltaf tilbúin að lið- sinna og veita Íslendingum sem til þeirra leituðu upplýsingar og nauðsynlega aðstoð enda fór svo að Kristján var gerður að kjör- ræðismanni Íslands í Orlando. Guðrún stóð þétt við bakið á hon- um í því starfi eins og öðru Það var mikið högg þegar Guð- rún greindist með illvígan sjúk- dóm fyrir um tveimur og hálfu ári. Fór svo að þau hjónin fluttu til Ís- lands til meðferðar við sjúkdómi Guðrúnar og var Kristján ein- staklega natinn við að hugsa um hana heima eins lengi og mögu- legt var. Við söknum Guðrúnar sárt en minningin um ljúfan og traustan vin lifir með okkur. Við þökkum henni samfylgdina og vottum Kristjáni og börnum Guðrúnar og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Anna Björk og Almar Grímsson. Góð vinkona er fallin frá eftir baráttu við illvígan sjúkdóm sem hafði betur að lokum. Óneitanlega er margs að minnast við þessi tímamót og minningar hrannast upp. Kynni okkar Guðrúnar hóf- ust í Flensborg árið 1966 þegar við urðum bekkjarsystur. Bekk- urinn samanstóð af 18 hressum stelpum og fimm strákum, sem áttu áreiðanlega ekki sjö dagana sæla með þessum fyrirferðar- miklu stelpum. Guðrún var ein- staklega vel gerð, hvers manns hugljúfi, hjálpsöm, klár og skemmtileg. Fljótlega eftir skóla- árin í Flensborg kynntist hún fyrri eiginmanni sínum, Kristjáni, og eignaðist sitt fyrsta barn. Tæp- lega 22ja ára gömul var hún orðin þriggja barna móðir, í vinnu og að koma þaki yfir höfuðið. Þarna komu hæfileikar Guðrúnar vel í ljós, þar sem hún leysti öll þessi verkefni af stakri snilld. Í ofaná- lag byrjaði hún nokkrum árum seinna að mennta sig umfram gagnfræðaprófið. Meðan börnin voru enn ung fór hún í sjúkralið- anám og í kjölfarið dreif hún sig í hjúkrunarfræði og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1986. Þessi ár og mörg fleiri starf- aði Guðrún á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Hún var sannarlega á heimavelli í hjúkruninni, vel metin og þótti einstaklega natin og fær hjúkrunarfræðingur. Guð- rún starfaði á fleiri stöðum við hjúkrun og síðustu starfsárin vann hún á Slysavarðstofunni. Ég minnist Guðrúnar þegar við vorum ungar skólasystur í Flens- borg, báðar lífsglaðar, feimnar og biðum spenntar eftir framtíðinni sem beið okkar. Eftir Flensborg- arárin stofnaði stór hluti skóla- systranna saumaklúbb. Við vor- um óþreytandi að hittast á veturna í saumaklúbbum og partí- um og yfir sumartímann í sum- arbústað með eiginmenn og börn þar sem farið var í endalausa leiki og mikið fjör með barnaskarann. Eftir skilnað Guðrúnar og Kristjáns kynntist hún öðrum Kristjáni, núna Ingvarssyni, og flutti með honum til Orlando. Hún starfaði ekki utan heimilis í Or- lando en það var í nógu að snúast hjá henni því það var mikill gesta- gangur á heimilinu og einnig mik- ið leitað til hennar með alls kyns heilsufarsvandamál Íslendinga sem dvöldu í Ventura þar sem þau bjuggu. Alltaf var gott að leita til henn- ar og af sömu alúð og fyrr leysti hún úr hvers manns vanda. Og ekki má gleyma endalausu stór- veislunum sem þau hjónin héldu í húsi sínu, sem þau reyndar nefndu Glaumbæ. Ég naut gestrisni þeirra mörg- um sinnum í Orlando og tóku þau ávallt vel á móti mér, voru iðulega búin að plana eitthvert skemmti- legt ferðalag, veislur og síðast en ekki síst búðarferðir okkar Guð- rúnar. Fyrir tveimur og hálfu ári greindist Guðrún með krabba- meinsæxli í höfði. Það var mikið áfall fyrir hana, Kristján og börn- in hennar. Mjög fljótlega hafði æxlið þau áhrif að hún átti erfitt með tal og síðan í kjölfarið hreyfi- getu. Það var aðdáunarvert að verða vitni að því af hve miklu æðruleysi hún tókst á við sjúkdóminn og fylgikvillana sem honum fylgdu. Ég vil votta Kristjáni, Óla, Matta, Ásdísi og fjölskyldum mín- ar dýpstu