Morgunblaðið - 03.09.2019, Qupperneq 32
19. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Úrslitaleikur milli Breiðabliks og KR
í lokaumferð Íslandsmótsins í fót-
bolta er vissulega enn möguleiki.
Blikar voru reyndar ótrúlega nærri
því að framkvæma íslenskt „hara-
kiri“ þegar þeir voru stangarskoti
frá því að missa niður fjögurra
marka forskot gegn Fylki í fyrra-
kvöld.
Til að forðast að þurfa að spila um
Íslandsbikarinn á Kópavogsvelli 28.
september geta KR-ingar tryggt sér
27. Íslandsmeistaratitilinn með sigri
gegn Val á Hlíðarenda 16. septem-
ber, eða með sigri gegn FH á
Meistaravöllum 22. september. Og
Blikar geta reyndar fært þeim titil-
inn endanlega með því að tapa fyrir
Stjörnunni á Kópavogsvelli 16.
september. Nú, eða í Eyjum 22.
september.
Deildin er komin í tveggja vikna hlé
vegna landsleikjanna en 15. september
hefst lokaspretturinn í deildinni og
þrjár síðustu umferðirnar eru leiknar
á síðustu fjórtán dögum mánaðarins.
Til tíðinda getur dregið í fyrstu leikj-
um 20. umferðar, sunnudaginn 15.
september, en þá gætu Grindvíkingar
fallið ef þeir tapa á Akranesi og KA
fær stig gegn HK. Sólarhring síðar
gætu KR-ingar mögulega fagnað
Íslandsmeistaratitlinum.
Bikarúrslitaleikur Víkings og FH
14. september hefur talsverð áhrif á
baráttuna um Evrópusæti. Vinni FH-
ingar mun væntanlega liðið í 4. sæti
komast í Evrópukeppni. Það myndi
galopna baráttuna í deildinni fyrir
lokaumferðirnar því segja má að tíu lið
af tólf ættu þá enn möguleika á að ná
Evrópusætinu, meira að segja KA sem
er með 24 stig.
Morten hrökk í gang
Danski framherjinn Morten
Beck Guldsmed var besti leikmaður
19. umferðar að mati Morgunblaðs-
ins, en hann skoraði þrennu á aðeins
rúmum 20 mínútum í seinni hálfleik í
3:1 sigri FH á Stjörnunni í Garðabæ.
Óhætt er að segja að Morten Beck
hafi stimplað sig rækilega inn í deild-
ina á ný með þessari frammistöðu.
Hann var áður búinn að skora gegn
Val, í þriðja leik sínum með FH, og fá
rauða spjaldið gegn Fylki og tók því
út leikbann í næsta leik á undan
Stjörnuleiknum.
Morten Beck, sem er 31 árs gamall
og hefur bæði leikið með Silkeborg og
Hobro í dönsku úrvalsdeildinni, lék
síðast með Viborg frá sumrinu 2017
en hafði misst mikið úr vegna
meiðsla, var m.a. frá keppni í átta
mánuði á þeim tíma, og var leystur
undan samningi hjá félaginu í sumar.
Honum hafði þó tekist að skora 7
mörk í 27 leikjum í dönsku B-
deildinni.
Morten lék áður með KR tímabilið
2016 (bar þá eftirnafnið Andersen),
og hrökk þá í gang á miðju sumri.
Eftir ellefu markalausa mótsleiki frá
maí og fram í júlí skoraði Morten sex
mörk í seinni umferð úrvalsdeildar-
innar og fjögur mörk í fjórum
Evrópuleikjum KR-inga.
Hann sneri aftur til Danmerkur
eftir tímabilið, lék fyrri hluta ársins
2017 með Fredericia í B-deildinni og
fór þaðan til Viborg.
Þórsarinn góður með KA
KA-maðurinn Nökkvi Þeyr
Þórisson var besti ungi leikmaður 19.
umferðar að mati Morgunblaðsins.
