Morgunblaðið - 03.09.2019, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
✝ Lilja Guð-mundsdóttir
fæddist á Selfossi 8.
desember 1961.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Suðurlands 23.
ágúst 2019.
Lilja var dóttir
Þuríðar Guðmundu
Magnúsdóttur, f.
8.4.1936, d. 9.11.
2015, og Guð-
mundar Gottskálkssonar, f.
16.4.1931, d. 23.2.2011.
Lilja var önnur í röð fimm
systkina. Elstur er Magnús, f.
20.9. 1959, þriðja er Gróa, f. 1.8.
1963, fjórði er Gottskálk, f. 3.12.
1965, og yngst er Jóna Guð-
björg, f. 22.4. 1969.
tvö börn, Lilju, f. 12.2. 2016, og
Sögu, f. 12.2. 2016; Guðmund, f.
23.6. 1984, giftan Elínu Mjöll
Lárusdóttur, f. 16.12. 1984, og
eiga þau þrjú börn, Gabríel, f.
3.12. 2009, Mána, f. 10.1. 2016,
og Birtu, f. 3.8. 2018; og Þuríði
Elvu, f. 1.7. 1994, maki Michael
Popovic, f. 6.10. 1990, og eiga
þau eitt barn, Adrian Noel, f.
1.12. 2017, og eiga von á öðru í
nóvember.
Lilja ólst upp á Kvíarhóli í
Ölfusi en fluttist síðar á Selfoss,
þar sem hún og Eggert stofnuðu
heimili árið 1980. Lilja útskrif-
aðist frá Fjölbrautaskóla Suður-
lands árið 1990 og stofnaði síðar
og rak verslanirnar Í tilefni
dagsins og DoReMí á Selfossi.
Árið 2010 byrjaði Lilja í djákn-
anámi við Háskóla Íslands og til-
einkaði mikið af tíma sínum því
að hjálpa öðrum, m.a. gegnum
líknar- og vinafélagið Bergmál.
Útförin fer fram frá Selfoss-
kirkju í dag, 3. september 2019,
klukkan 14.
Þann 30.1. 1983
giftist Lilja Eggerti
Guðmundssyni, f.
2.4. 1959. Eggert er
annað barn hjón-
anna Guðmundar
Eggertssonar, f.
29.1. 1929, d. 16.10.
2017, og Ídu Elvíru
Óskarsdóttur, f. f.
4.7.1932, d. 26.4.
2001.
Lilja og Eggert
eignuðust fjögur börn, þau Kol-
brúnu Dögg, f. 5.10. 1980, gift
Carmine Impagliazzo, f. 6.10.
1979 og eiga þau tvö börn, Katiu
Líf, f. 2.5. 2010 og Antonio, f.
23.4. 2014; Sólrúnu Tinnu, f.
20.11. 1982, maki Mathias War-
necke, f. 3.5. 1979, og eiga þau
Þá kom að kveðjustundinni,
ástin mín, sem hafði vofað yfir frá
því þú greindist með sjúkdóminn
fyrir 17 árum síðan. Takk fyrir ár-
in og baráttuna. Hetjan mín og
fyrirmynd, stoð og stólpi. Núna
þegar ég kveð þig á ég endalaust
góðar minningar sem ég ber í
brjósti mínu það sem eftir er.
Líf okkar var ekki alltaf dans á
rósum, Lilja mín, en allur mótbyr
styrkti okkur. Við fengum ekki
allan þann tíma sem við vildum, en
þann tíma sem við fengum nýttum
við vel. Fjögur yndisleg börn, átta
barnabörn og eitt á leiðinni. Allt
sólargeislar í lífi okkar hvert með
sinn persónuleika. Öll á góðum
stað í lífinu og öllum líður vel. Við
unnum hörðum höndum að því að
koma okkur á góðan stað í lífinu,
og loks þegar þú áttir að njóta
ávaxtanna með mér, varstu tekin
frá mér. Alltaf hafðirðu gaman af
því að ferðast með mér, frá því að
við byrjuðum með börnin í botn-
lausa tjaldinu okkar og ferðuð-
umst landið þvert og endilangt,
sofið úti í guðsgrænni náttúrunni
með allt það sem fylgdi stórum
barnahóp. Alla tíð og fram á síð-
asta dag ferðuðumst við mikið og
síðasta ferðin þín sem þú þráðir
heitast að komast í, á þann stað
sem okkur þótti vænst um, Sæból
í Haukadalnum okkar í Dýrafirði,
var farin í júlí. Eftir að hafa und-
irbúið fyrir ferðina var fyrsta
stopp tekið fyrir utan á, á verk-
stæðinu í Hellismýri í hálftíma lúr
að safna orku. Smá kaffisopi, lagt
af stað og komumst við að Hval-
fjarðargöngum áður en næsti lúr
var tekinn til að safna orku. Svo
var það Borgarnes í næsta stopp.