samúðarkveðjur um leið og ég kveð Guðrúnu með virð- ingu og þakklæti fyrir allar yndis- legu samverustundirnar. Bryndís Eysteinsdóttir. Sól og ylur hafa einkennt þetta sumar. Þannig mun ég ávallt minnast vinkonu minnar Guðrún- ar Ólafsdóttur, sem konu með sól í sinni og konu sem ávallt fylgdi yl- ur og hlýja hvar sem hún fór. Það gerist ekki oft á lífsleiðinni að ég verði svo dolfallin yfir fólki að það sé ekkert brýnna en að gera við- komandi að vini sínum. Þannig var mér farið þegar ég hitti Guð- rúnu fyrst. Sem betur fer gekk ósk mín eftir og við urðum vinkon- ur fyrir lífstíð. Í tæp fimmtíu ár hefur ekki fallið skuggi á vináttu okkar. Við áttum samleið sem ungar mæður með lítil börn. Það var margt brallað þá og svo seinna þegar krakkarnir voru komnir af höndum. Það hafði ver- ið draumur Guðrúnar að verða hjúkka, eftir langa dvöl á Vífils- stöðum sem lítil telpa. Hún bretti upp ermar og skellti sér í sjúkra- liðanám, vann næturvaktir, pass- aði börn og bú á daginn, skólinn á kvöldin! Svo bætti hún í og lauk hjúkrunarfræðinámi. Á þeim vettvangi nutu hennar góðu hæfi- leikar sín vel. Nærgætin, hjálp- söm og alúðleg. Rúmlega fertug eltir Guðrún ástina sína til Am- eríku. Kristján Ingvarsson og Guðrún urðu kunn fyrir gestrisni og hjálpsemi. Húsið þeirra í Vent- ura stóð ávallt opið og þar nutu margir samvista við þau. Ekki að ástæðulausu að húsið fékk nafnið Glaumbær. Þau hjón ferðuðust um allan heim og upplifðu ólíkar heimsálfur. Vágesturinn sem seinna rændi Guðrúnu orku og máli bankaði uppá fyrir tveim og hálfu ári. Kristján annaðist Guð- rúnu af mikilli natni þann tíma sem hún var veik og þá sáum við hversu sterkt og innilegt sam- band þeirra var. Núna er komið að leiðarlokum og ég get ekki ann- að en verið þakklát fyrir vináttu þína og allar góðu stundirnar okk- ar saman. Við sem söknum, tök- um fram minningarnar og yljum okkur við þær svo margar og svo góðar. Ása Björk. Nú hafa leiðir okkar Guðrúnar, elskulegrar frænku og vinkonu, skilið um tíma. Það má segja að okkar nána samband hafi byrjað þegar systkinin Guðrún og Einar komu á kvöldin á Austurgötuna til að horfa á Kanasjónvarpið. Þá var ekkert mál að ganga á milli hverfa. Ávallt fylgdum við hvor annarri að læknum, hvort sem við komum frá Austurgötu eða Sel- vogsgötu. Mikill samgangur og vinátta var á milli okkar systkina og frændsystkinanna á þessum tveimur heimilum. Á unglingsár- unum gengum við í Flensborgar- skólann og á sumrin lá leið Guð- rúnar að Klauf í V-Landeyjum og ég var á sama tíma í Sigluvík í sömu sveit. Þar var skottast á milli bæja, hoppað yfir skurði og hlaupið yfir þúfur. Þetta var skemmtilegur tími. Vorið 1970 fórum við í Hjúkrunarskóla Ís- lands til að hitta skólastjórann með meðmæli frá systrunum á St. Jósefsspítala þar sem við höfðum báðar unnið. Ætlunin var að byrja í hjúkrun um haustið. Guðrún frestaði náminu og eignaðist sín yndislegu börn, Ólaf, Matthías og Ásdísi, sem nú sakna móður sinn- ar. Guðrún hélt samt sínu striki, lærði fyrst til sjúkraliða og lauk síðan námi frá Hjúkrunarskóla Íslands 1986. Eftir útskrift hóf Guðrún störf á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, þar sem hún hafði áð- ur unnið sem starfsstúlka og sjúkraliði. Þar vann hún síðan í 10 ár sem hjúkrunarfræðingur. Hún sinnti sjúklingum sínum af alúð og var markviss í vinnubrögðum. Árið 1996 hóf hún störf á slysa- deild LSH og starfaði þar þangað til hún og Kristján Ingvarsson hófu sambúð. Árið 2000 giftu þau sig, voru þá búin að koma upp fal- legu heimili í Orlando þar sem gleði, hlýja og gestrisni var í fyr- irrúmi. Það var yndislegt að sækja þau hjón heim. Ógleyman- leg er heimsóknin til þeirra á fimmtugsafmæli Hilmars. Í tví- Guðrún Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.