Nökkvi nýtti tímann vel því hann
kom inn á sem varamaður gegn
Grindavík á 71. mínútu, krækti í víta-
spyrnu á fyrstu mínútu uppbótartíma
og skoraði svo seinna markið í blá-
lokin eftir góðan sprett. Hann var því
maðurinn á bakvið bæði mörk KA í
hinum mikilvæga 2:0 útisigri.
Nökkvi, sem varð tvítugur í ágúst,
hefur gert tvö mörk í 14 leikjum KA í
sumar. Hann kom til félagsins frá
Dalvík/Reyni þar sem hann gerði 10
mörk og varð 3. deildarmeistari með
liðinu í fyrra ásamt tvíburabróður
sínum Þorra Mar en þeir ólust upp
hjá Þór og höfðu síðan verið í tvö ár í
Þýskalandi. Þorri kom einnig við
sögu hjá KA fyrr í sumar en er nú í
láni hjá Keflavík. Þeir eru synir Þóris
Áskelssonar, sem lék um árabil með
Þór á Akureyri.
Félagsmet Óskars og Elfars
Þetta var umferð félagsmeta því
Óskar Örn Hauksson sló 48 ára gam-
alt markamet Ellerts B. Schram hjá
KR í efstu deild með því að skora 63.
mark sitt í deildinni í 2:0 sigrinum á
ÍA. Elfar Árni Aðalsteinsson sló 16
ára gamalt markamet Þorvalds Ör-
lygssonar hjá KA í efstu deild þegar
hann gerði fyrra markið í 2:0 sigr-
inum í Grindavík. Það var 23. mark
Elfars fyrir KA í deildinni en Þor-
valdur gerði 22 mörk.
Geoffrey Castillion skoraði
fyrstu þrennu sína í deildinni þegar
hann gerði öll mörk Fylkis í tap-
leiknum ótrúlega gegn Breiðabliki,
4:3. Hann er fyrsti Hollendingurinn
sem skorar þrennu í deildinni.
Gary Martin sendi Val skýr
skilaboð með mörkunum í 2:1 sigri
ÍBV á sunnudaginn. Fyrra markið
var hans 50. í efstu deild hér á landi
og hann er fimmti erlendi leik-
maðurinn sem nær þeim markafjölda
í deildinni.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Kristinn Jónsson, KR 16
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK 15
Óskar Örn Hauksson, KR 15
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 14
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi R. 13
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 13
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 12
Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 11
Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðablik 11
Birkir Valur Jónsson, HK 11
Kolbeinn Birgir Finnsson, Fylki 10
Ásgeir Marteinsson, HK 10
Marcus Johansson, ÍA 10
Brandur Olsen, FH 10
Guðmundur Kristjánsson, FH 10
Einar Logi Einarsson, ÍA 10
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 10
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 12
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 11
Geoffrey Castillion, Fylki 9
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 9
Gary Martin, ÍBV/Val 8
Steven Lennon, FH 8
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 8
Patrick Pedersen, Val 7
Óskar Örn Hauksson, KR 7
Markahæstir
KR 103
HK 98
Breiðablik 95
Stjarnan 89
Víkingur R.89
Fylkir 89
FH 85
ÍA 84
Valur 82
KA 81
Grindavík 73
ÍBV 54
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
19. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 10
Elias Tamburini, Grindavík 10
4-3-3
Vladan Djogatovic
Grindavík
Gary Martin
ÍBV
Morten Beck
Guldsmed
FH
Geoffrey Castillion
Fylki
Andri Rafn
Yeoman
Breiðabliki
Kristinn Jónsson
KR
Nökkvi Þeyr
Þórisson
KA
Óskar Örn
Hauksson
KR
Guðmundur
Kristjánsson
FH
Alfons Sampsted
Breiðabliki
Kári Árnason
Víkingi
5
2
3
3
52
33
Fagnar KR á Hlíðarenda?