Ferðin tók tvo sólarhringa en
áfangastað var náð. Þetta var hún
Lilja mín. Aldrei nein uppgjöf.
Eins og hún sagði oft: „Ég get
ekki kvartað, það er einhver sem
hefur það verra en ég“.
Sorgin er gjald kærleikans, og
því er svo mjög sárt að kveðja þig.
Við Lilja bjuggum við mikil for-
réttindi að búa í þessu samfélagi
hér á Selfossi með öllu því góða
fólki sem hefur stutt okkur í veik-
indum hennar. Vil ég þá sérstak-
lega þakka okkar góðu vinum
ásamt starfsfólki Sjúkrahúss Suð-
urlands sem gerir þá stofnun ein-
staka.
Takk, Lilja mín, fyrir allt og
allt.
Eggert Guðmundsson.
Erla, góða Erla,
ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð.
Æskan geymir elda
og ævintýraþrótt.
Tekur mig með töfrum
hin tunglskinsbjarta nótt.
Ertu sofnuð, Erla?
Þú andar létt og rótt.
Hart er mannsins hjarta
að hugsa mest um sig.
Kvöldið er svo koldimmt
ég kenni’ í brjósti’ um mig.
Dýrlega þig dreymi
og Drottinn blessi þig.
(Stefán frá Hvítadal)
Sofðu rótt, elsku mamma.
Sakna þín svo sárt.
Þín,
Sólrún Tinna Eggertsdóttir.
Elsku mamma.
Manstu þegar að við vorum í
Portúgal og ég hafði orð á því að
ég gæti hugsað mér að búa á sól-
ríkum stað með líflegri menningu
í framtíðinni? Þá horfðir þú bros-
andi til mín og sagðir: „Já, ég sé
þig einmitt búa á svona stað í
framtíðinni, ert svo mikið þú.“ Og
þú hafðir rétt fyrir sér eins og svo
oft áður af því að þú þekktir mig
svo vel, enda varstu mjög ung
þegar þú eignaðist mig. Samband
okkar einkenndist oft meira af
vináttu en mæðrasambandi enda
vorum við oft spurðar að því hvort
við værum systur.
Þú lagðir mikla áherslu á að við
öll systkinin menntuðum okkur,
ferðuðumst um heiminn og fynd-
um það sem við hefðum ástríðu
fyrir í lífinu. Þegar ég ákvað að
flytja út til Ítalíu hafði ég smá
áhyggjur af því hvernig þú tækir
því að ég færi svona langt í burtu
frá þér. En þú varst svo ánægð og
spennt fyrir mína hönd og lofaðir
að koma oft að heimsækja mig.
Sem þú svo sannarlega gerðir og
naust þín til fullnustu á fallegu
eyjunni minni. Þó að við værum
hvor í sínu landinu og langt ferða-
lag aðskildi okkur léstu þig aldrei
vanta á mikilvægum stundum eins
og þegar við giftum okkur, þegar
barnabörnin þín tvö fæddust eða
okkur vantaði aðstoð við að flytja
inn í nýja húsið okkar. Þú varst
alltaf til staðar fyrir mig í einu og
öllu.
Þú talaðir oft um það hvað þú
hlakkaðir til í ellinni að kaupa þér
lítið hús úti hjá mér og eyða
stórum hluta ársins að njóta í hit-
anum með pabba. Því miður,
mamma, á sá draumur ekki eftir
að rætast að hafa þig nær mér en
ég veit að þú verður með mér í
anda í öllu því sem ég tek mér fyr-
ir hendur og vakir yfir barnabörn-
unum þínum.
