Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
NÝTT!
FERSKARA
BROS MEÐ
JORDAN
Elskaðu tennurnar þínar
Ferskleiki í allt
að 12 tíma
Kemur í veg fyrir
andremmu
Fer vel með
glerunginn
40 ára Elísabet
Þórðardóttir er Reyk-
víkingur og er píanó-
kennari við Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar og
organisti Laugarnes-
kirkju.
Maki: Kári Allansson, f.
1982, laganemi og tónlistarmaður.
Börn: Steinunn María Matthíasdóttir, f.
2010, og Allan Magnús Kárason, f. 2019.
Börn Kára eru Emil Björn, f. 2009, og
María Karítas, f. 2012.
Foreldrar: Þórður Árnason, f. 1952,
gítarleikari, kona hans er Vilborg Odds-
dóttir, bús. í Reykjavík, og Steinunn Þor-
valdsdóttir, f. 1953, vinnur við textagerð,
þýðingu og ráðgjöf, maður hennar er
Finnur Geirsson, bús. í Reykjavík.
Elísabet
Þórðardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er sjálfsagt að gleðjast yfir
góðu verki og njóta ávaxta erfiðis síns.
Gleymdu ekki að gefa þínum nánustu tíma
og umhyggju.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki áhyggjur af framvindu
mála á vinnustað sliga þig því þótt syrti í
álinn birtir öll él um síðir. Láttu ekkert
trufla áætlun þína.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þér sækist meginverkefni
þitt seint skaltu hvergi láta deigan síga.
Hlutirnir kunna oft að virðast flóknari en
þeir eru.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eltu rómantíkina bara uppi ef þér
finnst að það séu straumar milli þín og
ótilgreindrar manneskju.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú kemur meiru í verk ef þeir sem
eru í kringum þig hvetja þig áfram. Best
væri ef þú gætir gefið þér klukkustund til
að ná í skottið á sjálfri/sjálfum þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mundu að sjaldan veldur einn þá
tveir deila svo réttu fram höndina. Taktu
hlutunum bara með ró og láttu neikvæðn-
ina ekki ná tökum á þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Deilur rísa um eignarrétt og þú verður
að hafa þig allan við til þess að standa á
rétti þínum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur úr mörgu að velja í
viðskiptum og þarft að vera vel vakandi
svo ekkert fari úrskeiðis. Leyfðu öðrum að
njóta sannmælis.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gerir miklar kröfur til sjálfs
þín og annarra og setur sjálfum þér oft
ströng skilyrði. Eitthvert verkefni veldur
þér hugarangri en til þess er engin
ástæða.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vinur færir þér fréttir sem
koma þér úr jafnvægi í dag. Mundu að við
erum öll mannleg og reyndu að dæma
ekki aðra harðar en þú dæmir sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Horfstu í augu við staðreyndir
og viðurkenndu mistök þín. Taktu það ekki
nærri þér þótt einhverjir felli um þig þunga
dóma.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Oft er það svo að lausn erfiðra
mála er sáraeinföld og eftir á finnst manni
hún liggja í augum uppi.
ferðalög tengd henni eru stór hluti
af samveru okkar eins og gefur að
skilja, þar sem við erum bæði stjórn-
endur Vinnslustöðvarinnar. Ég er
dálítið að fikta við hestamennsku, en
við eigum jörð á Suðurlandi með
hestum sem ætlunin er að sinna vel í
framtíðinni. Ég stunda einnig blak
nýtekin við sem formaður sóknar-
nefndar Landakirkju.
Helsta áhugamál Andreu er sam-
vera með fjölskyldunni og uppá-
haldsfríin eru ferðalög um Ísland
með fjölskyldunni. „Einnig er mjög
vinsælt að heimsækja skiptinema-
fjölskylduna í Kaliforníu. Vinna og
A
ndrea Elín Atladóttir er
fædd 3. september 1969
á sjúkrahúsinu í Vest-
mannaeyjum. „Ég ólst
upp í Vestmannaeyjum
fyrir utan stutt stopp í Reykjavík í
gosinu 1973 og þrjú ár í Árbænum á
meðan faðir minn var við nám í Há-
skólanum.“
Andrea gekk í Árbæjarskóla
1976-1978 og svo í Barnaskóla Vest-
mannaeyja. Hún varð stúdent frá
Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum, hún var skiptinemi í Kali-
forníu í tæpt ár 1986-1987 og bjó þar
einnig í hálft ár í fæðingarorlofi með
fjölskylduna á árinu 2006. Hún er
viðskiptafræðingur (cand. oecono-
mics) frá Háskóla Íslands 1997.