Gæti orðið meistari 16. september Morten Beck Guldsmed var besti
leikmaður 19. umferðar og Nökkvi Þeyr Þórisson besti ungi leikmaðurinn
Morgunblaðið/Eggert
Bestur Morten Beck Guldsmed
skoraði þrennu fyrir FH.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Efnilegur Nökkvi Þeyr Þórisson
gerði gæfumuninn fyrir KA.
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
GÆÐA BAKKAMATUR
Sjá heimasíðu
www.veislulist.is
Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins,
bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Í yfir 40 ár hefur Veislulist
lagt áherslu á góða
þjónustu og framúrskaran
matreiðslu.
Hádegismatur
d
MisMUnAndi
RéTTiR AllA dAGA
viKUnnAR
EldUM EinniG fyRiR
MöTUnEyTi
KNATTSPYRNA
3. deild karla:
Fagrilundur: Augnablik – Vængir J........ 19
4. deild karla, 8-liða úrslit, seinni leikir:
Blönduós: Kormákur/Hvöt – Hamar.. 17.15
Þorlákshöfn: Ægir – Ýmir ................... 17.15
Grindavíkurvöllur: GG – Elliði ............ 17.15
Fjölnisvöllur: Björninn – Hvíti ridd ... 17.15
HANDKNATTLEIKUR
Meistarakeppni kvenna:
Origo-höllin: Valur – Fram.................. 19.30
Í KVÖLD!
Lokakeppni HM karla
Leikið í Kína:
A-RIÐILL:
Venesúela – Fílabeinsströndin............ 87:71
Kína – Pólland.............................. (frl.) 76:79
Pólland 4, Kína 3, Venesúela 3, Fílabeins-
ströndin 2.
B-RIÐILL:
Nígería – Argentína ............................. 81:94
Suður-Kórea – Rússland ..................... 73:87
Argentína 4, Rússland 4, Nígería 2,
Suður-Kórea 2.
C-RIÐILL:
Túnis – Íran........................................... 79:67
Púertóríkó – Spánn .............................. 63:73
Spánn 4, Púertóríkó 3, Túnis 3, Íran 2.
D-RIÐILL:
Ítalía – Angóla ...................................... 92:61
Serbía – Filippseyjar ......................... 126:67
Serbía 4, Ítalía 4, Angóla 2, Filippseyjar
2.
E-RIÐILL:
Tékkland – Bandaríkin ........................ 67:88
Tyrkland – Japan ................................. 86:67
Bandaríkin 2, Tyrkland 2, Japan 1, Tékk-
land 1.
F-RIÐILL:
Nýja-Sjáland – Brasilía ..................... 94:102
Grikkland – Svartfjallaland................. 85:60
Grikkland 2, Brasilía 2, Nýja-Sjáland 1,
Svartfjallaland 1.
G-RIÐILL:
Dóminíska lýðveldið – Jórdanía.......... 80:76
Frakkland – Þýskaland ....................... 78:74
Dóminíska lýðveldið 2, Frakkland 2,
Þýskaland 1, Jórdanía 1.
H-RIÐILL:
Kanada – Ástralía............................... 92:108
Senegal – Litháen............................... 47:101
Litháen 2, Ástralía 2, Kanada 1, Senegal
1.
Á alþjóðlegum mótum í körfubolta eru
gefin 2 stig fyrir sigur og 1 stig fyrir tap.
Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í
milliriðla þar sem saman leika liðin úr A/B-
riðlum, C/D-riðlum, E/F-riðlum og G/H-
riðlum. Þar verður leikið um sæti í átta liða
úrslitum.
Tvö neðstu liðin í hverjum riðli fara í
samskonar keppni um sæti 17-32.
Úrslitaleikir um 1. og 3. sæti fara fram
sunnudaginn 15. september.
KÖRFUBOLTI