Elsku mamma, þú ert fyrir-
myndin mín og kenndir mér að
taka Pollýönnuhugsunarháttinn á
lífið; vera alltaf jákvæð og þakklát
fyrir lífið og lifa einn dag í einu. Á
síðustu árum veikinda þinna flaug
hugur þinn alltaf hærra en líkami
þinn leyfði og viljinn fyrir að lifa
og njóta barnabarnanna var
sterkari en allt. Ég er og verð
ávallt stolt að því vera dóttir þín.
Hugurinn fer hærra,
höndin er styrk sem stjórnar mér,
Um himingeiminn heim með þér.
Hugurinn fer
með þér, er lífið eins og leikur.
Það líf sem vekur hjá mér þrá.
Og þú, ert það sem ég vil.
Og þú, átt birtu og yl.
Meðan myrkrið er kalt,
mun ég gefa þér allt sem ég á.
Þín
Kolbrún.
Elsku mamma,
Nú ertu frjáls frá veikindunum,
frjáls frá öllum sársauka og komin
á betri stað. Þú barðist meir og
lengur en nokkurn grunaði, barð-
ist með jákvæðni og bjartsýni að
vopni – allt fyrir fólkið þitt. Þú
tókst þínum veikindum af æðru-
leysi og hafðir alltaf tíma til að
hjálpa öðrum. Ég mun minnast
þín fyrir alla ástina sem þú gafst
okkur. Ég mun minnast þín fyrir
skilyrðislausu ástina milli þín og
pabba. Ég mun minnast þín og
hvað þú ert falleg.
Ég elska þig.
Guðmundur Eggertsson.
Elsku yndislega Lilja mín. Það
er erfitt að kveðja þá sem maður
elskar. Þú ert mér svo mikilvæg,
mamma eiginmannsins míns,
amma barnanna minna og góð
vinkona. Ég er þér svo þakklát
fyrir það að frá fyrsta degi hafið
þið Eggert tekið mér opnum örm-
um og komið fram við mig eins og
ykkar eigin dóttur.
Þótt þú sért farin frá okkur þá
mun minning þín lifa með okkur. Í
hvert sinn sem að við kaupum
blóm, bökum vöfflur eða málum
mynd með bláum lit þá munum
við minnast þín með bros á vör. Þú
verður alltaf hjá okkur.
Jákvæðni þína, góðmennsku og
bjartsýni ætti hver maður að taka
sér til fyrirmyndar og við Gabríel
erum sammála um að þú ert al-
gjör ofuramma.
Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur,
og fagrar vonir tengir líf mitt við.
Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar,
er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég
hjá.
Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á?
Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber?
Þú fagra minning eftir skildir eina,
sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er.
(Valdimar Hólm Hallstað)
Elska þig.
Elín Mjöll Lárusdóttir
Elsku besta systir mín.
Með sorg í hjarta og með mikl-
um söknuði skrifa ég þér nokkur
orð.
Þú verður alltaf hetjan mín og
fyrirmynd.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
mig og betri systur hefði ég ekki
getað óskað mér.
Þú kenndir mér svo ótal margt
með hugarfari þínu, sama hvað
bjátaði á. Svo jákvæð, kvartaðir
aldrei og talaðir aldrei illa um einn
né neinn.
Margs er að minnast og dýr-
mætu minningarnar varðveiti ég í
hjarta mér.
Þú ert og verður alltaf hjá mér
og ég veit að mamma tekur vel á
móti þér.
Hvíldu í friði, elsku systir,
þangað til að við hittumst á ný.
Og þó að í vindinum visni,
á völlum og engjum hvert blóm.
Og haustvindar blási um heiðar,
með hörðum og deyðandi róm.
Og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó.
Hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.
Þessi lilja er mín lifandi trú,
þessi lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja er mín lifandi trú!
(Þorsteinn Gíslason)
Þín systir
Gróa.
Það er svo stutt síðan við sát-
um, nokkur saman, og vorum að
ræða húsnæðisvanda Bergmáls.
Það var orlofsvika og við vorum í
borðstofu Brekkukots á Sólheim-
um. Sigurður Bragason hafði
sungið fyrir okkur á kvöldvöku, og
eftir kvöldkaffið varpaði hann
fram þessari spurningu „af hverju
byggið þið ekki hús fyrir starf-
semi ykkar?“ Það var fátt um svör
enda kosta hús engar smáupp-
hæðir. Lilja mín sat á móti mér.