Sem unglingur vann Andrea við
fiskvinnslu og afgreiðslustörf. Hún
var ráðin til útibús Íslandsbanka í
Vestmannaeyjum meðan á háskóla-
námi stóð og hóf þar störf strax eftir
útskrift og vann þar til ársins 2001
þegar hún var ráðin fjármálastjóri
Vinnslustöðvarinnar hf. „Það geng-
ur vel hjá Vinnslustöðinni,“ segir
Andrea aðspurð. „Við höfum verið í
mikilli uppbyggingu á síðastliðnum
árum, í skipum, húsnæði og tækjum
og tólum, sem farin er að skila sér
vel inn í reksturinn. Það er í miklu
að snúast í sölustarfsemi félagsins,
en Vinnslustöðin rekur fimm erlend
sölufélög ásamt því að hafa nýverið
fest kaup á saltfiskvinnslufyrirtæki í
Portúgal og hlut í japönsku fram-
leiðslufyrirtæki.“
Frá níu ára aldri til rúmlega þrí-
tugs var lífið hjá Andreu helgað að
mestu haldbolta, hún spilaði nær all-
an ferilinn með ÍBV fyrir utan tvö ár
með Víkingi og eitt með Haukum og
varð hún Íslandsmeistari og bikar-
meistari með öllum liðunum. Andrea
spilaði með landsliðum Íslands í 10
ár, var valin Íþróttamaður Vest-
mannaeyja 1994 og besti leikmaður
Íslandsmótsins 1995 og nokkrum
sinnum besti sóknarmaður eða
markahæsti leikmaður.
Andrea hefur tvisvar verið í fram-
boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vest-
mannaeyjum og komið að nefndar-
störfum fyrir bæinn. Hún hefur
verið stjórnarmaður í Lífeyrissjóði
Vestmannaeyja síðan árið 2009 og er
og keppi í því með skemmtilegum
konum ásamt því að vera í sauma-
klúbbi sem saumar ekki, en í bóka-
klúbbi sem les hins vegar samvisku-
samlega.“
Fjölskylda
Maki Andreu er Sigurgeir Brynj-
ar Kristgeirsson, f. 3.12. 1960, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
hf. Foreldrar hans voru hjónin
Kristgeir Kristinsson, f. 4.7. 1926, d.
5.11. 2013, sjómaður og bóndi að
Felli á Arnarstapa og síðar sjómað-
ur á Akranesi, og Björg Jónsdóttir,
f. 23.9. 1928, d. 27.3. 2019, húsfreyja
og verkakona að Felli á Arnarstapa
og síðar á Akranesi. Fyrri maki
Andreu er Stefán Þór Lúðvíksson, f.
26.1. 1968, blikksmiður og eigandi
Eyjablikks.
Börn Andreu og Stefáns eru 1)
Agnes Stefánsdóttir, f. 17.4. 1999,
nemi, bús. í Kópavogi; 2) Bríet Stef-
ánsdóttir, f. 17.4. 1999, nemi, bús. í
Reykjavík. Í sambúð með Brynjari
Inga Óðinssyni nema; 3) Jason
Stefánsson, f. 23.1. 2006, nemi í
Andrea Elín Atladóttir, fjármálastjóri Vinnslustöðvarinnar hf. – 50 ára
Fjölskyldan Brynjar, Andrea og börn stödd um borð í nýju skipi Vinnslustöðvarinnar í fyrra, Breka VE.
Vestmannaeyingur í húð og hár
Meistarar Fyrsti Íslandsmeistaratitill ÍBV í handbolta í höfn, árið 2000.
30 ára Kirill fæddist í
Krasnodar við Svarta-
hafið í Rússlandi en
kom til Íslands með
foreldrum sínum
þegar hann var 12 ára
og hefur alltaf búið í
Kópavogi. Kirill út-
skrifaðist frá Varmárskóla í Mosfellsbæ
og síðan frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi. Nú vinnur Kirill sem yfirmat-
reiðslumaður á Fiskmarkaðnum. Árið
2018 var hann matreiðslumaður íslenska
karlalandsliðsins í fótbolta á HM í Rúss-
landi.
Foreldrar: Grigory Ter-Martirosov, f.
1967, múrari, og Oxana Ter-Martirosova,
f. 1969, hjúkrunarfræðingur á Grund.
Þau eru búsett í Kópavogi.
Kirill
Ter-Martirosov
Til hamingju með daginn
Reykjavík Allan
Magnús Kárason
fæddist 17. janúar
2019. Hann vó 3.842
g og var 51,5 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Elísabet Þórðardóttir
og Kári Allansson.
Nýr borgari