Hún brosi sínu fallega brosi og
svaraði „ég á smið sem ég skal
lána þér Kolla mín, ég veit að
hann myndi vilja hjálpa“. Sá veld-
ur miklu sem upphafinu veldur og
þarna fæddist hugmyndin að húsi,
orlofsdvalarstað fyrir langveika,
sem reis eftir tveggja ára vinnu og
sem Bergmál átti skuldlaust fyrir
kraftaverk og kærleiksverk fjölda
fólks. Þar var Eggert eiginmaður
Lilju, yfirsmiður og ófáar stund-
irnar vann hann við Bergheima-
húsið launalaust, ásamt öðrum
einstökum sjálfboðaliðum, sem
með dugnaði og ósérhlífni gerði
drauminn um Bergmálshús að
veruleika.
Elsku Lilja bar Bergmál ætíð
fyrir brjósti og gerði allt sem í
hennar valdi stóð til að hlúa að
starfi okkar. Hún var einstök vin-
kona, gleðigjafi, traust og ótrú-
lega dugleg. Hún þekkti ekki hug-
takið að gefast upp. Í átján ár
barðist hún við krabbamein, aldr-
ei kvartaði hún. Hún hafði alltaf
eitthvað gott og jákvætt til
málana að leggja. Hún sagðist líka
vera heppnasta kona í heimi. Hún
ætti einstakan mann, dásamleg
börn og hreint ótrúlega einstök
barnabörn. Auk þess tengdabörn
og vinahóp sem hún gæti ekki
óskað sér betri. Við sem hún
tengdist vinaböndum getum líka
sagt um hana. Hún var einstök,
góð, falleg og kærleiksrík. Hún
mun aldrei gleymast. Ég og Berg-
málsfélagar þökkum henni
margra ára samfylgd sem aldrei
bara skugga á. Elsku Eggerti,
börnunum þeirra og öllum ástvin-
um sendum við innilegar sam-
úðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll.
Kolbrún Karlsdóttir.
Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel.
Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk
- en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti ekki um litinn né ljómann
en liljan í holtinu er mín!
Þessi lilja er mín lifandi trú,
þessi lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja er mín lifandi trú!
Og þó að í vindinum visni,
á völlum og engjum hvert blóm.
Og haustvindar blási um heiðar,
með hörðum og deyðandi róm.
Og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó.
Hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.
Þessi lilja er mér gefin af guði
hún grær við hans kærleik og náð,
að vökva hana ætíð og vernda
er vilja míns dýrasta ráð.
Og hvar sem að leiðin mín liggur
þá liljuna í hjartastað ber,
en missi ég liljuna ljúfu
Þá lífið er horfið frá mér.
(Þorsteinn Gíslason)
Minning um yndislega vinkonu
lifir í hugum okkar um ókomna
tíð.
Elsku Eggert og fjölskylda,
innilegar samúðarkveðjur,
Hulda, Ásdís,
Erlín, Sigurlína og
fjölskyldur.
Elsku Lilja mín, eftir að þú hef-
ur kvatt okkur er mjög erfitt að
skrifa þessi minningarorð um þig.
Þegar ég lít til baka á ég ekkert
nema góðar minningar um sam-
veru okkar í gegnum tíðina. Það
er mér falleg minning þegar þið
Eggert buðuð mér í sumarbústað-
inn vestur í Haukadal þar sem
Guðmundur Eggertsson, tengda-
faðir þinn, fór á kostum í fróðleik
þar sem við fórum um alla Vest-
firði, Látrabjarg, Rauðasand og
Patreksfjörð. Þá nefni ég brúð-
kaup Kolbrúnar á Ítalíu sem þið
buðuð mér í og 50 ára afmælum
ykkar hjóna þar sem þið gerðuð
svo flottar veislur. Hvað svo sem
bjátaði á í veikindum þínum varst
þú alltaf svo jákvæð og bjartsýn.
Allt gekk svo vel og þú ætlaðir að
komast í gegnum þetta.
Þú varst algjör hetja og fyrir-
mynd fyrir aðra, elsku Lilja mín.
Þrátt fyrir ótal aðgerðir, lyfja- og
geislameðferðir varst þú alltaf svo
jákvæð og hress. Spurð um líðan
þína svaraðir þú ætíð að allt væri
fínt og allt gengi vel og þú værir
skárri. Ég leit alltaf upp til þín og
var svo stolt af þér. Þú, svo sann-
arlega, skilur eftir stórt skarð í til-
verunni og verður sárt saknað.
Eggerti, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum færi ég og Þor-
grímur Óli innilegar samúðar-
kveðjur. Ég kveð þig með ljóði
sem mér finnst eiga svo vel við
þig. Hvíl í friði, elsku vinkona.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Marianne Ósk B. Nielsen.
Lilja er dáin, sorgarfrétt fyrir
okkur öll sem þekktum hana, hún
var dásamleg manneskja í alla
staði. Ég man glöggt eftir því þeg-
ar ég sá Lilju fyrst. Það var í maí
1979 og lokaball Iðnskólans á Sel-
fossi fram undan. Eggert bróðir
hafði beðið mig um að aka sér og
vini hans frá Stokkseyri á ballið
og þar sem hann flaggaði Dodge
Dart, átta strokka kagga, þá var
erfitt að segja nei. Þegar á Selfoss
var komið bað Eggert mig um að
renna við á einum stað því hann
þurfi að sækja einn farþega til við-
bótar.
Við renndum upp að húsinu og
Eggert fór inn og kom út með
geislandi fallega stúlku með sér,
hana Lilju. Bros hennar og nær-
vera fyllti ameríska kaggann
strax af gleði og mátti skynja að
þarna væri komin ung kona sem
varið væri í, og ég hugsaði, Egg-
ert seigur.
Svo var farið á lokaballið, sem
reyndist hið skemmtilegasta, ég
náði að dansa töluvert við Lilju
þetta kvöld og spjalla við hana á
meðan Eggert var upptekinn að
ræða við útskriftarfélaga um
hvernig ætti að sigra heiminn.
Eftir ballið vildi Eggert ekki
skila Lilju heim strax heldur
reyna að ganga betur í augu henn-
ar með því að sýna henni kon-
ungsríkið í sveitinni, Tungu. Því
var ekið um sveitina eftir að hafa
skilað vininum heim til Stokkseyr-
ar og leit ég út eins og einkabíl-
stjóri með farþegana aftur í. Ég
man glöggt eftir hlátri, skríkjum,
upphrópunum og samræðum frá
aftursætinu þegar turtildúfurnar
voru að ræða saman um lífið og til-
veruna. Greinilegt var að mikil
hrifning var í loftinu og reyndi ég
að haga akstri mínum eins vel og
hægt væri á holóttum veginum til
að trufla ekki ástandið í aftursæt-
inu.
Sveitin leið hjá og bað Eggert
mig um að stoppa við rófu- og gul-
rótargarðana sem á þessum árum
virtust risastórir. Lilja spurði með
hrifningu: „Er allt þetta hjá
ykkur?“
Leiðin lá svo aftur á Selfoss og
Lilju var skilað heim, ennþá bros-
andi og jafnvel örlítið meira geisl-
andi en fyrir ballið.
Áframhaldið vita allir, Eggert
sleppti ekki taki sínu á Lilju né
Lilja á honum og þau byggðu upp
sitt bú og eignuðust stóra og
sterka fjölskyldu.
Stuttu seinna kynntist ég minni
konu og saman höfum við bræð-
urnir ferðast um lífið með okkar
fjölskyldur, og hefur það ferðalag
einkennst af nánd, góðum sam-
skiptum, hjálpsemi og kærleik.
Við Lísbet minnumst Lilju með
ást og kærleik í huga. Við kveðj-
um mikla baráttukonu með þakk-
læti fyrir yndisleg kynni. Við
sendum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur til Eggerts, Kolbrúnar
Daggar, Sólrúnar Tinnu, Guð-
mundar, Þuríðar Elvu og fjöl-
skyldna þeirra, ásamt systkinum
Lilju og fjölskyldum þeirra.
Pétur og Elísabet (Lísbet).
Lilja
Guðmundsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig
er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, en ekki í greinunum.
Minningargreinar
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga